Hversu erfitt er að flísaleggja?
það er mega stress hérna, það ætlaði strákur að koma í dag og hjálpa mér að flísaleggja sjónvarpsholið en hann er kominn með lungnabólgu og kemst ekki.
Ég persónulega hef fulla trú á því að ég geti gert þetta sjálfur, sé ekki hvað það er sem er svona mikið mál en það hafa ekki allir hérna jafn mikla trú á mér
Er þetta ekki bara að vera nákvæmur í mælingu og leggja beint, hvað er svona mega erfitt við þetta?



