Kraftleysi eftir bínuskipti? Blikkandi geymaljós?

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Kraftleysi eftir bínuskipti? Blikkandi geymaljós?

Postby AntiTrust » Sun 08. Feb 2009 02:01

Var að setja nýja túrbínu í bimmann, 320D 2002 árg.

Aldrei keyrt þennan bíl í 100% lagi, keypti hann bilaðann svo ég hef ekki alltof mikið til viðmiðunar, en mér finnst og er nokkuð viss um að bíllinn sé ekki að skila sínu. 0-100 tími er langt yfir factory tíma, og hann erfiðar í allt yfir 120-130 km/klst.

Ég er búinn að skipta um bínu, það pústar örlítið út hjá pústgrein en ekki svo að það geti valdið slíkum aflmissi, hefði ég haldið. Ég skipti um olíusíu og olíu í leiðinni.

Getur olía í pústi valdið þessu, þar sem það er ennþá að brenna olía síðan síðasta bína fyllti allt af olíu, stíflaður hvarfakútur eða annað?

Gæti þetta verið öndunarbox/sía á vél?

Allar hugmyndir og ábendingar vel þegnar, ætla að reyna að klóra mig framúr þessu sjálfur.

***EDIT

Nýtt vandamál, eftir að hafa keyrt bílinn í 1-2 daga vandræðalaust fór geymaljósið að blikka, ekki reglulega, stundum virðist það rpm tengt en stundum ekki.

Lélegt geymasamband eða ónýt kol/alternator?
Last edited by AntiTrust on Sun 08. Feb 2009 21:03, edited 1 time in total.
Audi A6 2.0T S-line MY07
Audi TT 1.8T MY99
AntiTrust
Kassabílstjóri
 
Posts: 108
Joined: Tue 29. May 2007 02:53

Postby Grétar G. » Sun 08. Feb 2009 02:26

Veit ekkert um þetta! En getur verið að það þurfi að endustilla eitthvað í tölvu.. bíllinn er kannski í einhverju limp mode eða eitthvað?
Bara wild gess :)
E30 M20B25 TÚRBÓ
E36 ///M3 Daytona Violet
E65 735i LOADED
Range Rover Sport Supercharged
Yamaha YZF R6 '07
E39 ///M5 & Evo V & E60 545i & 300C SRT-8 (Seldir)
User avatar
Grétar G.
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2287
Joined: Tue 13. May 2008 01:10
Location: Ghettó BRH

Postby AntiTrust » Sun 08. Feb 2009 02:32

Þá hefði ég nefnilega haldið að vélartölvuljós eða annað myndi kvikna, en það er ekkert í mælaborðinu sem gefur vélarbilun eða limp mode til kynna. Síðast þegar ég vissi var líka talsvert lækkað rev limit í limp mode, og það er ekkert svoleiðis í gangi, redline-ar alveg vandræðalaust.
Audi A6 2.0T S-line MY07
Audi TT 1.8T MY99
AntiTrust
Kassabílstjóri
 
Posts: 108
Joined: Tue 29. May 2007 02:53

Postby slapi » Sun 08. Feb 2009 08:08

AntiTrust wrote:Þá hefði ég nefnilega haldið að vélartölvuljós eða annað myndi kvikna, en það er ekkert í mælaborðinu sem gefur vélarbilun eða limp mode til kynna. Síðast þegar ég vissi var líka talsvert lækkað rev limit í limp mode, og það er ekkert svoleiðis í gangi, redline-ar alveg vandræðalaust.



Redline-ið lækkar ekkert.
ýmis gildi verða bara föst , loftmagn , kælivatnshiti og annað.
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Postby gstuning » Sun 08. Feb 2009 10:53

Frekar líklegt að hvarfinn er stíflaður og er í raun "minnkun" á pústinu þínu,

Pústleki hjá pústgrein er líka ekki gott fyrir túrbínuna
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby AntiTrust » Sun 08. Feb 2009 13:40

slapi wrote:Redline-ið lækkar ekkert.
ýmis gildi verða bara föst , loftmagn , kælivatnshiti og annað.


