Bíllinn er byrjaður að haga sér hálf skringilega. Það lýsir sér þannig að hann hefur ekkert afl á lágum snúningi, 1000-25/3000rpm. Yfirleitt kikkar hann aftur inn ef hann kemst á hærri snúning. Yfirleitt gengur hann líka hægaganginn nokkuð vel en þó með undantekningum. Svo allt í einu hættir hann þessu og gengur fínt
Ég held hann sé að kveikja á öllum strokkum en er þó ekki 100% viss. Því datt mér í hug að loftflæðiskynjarinn væri orðinn eitthvað stífur eða snerturnar á honum tærðar. Einnig datt mér í hug að þetta tengdist eitthvað nýju bensíndælunni sem er í bílnum, reyndar notuð, en bíllinn var aðeins byrjaður á þessu áður en hún kom í hann.
Kannast einhver við svona vandamál ?





