Bílasalar - pappakassar

Hér skal spjalla um BMW.

Bílasalar - pappakassar

Postby Bjarki » Thu 05. Nov 2009 17:57

Hef verið í samskiptum við bílasala samhliða leit af bíl.
Þeir sem ég hef talað við eru ekki beint skörpustu hnífarnir í skúffunni!
Þær upplýsingar sem koma fram á netinu eru sjaldan réttar, ef bíll er með topplúgu og leðri þá er hann að þeirra mati orðinn gullmoli með öllu. Svo kannski stendur gullmoli og maður spyr um ástand..."þetta er gullmoli"!
Átta sig greinilega ekki á því að fólk hefur öðrum hnöppum að hneppa en koma við á bílasölum til að skoða bíla sem maður sér á 1mín að er búðingur og alls ekki sami bíllinn og auglýsingin gefur til kynna.
Algengt er að það standi rafmagn og minni í sætum en svo sést mynd af sætinu og greina má fremsta handfangið til að færa sætið.
Ef bíllinn er nýsmurður þá eru það bara "allir vökvar nýjir". Þá spyr maður hvort það hafi verið skipt um allt dótið kælivökva, bremsuvökva, drif, skipting....neinei þá er það bara olía og sía og gert á smurstöð. Þetta er allt í þessum dúr, maður hélt að á svona tímum þyrfti að setja smá metnað í þetta og að þeir hæfustu myndu standa eftir.
Ég átta mig á því að ég þekki þessa bíla vel en það er samt miklu heiðarlegra að segja satt en að bulla bara eitthvað svo stendur ekki steinn yfir steini!
NB klárlega til góðir bílasalar og þessi gagnrýni á auðvitað ekki við þá.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby Alpina » Fri 06. Nov 2009 14:58

Bjarki wrote:Hef verið í samskiptum við bílasala samhliða leit af bíl.

:shock: team svekk ??
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby Viggóhelgi » Fri 06. Nov 2009 16:15

Team svekk er alveg ágætlega orðað, enn maður verður líka svo óendalega pirraður þegar að vonir mans eru byggðar massíft upp... og falla svo hratt. og langt, því fallið af toppinum og niður á botn er ansi langt.

þessir menn virðast oft á tíðum bara ekki vita neitt hvað þeir eru með í höndunum, flétta upp bílnúmerinu á meðann þeir hafa þig í símaum og þylja upp þvælu sem þeir eða einhverjir aðrir hafa skráð þar.

minni háttar beiðni frá fólki sem er að íhuga bílakaup er sú að fólk viti hvað það er að selja.
BMW e60 520d - 2006
Honda Shadow Spirit - 2012
User avatar
Viggóhelgi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 802
Joined: Thu 08. Sep 2005 17:22

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby SteiniDJ » Fri 06. Nov 2009 16:21

Þetta minnir mann á þau fleygu orð "Einn með öllu!".
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby Einarsss » Fri 06. Nov 2009 16:42

ohh hvað ég þoli ekki bílasala... :x
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby Alpina » Fri 06. Nov 2009 16:55

Þegar ég var yngri,, þá þótti okkur félugunum,, botninn í atvinnugeiranum vera

BÍLASALI,, svo kom fasteignasali,,,,
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby ///M » Fri 06. Nov 2009 17:10

Áður en ég keypti touringinn minn rakst ég á KT671 á bílasölu. Ég kíki inn og fæ að prófa, hann sagði reyndar að bíllinn væri eiginlega seldur en ég mætti nú taka hring. Flott mál ég rúlla smá hring og kem svo aftur að skila lyklunum, þá tilkynnir bílasalinn mér að það væri búið að bjóða í bílinn og hann væri bara seldur. Ég spyr hvort ég megi vita hvað tilboðið sé, svona ef maður skildi vilja bjóða hærri tölu... hann horfir á mig eins og ég sé fífl og spyr "Helduru að ég sé jafn heimskur og ég lít út fyrir að vera?!?!?! Ég fer ekki að segja þér hvað er búið að bjóða í bílinn" Ég varð svona í framan -> :shock: Þakkaði fyrir mig og fór :lol:

Ég flokka einmitt bílasala með helvítans símsölu fólkinu sem hringir í mann daginn út og inn. :alien:
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby doddi1 » Fri 06. Nov 2009 17:46

óskar á planinu er ekki svona vitleysingur...

segir sannleikann, allavega við mig... líka ef hann veit að bíll sem er til sölu hjá honum stenst ekki væntingar manns þá er hann ekkert að vesenast í því að reyna að selja manni hann...

mæli með mr. Oscar :thup:
það er betra að spyrja og vera heimskur í eina mínútu en að þegja og vera heimskur alla ævi

óstaðsettur í bíl
doddi1
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1348
Joined: Wed 07. Jun 2006 18:28

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby UnnarÓ » Fri 06. Nov 2009 22:26

doddi1 wrote:óskar á planinu er ekki svona vitleysingur...

segir sannleikann, allavega við mig... líka ef hann veit að bíll sem er til sölu hjá honum stenst ekki væntingar manns þá er hann ekkert að vesenast í því að reyna að selja manni hann...

mæli með mr. Oscar :thup:

Núna í sumar var pabbi einmitt að skima eftir bíl handa sér og ég fór með honum á helling af bílasölum að skoða svona það helsta sem hann hafði augastað á, nánast öllum bílum var líst sem einhverjum 'gullmolum' þó svo að það ætti sjaldnast við. Langflestir bílasalarnir voru áhugalausir og vissu ekkert um bílana, svo fáránlegt að gamli missti allan áhuga á þeim bílum sem voru hjá þeim. Svo förum við einmitt á Planið og þar var viðmótið mjög gott og pabbi endaði líka á að kaupa bíl þaðan.
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby Thrullerinn » Sat 07. Nov 2009 00:30

Ég var að brasast í bíl sem 100bílar áttu, ég stússaðist mikið í kringum
þetta og fannst bílasalinn núll að bulla í mér.

