1995 BMW M3 GT 111/356 Twin Turbo
Kafli 1
Bremsur að framan 370x38mm Keramic diskar og 8stimpla dælur frá Brembo, vírofnar slöngur, Super Racing Blue vökvi. Fjöðrun er H&R coilovers, H&R stillanlegar jafnvægisstangir að framan og aftan ásamt Powerflex fóðringum í flest allt.
- 1.1 Keramic brensurnar koma í hús.
- 1.2 Fjöðrunin kemur í hús.
- 1.3 Fjöðrunarinstall: H&R + Powerflex
- 1.4 Bremsuinstal: 370x38 Keramic + 8 Stimpla dæur
- 1.5 Photoshoot eftir STAGE 1
Kafli 2
Stillanlegi splitterinn að framan, Semislicks 235/40-18 Toyo R888, Scorpion endakúturinn, Intrax camberplötur, BBS RC, Carbon Fiber körfustólar og Carbon Airbox tilraun - 2.1 Stillanlegi splitterinn settur á
- 2.2 235/40x4 Toyo R888 komin undir
- 2.3 Scorpion endakúturinn og X-brace
- 2.4 Intrax stillanlegar camberplötur
- 2.5 Fyrsta mynd af BBS RC
- 2.6 Carbon Fiber GT3 stólar með Alcantara áklæði
- 2.7 Carbon Airbox tilraun
Kafli 3
Fyrsta útgáfa af Twin Turbo kerfinu, Heigo búrið, Schroth beltin og öflugri kúpling. - 3.1 Twin Turbo kerfið komið í hús
- 3.2 Twin Turbo uppsetningin hafin
- 3.3 Twin Turbo uppsetningin komin lengra
- 3.4 Twin Turbo tilbúið
- 3.5 Mr.X mættur á svæðið
- 3.6 Heigo búrið og Schroth 4point belti komin í
- 3.7 Myndir af STAGE 3
Kafli 4
Endurbyggður mótor með Þrykktum stimplum frá CP (8.5:1), þrykktar stangir, racing stangar- og höfuðlegur, ARP boltar og fleira góðgæti. Keramic húðuð Tubular eldgreinar. OEM BMW Airboxið notað í stað DA skítaboxsins, sem sprakk. Michelin CUP 235 og 265 dekk. Walbro 255 bensíndæla. Moristech Piggyback install - 4.1 Photoshoot af bílnum fyrir rebuild
- 4.2 Stimplarnir komnir
- 4.3 Flapsar á spoilerinn
- 4.4 Eldgreinar í smíðun
- 4.5 Endurbygging hafin, kjallarinn að verða klár
- 4.6 Allt á fullu, mótorinn fer í
- 4.7 RC felgurnar málaðar hvítar
- 4.8 Dyno sheet 470hp/560nm @ 12psi
- 4.9 Sprungið Airbox.. BMW airbox í
- 4.10 Nokkrar myndir af Stigi 4
- 4.11 Sætin sérmerkt og custom límmiði
- 4.12 Moristech piggyback install
Kafli 5
Heddpakningin var sprungin og því ákvað ég að vaða í að skipta um pakningu sjálfur. Hef aldrei gert þetta áður. Setti OEM heddpakningu, ARP2000 bolta og eitthvað af smádóti í viðbót. Í kjölfarið skemmdist túrbína þannig að ég skipti um báðar. Setti líka 750cc spíssa frá RC og lækkaði bensínþrýstingin niður í 3.5BAR - 5.1 Heddpakningarskiptin hefjast
- 5.2 Ónýt túrbína...
- 5.3 Nýju túrbínurnar
- 5.4 3.15 drifið úr og S2.93 í
- 5.5 440hp/580nm @ Gunni UK 05.02.2011 Dyno sheet.
- 5.6 Febrúar 2011:...Mótorinn dauður, skýringar óskast og mat á skaðanum, myndir af kertum og stimplum
Kafli 6
Eftir að mótorinn var total loss, reyndar hægt að nota þrykktu stangirnar aftur, verður þessi mótor endurbyggður að fullu. Þetta er í raun fjórða skiptið, 4 heddpakningar, 2 sett af þrykktum CP stimplum, annað heddið og önnur blokkin. Auk þess verður sett VEMS standalone og bakþrýstingsmælar á exhaust manifoldin ásamt betri olíuöndun. - 6.1 Nýja B32 blokkin komin í hús og strípuð
- 6.2 Bakþrýstings-Bunge í manifoldi
- 6.3 B32 heddið ásamt boraðri/planaðri B32 blokk
- 6.4 B32 blokkin máluð og sæt
- 6.5 HPF E46 M3 GT2252 TwinTurbo dynograf, gefur vísbendingar um max output
- 6.6 Nýju þrykktu CP 8.5:1 stimplarnir, töluvert ólíkir hinum (2008 version) stimplunum
- 6.7 Rebuild hafið
- 6.8 Longblock næstum klár 12.09.2011
- 6.9 Its alive ! 02.11.2011
- 6.10Meira af videos, Tune framundan!
