Takk GST fyrir svakalegt magn upplýsinga! lærði helling
Svezel wrote:
Ég persónulega held að miðað við stöðuna í dag séu vetnisbílar bara marketing gimmick miðað við orkuna sem þarf að nota til að rafgreina vatn. Miðað við 100% nýtni á ragreiningunni (sem er svo sannarlega ekki svo góð) þá fæst í mesta lagi orkan sem fór í rafgreininguna til baka við brunann. Bruninn er svo alveg pottþétt ekki fullkominn og nýtni kemst líklega aldrei einu sinn í 50%.
Tilhvers að vera að eyða fullt af rafmagni til að búa til orku sem samsvarar ekki einu sinni orkunni sem fór í að undirbúa hana? Svo eru reyndar til aðrar leiðir til að "framleiða/einangra" vetni en það er spurning hversu umhverfisvænar og hagkvæmar þær eru .
Afhverju að rafgreina vatn fyrir vetni? Afhverju ekki bara fara beint í rafmagnið og sleppa þessum orkufreka millilið?
En ef menn vilja endilega halda í vetnið þá eru t.d. bílar eins og Honda Clarity mjög sniðug hugmynd, það væri líka sniðugt að hafa þannig bíl með rafmagnsplöggi og geta hlaðið hann heima en ef þú ferð eitthvað og ert að verða tæpur á orku að geta bara tekið vetni.
Bara pæling...