Ég færi allavega með bílana mína þangað ef ég ætlaði að selja...
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby Bjarki » Sun 08. Nov 2009 00:41

Ekkert svekk í gangi.
Mér þykir þjónustan sem þeir sem ég hef átt samskipti við ekki góð. Það stendur fátt sem sagt er og það þarf að ýta á eftir öllu.
Veit ekki hvort þeir haldi að ég sé wannabe af því ég er ekki í jakkafötum en þetta er þreytt.
Last edited by Bjarki on Sat 14. Nov 2009 11:17, edited 1 time in total.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby IceDev » Sun 08. Nov 2009 04:43

Miðað við bílasala í dag, þá tel ég þig heppinn að fá símtal strax

Myndi telja þetta ágætis bílasala miðað við fyrrv. reynslur við þá

Fátt sem ég hata meira en að borga bílasala 50k+ fyrir að hringja 1-2 símtöl

SVEI!
IceDev
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3976
Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby Hlynzi » Sun 08. Nov 2009 09:19

Málið er bara að halda sig í beinni sölu.
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla
Hlynzi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 586
Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Location: Grafarvogur

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby Viggóhelgi » Tue 10. Nov 2009 05:48

ég lenti nú í skemmtilegu atviki í sumar,
ég var frekar druslulega klæddur og jafnvel illa til fara einn góðan dag í sumar, þegar að ég átti að fara að ganga frá díl... sölu á Range Rover sport sc.

ég mæti á staðinn, og stend inni á sölunni. allir spaðarnir á fullu, að svo virðist, talandi sýn á milli um einhverja... "ROSA MARGRA MILLJÓN" krónu díla, þeir sáu mig vel og spurðu svo eftir sirka 10 min bið, hvert erindið væri, ég tjáði þeim það, þá var mér sagt að bíða eftir ákveðnum manni, sem var látinn vita að ég væri á staðnum.

ég fékk núll athygli, var látinn bíða í 30 min,,, og alltaf var einhver "á leiðinni að aðstoða mig" fyrir hann, því hann var svo busy
enn kannski var það bara skiljanlegt að ég fékk ekki aðstoð enda var ég nú bara á 10 ára gömlum land cruiser. og illa til fara, ég gæti ekki hugsanlega átt einhverja peninga.

þetta endaði með því að þeir misstu söluna eftir að ég hafði beðið í 50 min inni.

ég hef seint verið jafn fúll, þá og þegar missti ég algjöra trú á þessum ofur spöðum. eftir þetta ákvað ég að bezt væri að stunda bara ekki viðskipti við bílasala.
BMW e60 520d - 2006
Honda Shadow Spirit - 2012
User avatar
Viggóhelgi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 802
Joined: Thu 08. Sep 2005 17:22

Re: Bílasalar - pappakassar

Postby doddi1 » Tue 10. Nov 2009 12:47

Viggóhelgi wrote:ég lenti nú í skemmtilegu atviki í sumar,
ég var frekar druslulega klæddur og jafnvel illa til fara einn góðan dag í sumar, þegar að ég átti að fara að ganga frá díl... sölu á Range Rover sport sc.

ég mæti á staðinn, og stend inni á sölunni. allir spaðarnir á fullu, að svo virðist, talandi sýn á milli um einhverja... "ROSA MARGRA MILLJÓN" krónu díla, þeir sáu mig vel og spurðu svo eftir sirka 10 min bið, hvert erindið væri, ég tjáði þeim það, þá var mér sagt að bíða eftir ákveðnum manni, sem var látinn vita að ég væri á staðnum.

ég fékk núll athygli, var látinn bíða í 30 min,,, og alltaf var einhver "á leiðinni að aðstoða mig" fyrir hann, því hann var svo busy
enn kannski var það bara skiljanlegt að ég fékk ekki aðstoð enda var ég nú bara á 10 ára gömlum land cruiser. og illa til fara, ég gæti ekki hugsanlega átt einhverja peninga.

þetta endaði með því að þeir misstu söluna eftir að ég hafði beðið í 50 min inni.

ég hef seint verið jafn fúll, þá og þegar missti ég algjöra trú á þessum ofur spöðum. eftir þetta ákvað ég að bezt væri að stunda bara ekki viðskipti við bílasala.

bílasala reykjavíkur?
það er betra að spyrja og vera heimskur í eina mínútu en að þegja og vera heimskur alla ævi

óstaðsettur í bíl
doddi1
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1348
Joined: Wed 07. Jun 2006 18:28

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 33 guests