- 6.11Low boost Dyno sheet 442hp/580nm
- 6.12High boost Dyno sheet 488.2hp@0.9Bar / 660nm@1.2Bar &3600rpm!
- 6.1316. Desember og bíllinn kominn heim aftur
Kafli 7
Bíllinn Kom frá UK 16. Desember 2011 en þá var greinilegur olíuleki. Það var erfitt að sjá hvar hann var en auk þess vantaði pakningu á wastegate húsið á aftari túrbínunni. Því miður er ekki hægt að ná því í sundur án þess að taka mótorinn úr því að aðgengið er ekker auk þess sem einn boltinn er svo langur að ég næ ekki að þræða downpipeið af. Mótorinn fór því úr helgina eftir, ég setti pakningarnar í, lagaði ventlalokspakningu og dreif mig svo í að mála vélarsalinn. Mótorinn fór aftur í 26. desember.
- 7.1 Mótorinn úr 17-18 desember 2011
- 7.2 Búinn að pússa og grunna
- 7.3 Glansáferðin, ágæt en samt ekki nógu góð undirvinna
- 7.4 Matta áferðin, ekki alveg að gera sig
- 7.5 Vélarsalurinn tilbúinn, satin grænt ásamt möttu
- 7.6 Mótorinn kominn aftur ofaní 26. desember 2011
- 7.7 Stutt video af 2.gear
- 7.8 Nýjar myndir
- 7.9 Gular bremsudælur
- 7.10 Lækkaður
- 7.11 Federal 595RS-R 245/255 komin í hús
- 7.12 Laptop í hanskahólf og dekkin komin undir
- 7.13 Gular felgurær og wheel studs
- 7.14 Laptop og 7” snertiskjárinn klár
- 7.15 Olíuleki fundinn, CPV (constant pressure valve) skipti
Kafli 8
Nú taldi ég bílinn vera orðinn þokkalegan. Í þessum mánuði kom bíllinn í grein í Þýska BMW Power blaðinu, og mánuðinum á eftir í flottir feature grein í Performance BMW. Auk þess var bíllinn á báðum forsíðunum. Ég fór á Nurburgring en sú ferð var ekki til fjár. Heddpakkningin sprakk og mótorinn fylltist af vatni. Orsökin er óljós en mögulega var það sambland af röngum knastásartíma, lélegri pakkningu og lélegu bensíni. Ég ákvað að fara í upgraded CUT-Ring pakkningu frá PPF sem og Aquamist HFS-3 Water/Meth injection kerfi, sem mun úða inn á báðar túrbínur sem og plenium.
Síðar fékk bíllinn UUC Twin Disk kúplingu (800hp/800nm rated) ásamt Getrag 6gang
Eftir smá pælingar ákvað ég að rífa downpipes af og láta endurhanna lokin, með það markmið að flæða betur út úr wastegates. Dótið var því sent til Svíþjóðar vorið 2013
Eftir einhvern tíma kom upp furðulegt vandamál þar sem að olíuhitinn reis mikið. Allskonar æfingar, nýtt olíusíuhús og slíkt lagaði ekkert, þangað til að ég fattaði að aðal jörðina vantaði..
- 8.1 BMW-Power Magazin greinin
- 8.2 Vélarsalurinn klár, BOV relocated á Plenium
- 8.3 Heddpakning farin, heddið komið af
- 8.4 PERFORMANCE BMW FEATURE
- 8.4 Aquamist HFS-3 Ísetning hafin
- 8.5 UUC Twin Disk Organic
- 8.6 UUC Twin Disk Organic kominí ásamt Getrag 6gang 420G
- 8.7 Vetrarmyndir Janúar 2013
- 8.8 Vanos uppgerð og málað drif
- 8.9 Downpipe endurhönnun hafin
- 8.10 Vírofin kúplingsslanga og krumpulakksæfingar á ventlalok
- 8.11 VHT Wrinkle paint effect á ventlaloki
- 8.12 Svakalegt bónsession, 3M mössun með vél
- 8.13 Nýtt olíusíuhús
- 8.14 Nýtt Ground Strap og Guibo
- 8.15 Helicoiled millihedd ti lað fá betri þrýsting á ventlalokspakkninguna
- 8.16 Nokkrar vormyndir 2014 til að loka kafla 8
Kafli 9
Það er komð vor og árið er 2014. Bíllinn keyrir vel en það sem pirrar mig er að ég sé göt á pústgreinunum, eins og það sé komið í gegn á suðunum. Auk þess kemur stundum blár reykur úr pústinu sem má líklega rekja til þess að þéttingarnar í Túrbínunum eru ónýtar, sem verður lagað í leiðinni.
