var að vippa mér fram úr bíl á leið upp Ártúnsbrekkuna þegar löggan mældi mig á 96 km hraða. Þetta var við fínar aðstæður, gott veður, gott skyggni, etc. Fékk einhvern tíkall í sekt.
Stuttu seinna var hámarkshraðinn þarna hækkaður

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
poco wrote:Mér finnst alltaf jafn gaman þegar fólk er að væla yfir því að lenda í löggunni. Langoftast (ekki samt alltaf) er það meðvituð ákvörðun bílstjórans að fara ekki eftir umferðalögum og þ.a.l. getur ökumaður eingöngu kennt sjálfum sér um.
Sama gildir um umferðaslys. Umferðaslys eru eingöngu ökumönnum að kenna, sama hvað fólk segir (nema náttúrulega ef að t.d. loftsteinn myndi lenda fyrir framan bílinn þinn og þú yrðir að keyra útaf... sem dæmi). Ökumaður ákveður að keyra of hratt, ökumaður keyrir ekki eftir aðstæðum o.s.frv.
Það er algjör óþarfi að fá sektir og peningurinn sem fer í þær getur verið svívirðilegur t.d. að keyra of hratt getur kostað mann allt frá því að geta keypt sér gott vídeótæki uppí nýtt ljósa-kitt eða felgusett á bimmann (jaaa, ef maður kaupir það ekki í gegnum B&L![]()
og fyrir þá sem enn eru ekki búnir að fatta það.... JÁ ég er LÖGGA!
poco wrote:Mér finnst alltaf jafn gaman þegar fólk er að væla yfir því að lenda í löggunni. Langoftast (ekki samt alltaf) er það meðvituð ákvörðun bílstjórans að fara ekki eftir umferðalögum og þ.a.l. getur ökumaður eingöngu kennt sjálfum sér um.
Sama gildir um umferðaslys. Umferðaslys eru eingöngu ökumönnum að kenna, sama hvað fólk segir (nema náttúrulega ef að t.d. loftsteinn myndi lenda fyrir framan bílinn þinn og þú yrðir að keyra útaf... sem dæmi). Ökumaður ákveður að keyra of hratt, ökumaður keyrir ekki eftir aðstæðum o.s.frv.
Það er algjör óþarfi að fá sektir og peningurinn sem fer í þær getur verið svívirðilegur t.d. að keyra of hratt getur kostað mann allt frá því að geta keypt sér gott vídeótæki uppí nýtt ljósa-kitt eða felgusett á bimmann (jaaa, ef maður kaupir það ekki í gegnum B&L
og fyrir þá sem enn eru ekki búnir að fatta það.... JÁ ég er LÖGGA!

Þórir wrote:Ok strákar. Þið segið að það sé einfaldlega rangt, en gefiði mér þá dæmi um hvenær það er ekki öðrum hvorum ökumanninum að kenna. Auðvitað má í mörgum tilvikum segja að það séu einhverjir meðvirkandi þættir en þáttur annars hvors ökumannsins er nánast alltaf áhrifaríkastur!
Svo tók ég þessu kommenti um felgurnar meira sem grín frekar en eitthvað annað. Það er að mínu viti ekkert sérstaklega ódýrt að versla við B&l og hvað þá að kaupa felgur eins og eru seldar þar, enda original felgur sem eru dýrar hvar sem maður kaupir þær.
Annars er nú af þessum málum það helst að segja að það er alltaf auðveldara að kenna löggunni um í þessum málum en ekki sjálfum sér.
Kveðja.
poco wrote:Það hlaut að vera að þú tengdist B&L, JSS.
Með fullri virðingu fyrir þér og B&L, þá get ég ekkert að því gert að blöskra yfir verðinu á varahlutum hér á landi, sérstaklega þar sem að það er farið að færast verulega í aukanna að fólk fari út og versli þetta sjálf fyrir mun minni pening.
Og ef ég hef sært þig, þá biðst ég fyrirgefningar, það var ekki ætlunin.
Users browsing this forum: No registered users and 15 guests