Flísaleggja

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Flísaleggja

Postby bjahja » Thu 20. Dec 2007 13:02

Þar sem það er fullt af fólki hérna sem kann hluti.
Hversu erfitt er að flísaleggja?
það er mega stress hérna, það ætlaði strákur að koma í dag og hjálpa mér að flísaleggja sjónvarpsholið en hann er kominn með lungnabólgu og kemst ekki.
Ég persónulega hef fulla trú á því að ég geti gert þetta sjálfur, sé ekki hvað það er sem er svona mikið mál en það hafa ekki allir hérna jafn mikla trú á mér :lol:
Er þetta ekki bara að vera nákvæmur í mælingu og leggja beint, hvað er svona mega erfitt við þetta?
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby bimmer » Thu 20. Dec 2007 13:05

1-800-ALPINA
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby einarornth » Thu 20. Dec 2007 13:10

Þetta er ekki svo erfitt, sérstaklega ef gólfið vel slétt. Ég mæli samt með að vera með einhvern vanan með sér fyrst.

Ef þú ert þokkalega handlaginn og getur platað einhver vanan með þér fyrsta klukkutímann þá hef ég fulla trú á að þú reddir þessu.
einarornth
Kassabílstjóri
 
Posts: 101
Joined: Wed 08. Aug 2007 10:31

Postby gstuning » Thu 20. Dec 2007 13:14

Gæti verið að flíakappinn sé Haffi sjálfur :)
og hann sé orðinn veikur?
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby fart » Thu 20. Dec 2007 13:21

Að flísaleggja eða líma niður flísar er ekki sami hluturinn. Ég hef límt niður flísar, geri það ekki aftur. Fékk mann til að flísaleggja fyrir mig eftir það.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby bjahja » Thu 20. Dec 2007 13:25

gstuning wrote:Gæti verið að flíakappinn sé Haffi sjálfur :)
og hann sé orðinn veikur?

Jámm :wink:

En auðvitað hefði maður átt að hringja í Alpina, en við erum búin að redda þessu. Það er flísalaggningarmaður á leiðinni til að starta mér 8)

Hver er munurinn að flísaleggja og líma niður flísar?
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby bimmer » Thu 20. Dec 2007 13:42

bjahja wrote:Hver er munurinn að flísaleggja og líma niður flísar?


Árangurinn???? :lol:
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby fart » Thu 20. Dec 2007 13:42

bjahja wrote:
gstuning wrote:Gæti verið að flíakappinn sé Haffi sjálfur :)
og hann sé orðinn veikur?

Jámm :wink:

En auðvitað hefði maður átt að hringja í Alpina, en við erum búin að redda þessu. Það er flísalaggningarmaður á leiðinni til að starta mér 8)

Hver er munurinn að flísaleggja og líma niður flísar?


Annað felur í sér að smyrja líminu á gólfið og leggja flísina í límið. Það geta allir gert.

Hitt felur í sér að reikna út hvar á að byrja til að allir skurðir séu sem jafnastir og þannig að heildar myndin sé sem best. Sá sem kom og flísalagði hjá mér 3ja fermetra bað var heilan dag að pæla í þeim málum, strika á veggin og slíkar æfingar.

Annað læra menn í skóla og verða fagmenn í.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby bjahja » Thu 20. Dec 2007 14:46

Já ok, skil þig
Við fengum einmitt þennan gaur áðann og hann hjálpaði okkur með að ákveða hvenig þetta á að liggja og það allt. Þetta verður mega fínt :D
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Alpina » Thu 20. Dec 2007 16:38

6962021-------- BARA DÝR gaur :P
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby grettir » Thu 20. Dec 2007 16:40

fart wrote:Að flísaleggja eða líma niður flísar er ekki sami hluturinn. Ég hef límt niður flísar, geri það ekki aftur. Fékk mann til að flísaleggja fyrir mig eftir það.


Nákvæmlega. Maður á að gera það sem maður er góður í, fá borgað fyrir það og borga öðrum fyrir að gera það sem maður kann ekki eða er ekki góður í.
Þannig græða allir og maður þarf ekki að læra allt :lol:
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby Astijons » Thu 20. Dec 2007 16:52

að flísaleggja er ekki skemmtilegt...
sérstaklega ef þú ert ekki rólega týpan...

ég hefði alveg eins getað sett sprengju í flísalímið þegar ég var að þessu...

það var ALLT í rugli maður haha


en flott flísalögn! bara mikið að þrífa ...
Astijons
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1035
Joined: Sun 29. Oct 2006 22:38

Postby bjahja » Thu 20. Dec 2007 18:57

Ég er alveg nógu mikill dundari í þetta, gengur vel so far 8)
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Thrullerinn » Thu 20. Dec 2007 19:37

Ef flöturinn er 100% sléttur þá ertu góður með nánast allar flísar, undir-
vinnan er mjög
mikilvæg.

Það er erfitaðara að flísaleggja ef þú er með "granna" fúgu (fúgan er
dótið á milli flísana). 1mm er mjög lítið og 2mm jafnvel líka(því mjórra
því betur sjást misjöfnur).

Forðastu stórar flísar og forðastu enn meira ef þær eru með hvössum kanti.

Þar sem þú ert að fara að flísaleggja gólf og ekki veggi er þetta eilítið
auðveldara..

Leigðu góða sög, ekki einhvern kettling og notaðu hanska og eyrnahlífar,
það eru efni í líminu sem fara afskaplega illa í mann, líka margfalt
þægilegra að vinna vel varinn.

En í heildina, ef undirlagið er gott og þú fúskast ekkert áfram þá ætti þetta að
vera kökubiti ;)
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby bjahja » Thu 20. Dec 2007 22:54

Við erum að leggja þetta ofaná Floore hitadæmi ( www.hringas.is ) flöturinn var eiginlega alveg sléttur undir því, við þurftum að flota smá.
Við erum með 30x60 náttúruflísar, 3mm fúgu, flísarnar eru með hvössum kanti.
Við leigðum stærstu sögina í Byko og erum með hanska (((reyndar ekki heyrnarhlífar en við sögum úti þannig að það er A OK)
Við erum búnir að skipuleggja allt og komnir vel á veg með að líma. Erum bara ánægðir með þetta so far :D
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 65 guests