Mótorinn fór því úr í byrjun Ágúst 2014.
Hugmyndin var að sjóða í þetta og setja svo saman aftur, en annað kom á daginn. Þegar mótorinn var komin úr og túrbínurnar í sundur sást að þær voru gersamlega í tætlum. Lang líklegast er að þær hafi verið svona síðan í Febrúar 2011 þegar mótorinn sprakk.
Það var því ekkert annað í stöðunni en að kaupa nýjar túrbínur, en þar sem það reyndist erfitt voru keyptir aftermarket kjartnar.
Annað smávægilegt sem var gert í leiðinni var að:
húða manifoldin og downpipes, ásamt heat wrap á downpipes. Auk þess var soðið í gat á chargepipes. Nýjir EGT mælar, ný hönnun á olíuleiðslum við túrbínuhús. Nýjar gírkassafóðringar ásamt helicoiled botni til að festa gírkassabitann. Nýtt Guibo. Helicoiled suma gírkassaboltana (þá sem festast í pönnuna). Ný Olíusía ásamt Mobil1 5w50 olíu og Microfilter í miðstöðina.
- 9.1 Mynd af gatinu á manifold, en þau voru fleiri en þetta
- 9.2 Ónýtar túrbínur, túrbínuhjólin illa leikin sem og pakkningarnar ónýtar
- 9.3 Ýmislegt dund, downpipes, filter, og annað
- 9.4 Nýjir túrbínukjarnar komnir
- 9.5 Mótorinn klár í transplan.. again
- 9.6 Örstutt video
Sælir bræður. Ég gaf sjálfum mér afmælisgjöf í tilefni af 35 ára afmælinu sem er núna í Febrúar (2007)
Ég ákvað að sameina langvarandi áhuga á ákveðnum bíl og kaup á trackvænum vagni.
Bíllinn er E36 M3 GT nr 111 af 350 (356) framleiddum.
Nr. 111 á sér nokkuð sérstaka sögu sem þarf ekki endilega að rekja hér en hún er í stuttu máli sú að ég er 3ðji eigandia af honum. Hann stóð ónotaður í geymslu frá árinu 1998 til 2002, en þá keypti sá sem seldi mér bílinn á uppboði hjá ríkinu. Lakkið var ónýtt og því var bíllinn heilmálaður c.a. árið 2004. Því miður fyrir bílinn ákvæð eigandinn að gera nokkrar útlitsbreytingar sem og mekanískar breytingar sem hefur að hlutatil verið snúið til baka. Eftir stendur bíll sem er of samlitur fyrir minn smekk og með loftinntaksrist á húddinu í formi ///M merkis, og ekkert BMW merki á sínum stað. Fyrir utan það er bíllinn næstum OEM.
Á þessum breytingatíma bar bíllinn 3.2L supercharged mótor og 6 gíra kassa, 380mm Movit bremsur að framan, 19” svartar felgur með póleruðu lippi, KW coilovers, o.s.frv. Umrædd rist var einmitt gerð til að bíllinn gæti andað nægilega. Auk þess eru afturbrettin aðeins víkkuð með handafli og rúlluð til að bera mjög breið afturdekk.
Glöggir menn muna eftir þessu skrímsli því hann var lengi vel til sölu á Mobile, á aðeins 39.900, sem að sögn seljanda var of hátt verð. Ég hefði nú geta bent honum á það sjálfur enda seldist bíllinn ekki.
Hann ákvað því að reverta bílnum aftur í almost OEM form enda verðmæti íhlutanna verulegt.
Þar kem ég inn. Ég var búinn að horfa á þennan bíl ansi lengi, sem og aðra GT bíla á mobile. Þessi vakti áhuga minn þar sem að hann er aðeins ekinn 63þúsund á boddy, en 55þús á motor, og þar sem ég ætla mér í smá breytingar. Þess vegna var ekki nauðsynlegt fyrir mig að taka fullkominn OEM bíl.
Við náðum samningum um hann og þeir komu með bílinn heim í skúr í Lúx á mánudag.
Ég er verulega sáttur við bílinn. Auðvitað verður maður skeptískur þegar maður kaupir 12 ára gamalan bíl sem er ekinn svona lítið, en miðað við innréttinguna og það hvernig hann vinnur, begjir, bremsar og keyrir þá finnst mér þetta bara standast.
Það vantar á hann stillanlega framlippið, en skv eiganda
http://www.m3gtregister.com þá var algengt að menn fjarlægðu það sökum þess að bíllinn vildi helst ekki yfir hraðahindranir með það á, þó það væri í hæstu stillingu.
