BMW 325ci E46

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

Postby Jón Ragnar » Wed 21. Jan 2004 20:28

slökum á strákar, það er ekki eins og það sé eitthvað minnsta mál í heimi fyrir alla að lesa að þetta sé 323i þó að hann sé með 2.5l, hélt að flestir vissu að það er ekkert að marka bílasölur og svona, þetta er btw GEGGJAÐUR bíll

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Postby fart » Wed 21. Jan 2004 20:50

Já HelduBetur, þetta er STÓRGLÆSILEGUR 323 og þessar 18" M3 replica felgur eru geðveikar. :shock:
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby bebecar » Wed 21. Jan 2004 21:02

Það eru allir sammála um að þetta er stórglæsilegur bíll og ekki get ég nú fallist á að það sé skítakomment að kalla bílinn réttu nafni :lol:

Hvað stendur á skottlokinu á honum?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby saemi » Wed 21. Jan 2004 22:30

Anonymous wrote:Ég er nú bara að auglýsa þennan bíl fyrir félaga minn, það virðist vera viðloðandi við þennan vef, að menn séu með einhver skítakomment yfir þessum auglýsingum hér. Tek þessu ekki nærri mér eða neitt slíkt, bara leiðinlegt fyrir annars góðan vef. Það má vel vera að þessi bíll ætti að vera auglýstur sem 323 en það stendur hvorki á honum né í skráningarskírteininu og þar að auki er bíllinn með 2,5 lítra vél. Flestar bílasölur skrá þessa bíla hjá sér sem 325, þar á meðal Bílasala Reykjavíkur sem ég treysti nú alveg ágætlega. Varðandi felgurnar þá verða þær ekki seldar á neitt slikk, endilega hringdu bara í eigandann og gerðu tilboð. Helst vill eigandinn selja þær með bílnum.



Hehh, nei það er nú alveg á hreinu að þetta var ekkert skítakomment frá Svezel. Hann fór mjög pent að þessu og var bara að benda vinsamlegast á þetta.

Þegar verið er að auglýsa bíl, þá á að sjálfsögðu að tilgreina rétt tegundarheiti. Þessi bíll heitir frá BMW 323ci, þó svo að hann sé með 2.5L vél. Í söluauglýsingu segir maður því 323ci til sölu og tilgreinir svo að hann sé með 2.5L vél :wink:

Ég vil nú bara vísa því til föðurhúsanna að hér sé almennt verið að koma með skítakomment á bíla auglýsingar á þessum vef. Það er reynt eftir fremsta megni að taka út hið fyrsta allt sem á ekki við rök að styðjast og er ósanngjarnt. Ef þú getur bent á annað, þá væri það vel þegið svo það megi leiðréttast.

Það er ekki mikið af 323ci eða 323i bílum með 2.5L vél (original) til á Íslandi, en þegar að er gáð, þá eru 3 bílar skráðir á sölu samkvæmt netinu 325 (sem eru 323) þegar búið er að taka mið af því að sami bíll er á 4 sölum, en 323i bílar með 2.5L vél eru allavega 5-7 (nennti ekki að athuga hversu margir væru sami bíllinn, en það koma upp 14 bílar á netinu). Svo sú fullyrðing að sölur séu almennt að auglýsa þessa bíla sem 325ci/325i á ekki við rök að styðjast.

Ég hef ekki séð eina einustu sölu sem auglýsir 740i eða 540i bíla (eftir árgerð 1996) sem 744, eða 544, þó svo að þeir séu með 4.4L vél. Og það eru langt um fleiri slíkir bílar á sölum hér á landi heldur en 323ci/i. Af hverju ætti annað að gilda með 323ci???

Það er bara af hinu góða að verið sé að auglýsa bíla hér til sölu á þessum vef, en það er ómaklega að okkur vegið hér á spjallinu ef það er verið að benda á villur í auglýsingunni og það er launað með svona framkomu.

Fyrir hönd BMWkrafts,
Last edited by saemi on Wed 21. Jan 2004 23:23, edited 1 time in total.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Alpina » Wed 21. Jan 2004 22:52

JUDGE saemi.......... hihihihihihi<<<<<<<<<<< vel meint
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby bebecar » Thu 22. Jan 2004 00:04

WORD!!!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Guest » Thu 22. Jan 2004 00:20

Það er nokkuð merkilegt að menn séu farnir að skíra bíla.
Heytir þeytir með y
Guest
 

Hvað er málið

Postby nod » Thu 22. Jan 2004 16:13

það er huge munur á 323 og 325 að mínu mati þetta getur ekki verið 325 170 hö nema hann hafi benzínkubb eins og dominos bílarnir lol 8)
klikkómen
nod
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 40
Joined: Thu 09. Oct 2003 10:53
Location: Rvk