Hvernig kemst ég að því hvort hann er í limp mode eða ekki? Tengja við tölvu?
Audi A6 2.0T S-line MY07
Audi TT 1.8T MY99
AntiTrust
Kassabílstjóri
 
Posts: 108
Joined: Tue 29. May 2007 02:53

Postby slapi » Sun 08. Feb 2009 14:24

lang best að lesa af honum og sjá hvort eitthvað sé að.
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Postby Dóri- » Sun 08. Feb 2009 23:05

Það segir sig alveg þokkalega sjálft að kvarfakúturinn er handónýtur eftir að hafa bæði kveiknað í honum og stappfyllst af olíu, farðu með bílinn til BJB eða Einars áttavilta, láttu hann taka hvarfann og setja túpu undir bílinn, færð auka hestöfl og það þarf ekki að vera hvarfakútur í diesel bíl.
User avatar
Dóri-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2042
Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35

Postby AntiTrust » Sun 08. Feb 2009 23:27

Dóri- wrote:Það segir sig alveg þokkalega sjálft að kvarfakúturinn er handónýtur eftir að hafa bæði kveiknað í honum og stappfyllst af olíu, farðu með bílinn til BJB eða Einars áttavilta, láttu hann taka hvarfann og setja túpu undir bílinn, færð auka hestöfl og það þarf ekki að vera hvarfakútur í diesel bíl.


Hehe, maður áttar sig ekki alltaf á því augljósa. Fæ ég s.s skoðun án hvarfa?
Audi A6 2.0T S-line MY07
Audi TT 1.8T MY99
AntiTrust
Kassabílstjóri
 
Posts: 108
Joined: Tue 29. May 2007 02:53

Postby thisman » Sun 08. Feb 2009 23:30

Getur það ekki hreinlega verið ástæðan fyrir að það pústar meðfram pústgreininni - að þetta hafi bara ekki komist nógu auðveldlega í gegnum hvarfakútinn og þrýstingurinn leitar út? Nú hef ég ekki hundsvit á þessu en finnst þetta hljóma svo hrikalega vel hjá mér. :D
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Postby Dóri- » Mon 09. Feb 2009 01:37

AntiTrust wrote:
Dóri- wrote:Það segir sig alveg þokkalega sjálft að kvarfakúturinn er handónýtur eftir að hafa bæði kveiknað í honum og stappfyllst af olíu, farðu með bílinn til BJB eða Einars áttavilta, láttu hann taka hvarfann og setja túpu undir bílinn, færð auka hestöfl og það þarf ekki að vera hvarfakútur í diesel bíl.


Hehe, maður áttar sig ekki alltaf á því augljósa. Fæ ég s.s skoðun án hvarfa?


jább ég fór sérferð niðrá skoðunarstöð þegar minn sprakk í tætlur. var ekki alveg að tíma því að kaupa nýjan :lol:

held að ég hafi borgað 15 eða 20þ fyrir 2og hálfstommu downpipe og pípu þegar ég lét gera þetta.

rann í gegnum skoðun.
User avatar
Dóri-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2042
Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35

Postby AntiTrust » Tue 10. Feb 2009 01:35

Jæja, alternatorinn / kolin fóru í gærkvöldi svo það var farið í að rífa hann úr í kvöld, ekki eins auðvelt og maður hefði haldið en jæja..

Komst hinsvegar að því þegar ég var að rífa ýmislegt frá að það var olíubrák í soggreininni og í intercoolerhosunum beggja megin.

Ég þarf svosem engann snilling til að segja mér að þetta sé ekkert hollt og gott, en þetta er bara brák eftir að síðasta bína fór, en pælingin er hvort það sé þess virði að taka soggreinina bara upp og skipta um pakkningar og annað í leiðinni, eða hvort ég eigi bara að láta þetta brenna upp? Er ég að skemma e-ð eða minnka afköst? Getur olían komist í intercoolerinn og blockerað loftflæði af e-rju viti?
Audi A6 2.0T S-line MY07
Audi TT 1.8T MY99
AntiTrust
Kassabílstjóri
 
Posts: 108
Joined: Tue 29. May 2007 02:53

Postby pes1 » Tue 10. Feb 2009 10:44

Ef hann er hauglatur í starti gæti verið skítugur air flow meter. Eins myndi ég kanna hvort EGR ventillinn sé ekki kakkstíflaður.
pes1
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 45
Joined: Wed 03. Dec 2008 15:27
Location: Reykjavík

Postby Dóri- » Tue 10. Feb 2009 12:17

já og öndunarsían sem er staðsett ofaná ventlalokinu.
User avatar
Dóri-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2042
Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35

Postby ValliFudd » Tue 10. Feb 2009 17:06

Úff, var að spa í að versla þennan, djöfull er ég feginn að hafa sleppt því :lol:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 72 guests