Quote:
Vehicle information
VIN long WBSBF99000EA40110
Type code BF99
Type M3 (EUR)
Dev. series E36 (2)
Line 3
Body type COUPE
Steering LL
Door count 2
Engine S50
Cubical capacity 3.00
Power 217
Transmision HECK
Gearbox MECH
Colour BRITISH-RACINGGREEN (312)
Upholstery TEILLEDER W.N./MEXICOGRUEN (N5MX)
Prod. date 1995-03-23
Order options
No. Description
243 AIRBAG FOR FRONT PASSENGER
255 SPORTS LEATHER STEERING WHEEL
305 REMOTE CONTROL FOR CENTRAL LOCKING
354 GREEN STRIPE WINDSCREEN
362 VENT REAR WINDOWS, ELECTRIC
401 SLIDING/VENT ROOF, ELECTRIC
415 SUNBLIND FOR REAR WINDOW
423 FLOOR MATS, VELOUR
428 WARNING TRIANGLE
473 ARMREST, FRONT
494 SEAT HEATING F DRIVER/FRONT PASSENGER
498 HEADRESTS IN REAR, MECHANIC. ADJUSTABLE
502 HEADLIGHT WASHER SYSTEM
510 HEADLIGHT BEAM-THROW CONTR. F LOW BEAM
530 AIR CONDITIONING
540 CRUISE CONTROL
554 ON-BOARD COMPUTER
669 RADIO BMW BUSINESS RDS
672 CD CHANGER BMW FOR 6 CDS
676 HIFI LOUDSPEAKER SYSTEM
690 CASSETTE HOLDER
801 GERMANY VERSION
919 ALUMINIUM DOORS
Þar sem að þessi bíll verður bæði minn daily driver og trackbíll þá ætla ég ekki í einhverjar major breytingar, og síst af öllu á mótor.
Það sem ég ætla að gera, og í þessari röð er:
Bremsur
Felgur/dekk fyrir brautina
Fjöðrun
smávægilegt útlitstengt
Ég er búinn að fjárfesta í bremsum. Það hefur alltaf verið djúpt á skynseminni í mér og því fór ég í djúpu laugina. Reyndar ekki peningalega séð því að ég gerði ágætis kaup. Ég verslaði nefnilega sett sem var upphaflega í McLaren SLR. 370mm x 36mm Carbon-Ceramic diskar og 8stimpla dælur. Framleiðandi settsins í SLR er Brembo og því ekkert stórmál að setja þetta í BMW. Að vísu stendur Mercedes-Benz á dællunum, en það er ekkert sem powerdercoating getur ekki reddað. Þetta þýðir hinsvegar að ég þarf að notast við 19” felgur, sem er afar vitlust og miklu praktískara að nota minni diska og minni felgur... en svona er ég bara gerður. Ég á reyndar eftir að fá bremsurnar sendar..
Næst eru felgur og dekk, og þeir sem þekkja mig vita hvað ég kem til með að kaupa. Dekkin verða væntanlega Michelin Pilot Sports Cup, eins og komu orginal á CSL og koma núna á 997GT3.
Fyrir fjöðrun þá langar mig í nýjasta KW kerfið, kennti við Nurburgring, eða H&R Cup. Það kemur siðar í ljós.
GT-inn er orginal aðeins lægri og stífari en ”venjulegur” M3 og því er ég ekkert viss um að ég ætli strax í fjöðrun.
Hérna eru smá upplýsingar um M3 GT
Quote:
Af BMW M3 GT Register
BMW M3 GT Coupe
• 356 Cars
• Produced in British Racing Green and based on the 3.0l M3
• Adjustable front splitter
• Motorsport strut brace
• Anthracite interior trim with seat center parts, door inserts and grab handles in Mexico Green Nappa Leather
• Seat side parts and headrests in Amaretta Anthracite.
• Sports steering wheel with air bag.
• M stripes on backs of front and rear seats.
• Carbon Fibre effect inserts on center console and glove box.
• Twin oil pick up and baffled sump
• 17" Polished forged M double spoke alloy wheels , 7.5J front and 8.5J rear. 235/40 tyres.
• Suspension similar to the standard M3 but with shorter stronger springs to take the extra down force generated by the fully extended front splitter and rear spoiler.
• Produced for homologation reasons - Internationale FIA-GT-Serie, Division II, IMSA GT-Series USA and Internationale Langstreckenrennen.
• Re-profiled cams
• Re-mapped engine management
• Compression ratio of 10.8:1
• 1,460kg
• Motorsport International Side Moulding Badges
• Amber Indicators all round +
Standard GT mótorinn er örlítið öðruvísi, fleiri hestölf, meira tog og öflugra olíukerfi. Hann er með hærri revlimiter til að vinna betur úr brattari ásum.
Myndir hérSkemmtileg grein:
http://www.m3gtregister.com/pdf/car_feb_2007.pdfSveinn.