Var að setja nýja túrbínu í bimmann, 320D 2002 árg.
Aldrei keyrt þennan bíl í 100% lagi, keypti hann bilaðann svo ég hef ekki alltof mikið til viðmiðunar, en mér finnst og er nokkuð viss um að bíllinn sé ekki að skila sínu. 0-100 tími er langt yfir factory tíma, og hann erfiðar í allt yfir 120-130 km/klst.
Ég er búinn að skipta um bínu, það pústar örlítið út hjá pústgrein en ekki svo að það geti valdið slíkum aflmissi, hefði ég haldið. Ég skipti um olíusíu og olíu í leiðinni.
Getur olía í pústi valdið þessu, þar sem það er ennþá að brenna olía síðan síðasta bína fyllti allt af olíu, stíflaður hvarfakútur eða annað?
Gæti þetta verið öndunarbox/sía á vél?
Allar hugmyndir og ábendingar vel þegnar, ætla að reyna að klóra mig framúr þessu sjálfur.
***EDIT
Nýtt vandamál, eftir að hafa keyrt bílinn í 1-2 daga vandræðalaust fór geymaljósið að blikka, ekki reglulega, stundum virðist það rpm tengt en stundum ekki.
Lélegt geymasamband eða ónýt kol/alternator?