Re: Hvað er málið

Postby bjahja » Thu 22. Jan 2004 16:34

nod wrote:það er huge munur á 323 og 325 að mínu mati þetta getur ekki verið 325 170 hö nema hann hafi benzínkubb eins og dominos bílarnir lol 8)

Ekki svo langt frá því, ég held að þetta sé svipað með E46 og með E36.........þeir eru de-tuned frá verksmiðju.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby jonthor » Thu 22. Jan 2004 16:43

saemi wrote:[size=9]

Það er ekki mikið af 323ci eða 323i bílum með 2.5L vél (original) til á Íslandi, en þegar að er gáð, þá eru 3 bílar skráðir á sölu samkvæmt netinu 325 (sem eru 323) þegar búið er að taka mið af því að sami bíll er á 4 sölum, en 323i bílar með 2.5L vél eru allavega 5-7 (nennti ekki að athuga hversu margir væru sami bíllinn, en það koma upp 14 bílar á netinu). Svo sú fullyrðing að sölur séu almennt að auglýsa þessa bíla sem 325ci/325i á ekki við rök að styðjast.



Ég veit ekki betur en allir E36 og E46 323 séu með 2,5 lítra vél. Ég hef athugað þetta mikið vegna þess að ég vildi vita muninn? Fann mikið um þetta og póstaði því einmitt hér á vefnum.

Þar fann ég að eina ástaðan fyrir að 323 heitir það sem hann heitir er að 328 var kynntur á sama tíma og það er ekki hægt að hafa 325 sem er 192hp til sölu og svo talsvert dýrari 328 sem er 193hp. Það getur vel verið að þetta komi eitthvað illa við fólk en staðreyndin er að DIN mæling á 323 gefur 182hp og 188hp á 325, enda mjög svipaðar vélar. 323 eyðir einnig um lítra minna á hundraði (E36 tölur).

Hér er linkurinn á eitt af því sem ég fann:
http://www.dsv.su.se/~mad/power.html

Það væri þó gaman að sannreyna þetta. Ég fann þetta auðvitað bara online. DIN mæla óbreytta 323 og 325 hér í TB.

P.S. hárrrétt með skítacommentin, hef tekið eftir því að órökstutt leiðindarcomment eru tekin út og er það vel.
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby saemi » Thu 22. Jan 2004 17:28

jonthor wrote:Ég veit ekki betur en allir E36 og E46 323 séu með 2,5 lítra vél. Ég hef athugað þetta mikið vegna þess að ég vildi vita muninn? Fann mikið um þetta og póstaði því einmitt hér á vefnum.



Ég hefði átt að vera nákvæmari í skrifum mínum. Ég átti við E46. En það væri svo sem alveg eins gott að taka E36 með í dæmið líka!
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Hvað er málið

Postby jonthor » Thu 22. Jan 2004 18:37

nod wrote:það er huge munur á 323 og 325 að mínu mati þetta getur ekki verið 325 170 hö nema hann hafi benzínkubb eins og dominos bílarnir lol 8)


Kíktu á hvað þessi hefur að segja um muninn:
http://www.dsv.su.se/~mad/power.html
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby Guest » Thu 22. Jan 2004 20:45

Sælir ég ætlaði nú ekki að koma á stað einhverri leiðindaumræðu, ástæðan fyrir því að ég skrifaði 325 var að ég kóperaði auglýsinguna og staðreyndir af Bilasolur.is. Það stendur ekkert á skottlokinu á bílnum, og því hef ég ekkert spáð í þessum mun að ráði, það er að segja muninum á 323 og 325. Einhvern vegin fannst mér ég bara geta treyst auglýsingu sem unninn er af fagmönnum sem hafa verið í bransanum síðan 1989 (sbr. bilasalarvk.is). Ef til vill hef ég verið of harðorður með að tala um skítakomment en það snéri kannski ekkert beint að athugasemdum við auglýsingu minni heldur meira að commenti þar sem tveir félagar voru að tala um hvor hafi eyðilagt þráðinn, kannski hefur þetta bara verið sagt í gríni hjá þeim og er það þá bara gott mál. Varðandi skítakommentin þá er rétt, þeim er oft hent út, en það sem mér finnst oft kjánalegt er þegar söluþræðir fara upp í 5-6 síður, þar sem menn rífast um hvort viðkomandi bíll taki Imprezu í spyrnu eða ekki. Líka vil ég nefna þegar menn rífast um hestaflatölur, það vita allir að ef eigendur telja bíla sína vera eitthvað kraftmeiri en aðstæður gefa til kynna, þá er eina leiðin að láta mæla þá. Annars hlustar engin á þá, svona hlutir eigi ekkert lenda í einhverjum neterjum. Annars er þetta mjög gott framtak hjá ykkur og gangi ykkur vel með síðuna.
Guest
 

Postby Guest » Thu 22. Jan 2004 22:40

Bíllinn er seldur!
Guest
 

Postby Haffi » Thu 22. Jan 2004 22:57

töff =)
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

PreviousNext

Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 45 guests