Porsche 911 carrera 2000 módel í nokkra daga

Hér skal spjalla um BMW.

Porsche 911 carrera 2000 módel í nokkra daga

Postby jonthor » Wed 01. Dec 2004 13:28

Félagi minn sem er í M.B.A. námi í sama skóla og konan mín er á bílnum sínum hér. Það er einmitt Porsche 911 carrera 2000 módel ekinn 40k. Það vill svo skemmtilega til að hann er að fá gesti í heimsókn og vantaði bíl sem gæti tekið 5 manns. hmmm, I stepped up og gerði honum "greiða".

Ég er sem sagt með bílinn hans í nokkra daga og Guð minn góður hvað þetta er rosalegt tæki. Var að prófa hann á hraðbrautinni áðan. Liggur eins og ég veit ekki hvað, ótrúlega stutt á milli gíra (6 gíra), sætið gjörsamlega umlykur mann og bremsurnar eru ótrúlegar. Á BMW er einmitt einn cylender á hverju hjóli til að þrýsta bremsunum saman. Á þessum eru fjórir, tveir sitt hvoru megin við bremsudiskinn.

Magnað apparat, bara gaman næstu daga. Myndir koma í kvöld!!!

*Edit: PorSche :D
Last edited by jonthor on Thu 02. Dec 2004 07:16, edited 2 times in total.
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby gunnar » Wed 01. Dec 2004 13:32

Hehe ég trúi því vel að þú hafir ekki verið lengi að grípa gæsina með að svissa á bílum 8)

Hlakka til að sjá myndirnar..
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby iar » Wed 01. Dec 2004 13:39

Félaginn heppinn að fá 323i í nokkra daga! ;-)
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby jonthor » Wed 01. Dec 2004 13:45

já, það er ekki oft sem maður fær að keyra bíl sem hefur gangvirði upp á 65.000€, það væri yfir 10m kominn heim! Svona bíll hefur svosem lítið að gera heim :lol:
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby jens » Wed 01. Dec 2004 14:01

Mér finst ekki koma nógu vel fram hjá félögum okkar hvað þú ert mikill vinur að lána honum bílinn þinn.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby Spiderman » Wed 01. Dec 2004 20:00

jonthor wrote:já, það er ekki oft sem maður fær að keyra bíl sem hefur gangvirði upp á 65.000€, það væri yfir 10m kominn heim! Svona bíll hefur svosem lítið að gera heim :lol:


Shit....10 mills það borgar sig ekkert að flytja þetta inn frá evrópu þar sem svona bíll færi aldrei á meira en 6 mills hér heima :roll: Það er eflaust ástæðan fyrir því að menn eru farnir að flytja þetta inn frá USA :lol:
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991

Nikolai Smolenski wrote: Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual
User avatar
Spiderman
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1117
Joined: Mon 09. Jun 2003 19:49
Location: Hafnarfjörður

Postby Kristjan » Wed 01. Dec 2004 20:55

Ertu ekki að hustla alveg eins og Fabio á þessum bíl?
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: Porche 911 carrera 2000 módel í nokkra daga

Postby jth » Wed 01. Dec 2004 21:01

jonthor wrote:Ég er sem sagt með bílinn hans í nokkra daga og Guð minn góður hvað þetta er rosalegt tæki. Var að prófa hann á hraðbrautinni áðan. Liggur eins og ég veit ekki hvað, ótrúlega stutt á milli gíra (6 gíra), sætið gjörsamlega umlykur mann og bremsurnar eru ótrúlegar. Á BMW er einmitt einn cylender á hverju hjóli til að þrýsta bremsunum saman. Á þessum eru fjórir, tveir sitt hvoru megin við bremsudiskinn.

Magnað apparat, bara gaman næstu daga. Myndir koma í kvöld!!!


Geggjað - ég öfunda þig stíft og mikið :wink:

Endilega komdu með góða samantekt á bílnum þegar þú ert búinn að taka aðeins á honum 8)

Hvað varðar fjölda cylindra (er þetta ekki líka kallað piston í samhengi við bremsur), þá minnir mig að BMW hafi borið fyrir sig verri hitaleiðni þegar fleiri cylindrar/pistonar séu í spilinu, þegar spurt var afhverju M5 væri ekki með nema 1 piston-a bremsur.
(Ég ber enga ábyrgð á sannleiksgildi hitaleiðni athugasemdarinnar, þetta er langt út fyrir sérsvið okkar 5 volta gaura - kannski Jón Þór geti hjálpað með það ;) )
Jóhannes
User avatar
jth
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 316
Joined: Fri 29. Nov 2002 17:49
Location: NY

Postby gunnar » Wed 01. Dec 2004 21:33

jens wrote:Mér finst ekki koma nógu vel fram hjá félögum okkar hvað þú ert mikill vinur að lána honum bílinn þinn.


Ég held að allir myndu nú gera þetta til að fá að vera á 10 milljón króna bíl í nokkra daga 8)
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby jonthor » Wed 01. Dec 2004 22:13

Já þetta er helv gaman, var einmitt að koma heim af hraðbrautinni. Ekki það að það sé leiðinlegt að keyra 323 hér, það er bara erfitt að toppa 300hp porche :D

Jú piston er líklega rétt. Varðandi varmaleiðni dettur mér svosem ekkert gáfulegra í hug en betra loftflæði og að þar sem bremsucaliperinn er mikið stærri og efnismeiri haldi hann betur í hitann og það þurfi meira til að kæla hann. Geri ráð fyrir því að verkfræðingarnir hjá BMW viti hvað þeir eru að segja. En jú, varmaflutningsfræði er stór hluti af verkefninu mínu hér :D

....og hvað haldið þið? Auðvitað var ég stoppaður af löggunni á leiðinni heim. Ég þurfti sem sagt að útskýra af hverju í ansk. ég væri Íslendingur á þýskum númerum í Frakklandi á bíl sem ég á ekki einu sinni! En eftir nokkra brandara á bjagaðri Frönsku þá léttist nú yfir þeim, sagðist hafa skipt við vin minn og þeim fannst díllinn bara nokkuð góður, sögðust samt þurfa að taka bílinn af mér og skila honum aftur eftir svona 2 tíma :D :D

Jæja hér koma svo myndirnar sem ég lofaði:

Image
Image
Image
Image
Image
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby gunnar » Wed 01. Dec 2004 22:19

vúps, varstu böstaður fyrir speeding eða ? :oops:

Býsna laglegur bíll, væri nú ekki værra ef hann væri beinskiptur, eða er hann með svona smg dóti? bæði ssk og bsk ?
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby íbbi_ » Wed 01. Dec 2004 22:42

ARGH.. stundum getur maður bara varla verið annað en öfundsjúkur! en vá.. til hamingju maður þetta er eitthvað sem þú átt eftir að muna alla ævi 8)

hmm mér sýnist nú á myndini að bíllin sé beinskiptur???'
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Porche 911 carrera 2000 módel í nokkra daga

Postby grettir » Wed 01. Dec 2004 22:46

jonthor wrote:Á þessum eru fjórir, tveir sitt hvoru megin við bremsudiskinn.


Fjórir hjá mér :D Svínvirkar.

En glæsilegur bíll :shock:
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby Svezel » Wed 01. Dec 2004 23:36

Úje nú er eflaust gaman að vera í Frakklandi! Njóttu meðan þú getur :)

...og hvar eru svo donut myndirnar :lol:
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Jss » Thu 02. Dec 2004 00:15

Geggjað, væri alveg til í svona skipti. ;) Endilega að koma með góða grein um aksturinn. ;)
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests