Atlands Olía

Hér skal spjalla um BMW.

Postby Haffi » Sun 11. Jan 2004 18:25

ég dreg svar mitt til baka 8) :wink:
Last edited by Haffi on Sun 11. Jan 2004 18:50, edited 1 time in total.
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Alpina » Sun 11. Jan 2004 18:25

Gunni wrote:Ingvar þú ert svo málaður af Skeljungi að það er ekki fyndið.


:lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol:

(((hehehehehe...........snaggaralega orðað)))

En að teknu tilliti við Ingvar þá er hann starfsmaður Skeljungs
og er trúr sínum :!: :!:

Sv.H
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby bjahja » Sun 11. Jan 2004 18:28

Ingvar er samt bara að benda á staðreyndir þótt hann sé hlutdrægur og hann sagði heldur aldrei að hann væri eithvað óhlutdrægur ;)
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby bebecar » Sun 11. Jan 2004 18:44

fart wrote:bíddu, lækkaði bensín hjá Orkunni ekkert við það að AO kom á markað?


Jú, Orkan lækkaði um eina krónu á öllum sínum stöðvum og um tvær krónur í Kópavogi til að komast einni krónu undir Atlantsolíuverðið. Málið er bara það (og ég vissi ekki af þessu) að Orkan bíður líka uppá Bensínfrelsi. Með Bensínfrelsi færðu 2 krónur aukalega í afslátt hjá Orkunni sem þýðir að áður en Atlantsolía fór að selja bensín þá var lægsta verð hjá Orkunni 92.40 eða sama verð og er núna ÁN Bensínfrelsis.

Orkan vill auðvitað njóta tryggðar fyrir lægra verð en er ekki að njóta sanngirni í þessari umræðu. Engin (nema ég) hefur minnst á að Orkan var með lægra verð fyrir.

Jú, það er rétt að Skeljungur á Orkuna að öllu leiti en það er tiltölulega stutt síðan að þeir keyptu restina af því fyrirtæki. Áður átti Baugur hlut á móti Shell og þar áður var Hagkaup líka í dæminu.

Ég tel að ástæður stofnunar Orkunnar hafi verið fullkomlega heiðarlegar og einmitt gert til að bjóða uppá ódýrara bensín fyrir þá sem vilja minni þjónustu og það sést EINMITT hvað þeir hafa staðið sig vel með því að Atlantsolía getur ekki boðið betur!

Svo vilja allir versla við Atlantsolíu vegna gremju út í olíufélögin - Orkan er rekið sjálfstætt og var t.d. EKKI í rannsókn af samkeppnisstofnun og því finnst mér mjög ósanngjarnt að Orkan njóti ekki sannmælis.

Ég hef bara reynt að benda á það og í raun ekkert minnst á Skeljung.

Ég verð reyndar að segja að mér finnst leiðinlegt að vera þáttakandi á spjallrás og að geta ekki tekið þátt í málefnalegri umræðu án þess að vera tengdur við Skeljung. Ég kann því þeim litlar þakkir sem að ekki geta tekið málefnalega á svörum mínum og reyna að kasta rýrð á mig með því að tengja mig Skeljungi.

Ég hef bara bent á mitt sjónarmið og stutt það staðreyndum.

Svar Gunna var algjörlega óþarft og eingöngu til þess fallið að gera mig ótrúverðugan og það algjörlega án þess að svara efnislega rökum mínum.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby oskard » Sun 11. Jan 2004 18:49

það sem skiptir máli hérna er ekki að AO sé ekki ódýrast heldur
að orkan hefði aldrei lækkað bensínverð nema vegna þess að AO
kom á markaðinn.
oskard
 

Postby fart » Sun 11. Jan 2004 18:51

anda djúpt og telja upp að 10.

Mér finnst þú alltaf trúverðugur, alveg sama þó þú sért hlutdrægur, menn eru alltaf hlutdrægir, það er mannlegt.

