Taxi wrote:Jæja, nú er komið að því að ég get ekki lengur þagað, það var Z-3 sem plægði niður svolítið af grindverkinu á miklubraut á laugardagskvöldið fyrir viku síðan ( 11,12 ). Var þessi bíll nokkuð í eigu klúbbmeðlims ?
Bjarki wrote:Strákur sem ég þekki fékk bílinn lánaðan eina kvöldstund og þetta endaði svona! Bíllinn var held ég steingrár, minnir það.
Hann kom til mín nokkrum tímum fyrir óhappið og var að fá hjálp við að opna blæjuna en svo kom í ljós að mótorinn var eitthvað bilaður eða tannhljól/reimar. Fluttur inn frá USA mjög fallegur bíll á 17" felgum, leður, rafmagn í blæju þ.e. allur pakkinn. 2,8 M52 vél.
Hann kom niður ártúnsbrekku og áfram. Var á vinstri akgrein þegar bíll ók inn í hliðina á honum með fyrrgreindum afleiðingum. Bíllinn fór útaf og hring held ég og tók niður 5 grindverkareiningar. Ökumaður og farþegi meiddust ekkert. Bíllinn fór síðan í geymsluna hjá Króki. Veit ekki hvort hann fari á uppboð eða verði lagaður.
Förum varlega
Users browsing this forum: No registered users and 22 guests