Hef verið í samskiptum við bílasala samhliða leit af bíl.
Þeir sem ég hef talað við eru ekki beint skörpustu hnífarnir í skúffunni!
Þær upplýsingar sem koma fram á netinu eru sjaldan réttar, ef bíll er með topplúgu og leðri þá er hann að þeirra mati orðinn gullmoli með öllu. Svo kannski stendur gullmoli og maður spyr um ástand..."þetta er gullmoli"!
Átta sig greinilega ekki á því að fólk hefur öðrum hnöppum að hneppa en koma við á bílasölum til að skoða bíla sem maður sér á 1mín að er búðingur og alls ekki sami bíllinn og auglýsingin gefur til kynna.
Algengt er að það standi rafmagn og minni í sætum en svo sést mynd af sætinu og greina má fremsta handfangið til að færa sætið.
Ef bíllinn er nýsmurður þá eru það bara "allir vökvar nýjir". Þá spyr maður hvort það hafi verið skipt um allt dótið kælivökva, bremsuvökva, drif, skipting....neinei þá er það bara olía og sía og gert á smurstöð. Þetta er allt í þessum dúr, maður hélt að á svona tímum þyrfti að setja smá metnað í þetta og að þeir hæfustu myndu standa eftir.
Ég átta mig á því að ég þekki þessa bíla vel en það er samt miklu heiðarlegra að segja satt en að bulla bara eitthvað svo stendur ekki steinn yfir steini!
NB klárlega til góðir bílasalar og þessi gagnrýni á auðvitað ekki við þá.