Það eina sem ég var að benda á er að það er mjög gott fyrir neytendur þegar nýjir aðilar koma á markað þar sem fákeppni ríkir. Þó svo að þeir séu ekki ódýrastir þá koma þeir til með að þrýsta verðinu eitthvað niður til lengri eða skemmri tíma.

Ég er reyndar mjög hlutdrægur líka, ég vinn hjá KB Banka og hann á c.a. 50% í Skeljungi. :oops: hehe....
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby bebecar » Sun 11. Jan 2004 18:57

fart wrote:Ég er reyndar mjög hlutdrægur líka, ég vinn hjá KB Banka og hann á c.a. 50% í Skeljungi. :oops: hehe....


Hehe, mikið rétt!

Þessu var nú reyndar ekki beint til þín.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby bebecar » Sun 11. Jan 2004 19:00

Oskard. Orkan hefði ekki þurft að lækka bensínverð. Þeir hefðu t.d. getað bent á að fólk gæti keypt Bensínfrelsið og væri þá hvort eð er með ódýrara bensín. Orkan kaus að lækka enn frekar og eru núna mest 3 krónum undir verði Atlantsolíu.

Þar fyrir utan var ekki um það rætt. Það var rætt um að Atlantsolía hefði lækkað verðið á markaðnum og það er rangt.

Og eins og áður þá finnst mér Orkan ekki njóta sanngirni í þessari umræðu. EKki var hlaupið upp til handa og fóta á sínum tíma þegar Orkan var til þess að hin olíufélögin opnuðu líka sjálfsafgreiðslustöðvar með lægra verði...
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Jss » Sun 11. Jan 2004 19:10

fart wrote:allt sem lækkar verðið gerir mig ánægðan.


Sammála því, versla nú reyndar V-Power núna. :D :?

Spurning hvað maður gerir í framtíðinni?
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby bebecar » Sun 11. Jan 2004 19:16

Don't get me started :wink:

Ég er enn minnugur þess hvrnig tekið var á móti V-Power. Fyrsta alvöru framlag á þessu sviði til bílaáhugamanna á landinu. Nánast allir afskrifuðu það sem húmbúkk án þess að hugsa sig um.

Það er verið að reyna að bjóða nýjungar hér sem eru til gagns og gamans.

Optimax hefur náð MJÖG sterkri stöðu í UK einmitt vegna þess að þar eru mikil bílamenning og mönnum er umhugað um tækin sín.

PS, ég tók reyndar 95 áðann til að njóta góðs af verðmismuninum... enda búin að taka V-Power ansi oft.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby oskard » Sun 11. Jan 2004 19:20

bebecar wrote:Oskard. Orkan hefði ekki þurft að lækka bensínverð. Þeir hefðu t.d. getað bent á að fólk gæti keypt Bensínfrelsið og væri þá hvort eð er með ódýrara bensín. Orkan kaus að lækka enn frekar og eru núna mest 3 krónum undir verði Atlantsolíu.

Þar fyrir utan var ekki um það rætt. Það var rætt um að Atlantsolía hefði lækkað verðið á markaðnum og það er rangt.

Og eins og áður þá finnst mér Orkan ekki njóta sanngirni í þessari umræðu. EKki var hlaupið upp til handa og fóta á sínum tíma þegar Orkan var til þess að hin olíufélögin opnuðu líka sjálfsafgreiðslustöðvar með lægra verði...


en bensínverð er lægra núna en þegar ao var ekki þó svo að það sé orkan sem er með lægsta verðið :)
oskard
 

Postby Jss » Sun 11. Jan 2004 19:21

bebecar wrote:Don't get me started :wink:

Ég er enn minnugur þess hvrnig tekið var á móti V-Power. Fyrsta alvöru framlag á þessu sviði til bílaáhugamanna á landinu. Nánast allir afskrifuðu það sem húmbúkk án þess að hugsa sig um.

Það er verið að reyna að bjóða nýjungar hér sem eru til gagns og gamans.

Optimax hefur náð MJÖG sterkri stöðu í UK einmitt vegna þess að þar eru mikil bílamenning og mönnum er umhugað um tækin sín.

