Rednex wrote:
300+ wrote:
Rednex wrote:
sem er tengt við skolloftshliðina ?
Hehe langt síðan maður hefur heyrt þetta, hljómar eins og sextugur vélstjóri, er kannski skolloftsblásari á bílnum þínum?
Ég er nú bara svo vanur að tala um skolloft og afgas því flestir aðrir í kringum mig segja þetta svona. Tölum líka um strokklok, bullur og margt fleira
Kannski búinn að átta þig á því núna en ég er einmitt að læra vélstjórann
p.s. það er enginn skolloftsblásari í bílnum. Er líka ekki frekar talað um afgasblásara ? Skolloftsblásarar eru held ég bara í tvígengisvélum (rafmagnsdrifnar) til að hjálpa þeim fyrst þegar þær eru settar í gang.
Það er ekki talað um skolloftsblásara nema bara í tvígengisvélum, hvort sem þær eru með slaufuskolun eða þverskolun því á N/A tvígengis nýtist aldrei öll slaglengd bullunnar í skolunina(útaf hæðarmuninum á portunum) og verður hún því alltaf ófullkomin, en þaðan er nafnið "skolloftsblásari" einmitt komið, en tilgangur hans er að reka út þær leifar af afgasinu sem eftir eru í brunarýminu, ekki til að mynda eitthvað boost til að ná meira afli. En það er ekki talað um afgasblásara nema að blásarinn sé jú afgasknúinn, en það er t,d ekki blásarinn á gömlu Ölphunni sem að þú hefur eflaust kynnst. Þar er þetta tvöfaldur tvívirkur strokkur sem er tímaður þannig inn á vélina að þegar bullan í brunarýminu er á leið niður í lok aflslags þá opnast fyrst fyrir útbl. portið og svo fyrir skl.portið og um leið og það byrjar að opnast smá rifa á skl.portinu þá byrjar bullan í skolloftsblásaranum að fara upp og rekur þannig brunaleifarnar út, þá er bullan í skolloftsblásaranum komin í toppstöðu þegar skolloftsportið lokast og bullan í strokknum á leið upp í þjappslagi.
Láttu svo Hlöðver ekki grilla of mikið í þér, maðurinn er asni.