gstuning wrote:
JonFreyr wrote:
Þarf að finna mér verkstæði sem getur moddað legubakkana, höfuðlegurnar eru aðeins öðruvísi en original og þarf að renna (milla) fyrir þeim.
Hvað er svona öðruvísi ?
Hann (Jim) sagði að legurnar sem ég fengi væru öðruvísi, að útskýra það í símanum án þess að vera með þetta í höndunum var frekar erfitt. En mér skildist á honum að legusætið þyrfti á minniháttar moddi að halda í sambandi við hvernig legan situr föst í sætinu. Get útskýrt það betur þegar ég fæ þetta í hendurnar.
Ceramic coating er klárlega best bang for the buck og kostar engin ósköp, mikið notað í jet-mótorum og afterburner kerfum svipuðum og á F16 til dæmis. Hef heyrt dæmi um að menn sem testa þessa mótora geti snert exhaust nozzle að utanverðu með 5th stage afterburner í gangi, eingöngu vegna þess að ceramic húðunin sé svona effective.
Eins er það klárt mál að original eldgrein á M20 var hönnuð akkúrat fyrir þann mótor, er klárlega hægt að betrumbæta ef menn eru að opna mótorinn meira og kreista meira út úr honum eins og ég er að gera. Það segir sig eiginlega sjálft að 2,9l mótor getur gubbað meira gasi út úr sér en 2,5l mótor, þess vegna vill ég opna pústleiðina í samræmi við aukningu á rúmtaki.