


saemi wrote:Lemja er málið.
Það þarf að lemja bæði á diskinn og LÍKA á sjálfa skrúfuna. Þegar það er búið þarf þetta að vera anzi fast til að þetta komi ekki í sundur!

iar wrote:saemi wrote:Lemja er málið.
Það þarf að lemja bæði á diskinn og LÍKA á sjálfa skrúfuna. Þegar það er búið þarf þetta að vera anzi fast til að þetta komi ekki í sundur!
Algerlega, ég gerði eins og þú sagðir mér (enda hlýðinn með eindæmum) og greip sleggjuna og lamdi hressilega nokkrum sinnum allan hringinn. Svo tók ég bolta sem hausinn passaði ofan á skrúfuhausinn og barði þéttingsfast 2-3svar á skrúfuna og eftir það var þetta allt passlega laust. Maður sá líka á endanum á skrúfunni, þegar hún var komin út, hvar ryðið hafði myndast og því fest skrúfuna.
Ég prófaði aðeins að taka á boltunum sem festa caliperinn og þeir voru þvílíkt fastir og ég náði ekki að hagga þeim. Gengur vonandi betur í næstu tilraun, ég var ekki með nógu góðan lykil og vantaði líklega meira vogarafl eins og jonthor bendir á.
Boraðferðina hans Íbba líst mér hinsvegar ekki á nema sem síðasta úrræði ef allt annað bregst.
gunnar wrote:Alltaf gaman í skúrnumÓtrúlegt hvað maður er ánægður með sjálfan sig eftir svona verk...
grettir wrote:Ótrúlegt hvað svona dót getur étið sig fast. Lendið þið aldrei í vandræðum með að ná álinu undan á haustin?
Ég kengbeygði felgulykilinn síðast og þurfti að fara með skottið á milli lappana á verkstæði á tveimur vetrardekkjum og tveimur alvöru
jonthor wrote:grettir wrote:Ótrúlegt hvað svona dót getur étið sig fast. Lendið þið aldrei í vandræðum með að ná álinu undan á haustin?
Ég kengbeygði felgulykilinn síðast og þurfti að fara með skottið á milli lappana á verkstæði á tveimur vetrardekkjum og tveimur alvöru
Þá held ég að þú sért að herða boltana allt of mikið. Prófaðu að herða þetta næst með torkmæli, þá sérðu hvað þetta á að vera mikið. Á að vera um 100Nm og það er ekki mikið! Of mikið torque hefur líka áhrif á hitaleiðnina á milli felgunnar og disksins og getur haft áhrif á verpingu diskanna. Mæli með því að þú athugir þetta næst þegar þú festir.

Users browsing this forum: No registered users and 18 guests