Fór yfir þráðinn aftur og hugsaði vel og lengi um hvað er að "bila" í E70. Eins og Davið Már (Slapi) nefndi þá eru þetta mjög bilanalitlir bílar.
Það eina sem mér datt í hug hvað varðar "bilun" þá hafa hurðarbarkarnir verið að fara illa í íslenska frostinu

En það er hægt að fyrirbyggja það með því að
smyrja barkann rækilega vel áður en frostið kemur.
Leðurcoverið á efri handskahólfslokinu hefur verið að flettast upp út af sól og hita en kostar ekki mikið og tekur 5 mín að skipta því út.
Annars bara dettur mér ekkert annað í hug um "algengar bilanir" fyrir utan bara venjulegt viðhald.
Og svo er bara þægilegt að keyra þessa bíla

Langar ekkert lítið í svona bíl ... but kein geld
Mæli sterklega með svona E70 með M57B30 !