PS, ég tók reyndar 95 áðann til að njóta góðs af verðmismuninum... enda búin að taka V-Power ansi oft.


Já, Optimax er Mjög vinsælt í Bretlandi enda eins og þú segir mikil bílamenning þar og ég á til myndir innan úr vélum fyrir og eftir Optimax notkun og það munar þónokkru á hreinleika þeirra. Optimax-ið hreinsaði kolefnaútfellingar og annað og notaðir voru að mig minnir þrír tankar á hvern bíl.

Býst nú við að taka V-Power í nánustu framtíð, vil frekar gefa bílnum gott að drekka heldur en hitt. :D
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby bebecar » Sun 11. Jan 2004 20:06

Jss, það væri gaman að sjá þessar myndir.

Oskard. Lægsta verð Orkunnar fyrir komu Atlantsolíu var 93.50 og svo var hægt að fá tvær krónur í viðbótarafslátt af því með því að kaupa bensínfrelsi. Því var lægsta verð Orkunnar 91.50 fyrir opnun Atlantsolíu en þeir buðu 92.50. Orkan lækkaði almennt verð í 91.40 og svo er hægt að fá tvær auka krónur í afslátt af því; semsagt 89.40!!!

Orkan hefði ekki þurft að lækka til að vera með lægra verð. Orkan er bara búin að lofa að bjóða öllum lægsta verðið og því mættu þeir einnar krónu lækkun Atlantsolíu þrátt fyrir að vera með lægra verð (með Bensínfrelsinu) og krónu betur í Kópavogi.

Bottom line er eftirfarandi; vonbrigði með að Atlantsolía hafi EKKI lækkað verðið á markaðnum til samræmis við stórorðar yfirlýsingar. Ég sá alltaf fyrir mér sirka 8 krónu lækkun miðað við þeirra yfirlýsingar.

Ég held að málið sé bara það að ekki er fræðilegur möguleiki að bjóða almennilegt verð nema með því að kaupa í verulegu magni og þá verða öll olífélögin að kaupa saman, asnalegt er það en staðreynd samt. Íbúafjöldi hér er sá sami sirka og í Árósum í Danmörk, sjáið þið fyrir ykkur bensínstöðvar eiganda þar berjast í því að flytja inn bensín á lægra verði en allir hinir? Það er bara ekki hægt.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Jss » Sun 11. Jan 2004 20:29

bebecar wrote:Jss, það væri gaman að sjá þessar myndir.


Já mér þætti líka gaman að sjá þær aftur, bara allverulega stór blaðabunki sem þarf að fletta í gegnum, pheew. :-s
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby Elli Valur » Sun 11. Jan 2004 20:53

jæja ég veit ekki með ykkur en ég er þessi lati sem nenni eiginlega ekki að dæla á bílinn minn og stinka eins og bensinstöð eftir það.
Þannig að ég nenni EKKI að nota þetta bensínfrelsikort mitt sem þér í orkuni sendu mér á sínum tíma því (og afhverju geta þeir ekki boðið sama verð hvort þú borgar á staðnum eða þarft að vesenast eithvað í banka fyrst) þá þarf ég að byrja á því að leggja inná kortið í banka og fara síðann á bensínstöðina.
Ég keyri allveg rosalega mikið (of mikið eiginlega fer með á bilinu 30-35þ í bensín) og ég versla nánast bara á olís.

Kanski að maður fari að kaupa hjá AO EF ÉG Á LEIÐ FRAMHJÁ dettur ekki í hug að fara keyra útúr leið til aðm taka bensín éns og það er nú leiðinnleg síðan er bensínið ekki það sama á orkuni og á shell (veit ekki með hinar stöðvarnar) því það eru bætiefni úti besininu á shell EKKI á orkuni
TOYOTA Hiace
KAWASAKI KXF 250
Elli Valur
Kassabílstjóri
 
Posts: 137
Joined: Sat 07. Dec 2002 19:50
Location: allavega ekki oní huddinu á BMW

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests