Íslenska Krónan eða Evran?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Íslenska Krónan eða Evran

Íslenska Krónan
30
48%
Evran
33
52%
 
Total votes : 63

Postby fart » Thu 11. Jan 2007 18:10

Um leið og bankarnir yfirgefa krónuna sem eigiðfé og hætta að gera upp í henni þá hætta þeir að mestu viðskiptum með hana. Það fælir aðra fjárfesta frá og þá deyr krónan.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby bebecar » Thu 11. Jan 2007 18:28

fart wrote:Um leið og bankarnir yfirgefa krónuna sem eigiðfé og hætta að gera upp í henni þá hætta þeir að mestu viðskiptum með hana. Það fælir aðra fjárfesta frá og þá deyr krónan.


Er eitthvað víst að bankarnir hætti viðskiptum með krónuna þó þeir hætti að gera upp í henni? Ekki það að ég viti nokkuð um þetta en ég myndi halda að bankarnir myndu frekar kaupa á sömu forsendum og aðrir bankar og fjárfestar hafa keypt krónuna á - óviðkomandi hvort þeir eru að gera upp í henni eða ekki.

:?:

Annars stór efa ég að nokkrum manni sé í mun að halda í krónuna bara vegna þess að hún er KRÓNAN. Íslendingar nota hvort eð er seðla eða mynt í mjög litlu mæli (mætti þessvegna bara færa þetta alfarið yfir í rafrænt, tengt einhverjum tilteknum gjaldmiðli, eins og einhver hagfræðingur heima var að mæla með).
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby fart » Thu 11. Jan 2007 18:32

Ég er á þeirri skoðun að um leið og bankarnir (og aðrir innlendir fjárfestar) verða komnir með meginþorra sinnar áhættu í erlenda gjaldmiðla þá koma þeir ekki til með að taka mikla áhættu í krónuviðskiptum.

ÉG óttast að erlendir fjárfestar komi til með að forða sér út úr krónubréfum í massavís ef bankarnir ákveða að "yfirgefa" krónuna. Áhættan verður bara ekki vaxtamunarins virði. Ég met allavega veikingaráhættu krónunnar meiri en c.a. 8% vaxtamun.

Í dag neyðast bankarnir til þess að taka krónuáhættu, ég er ekki sannfærður um það, en mér finnst það líklegt, að sú áhætta verði minnkuð verulega.

N.b. þetta miðast við það að krónan veikist væntanlega töluvert ef af verður.

N.b. 2. ég hef ekki mikla trú á krónunni persónulega, held að hún geti veikst VERULEGA á næstu misserum. Það verður að teljast líklegt að ég sé þá soldið litaður í skoðunum mínum þar sem ég er ekki með mikla áhættu í krónum í dag persónulega... eða er það öfugt :roll:







kanski er ég bara að kynda ykkur, fá smá umræður í gang.. hehe.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby bebecar » Thu 11. Jan 2007 19:02

Það er nú varla bönkunum í hag að fólk heima tapi stórfé á gengishrapi - það myndi í öllu falli gera fólki erfiðara að standa við sínar skuldbindingar, húsnæðislán og neyslulán.

Ég held að menn muni reyna að finna mýkstu leiðina til að skipta krónunni út og það líklega á næsta kjörtímabili - hvaða lausn verður fyrir valinu hef ég ekki hugmynd um en það er rétt hjá Jóni Þóri að ójafnvægið heima er ekki að öllu leiti krónunni að kenna - þetta er lítið hagkerfi með örar sveiflur.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby fart » Thu 11. Jan 2007 19:06

bebecar wrote:Það er nú varla bönkunum í hag að fólk heima tapi stórfé á gengishrapi - það myndi í öllu falli gera fólki erfiðara að standa við sínar skuldbindingar, húsnæðislán og neyslulán.

Ég held að menn muni reyna að finna mýkstu leiðina til að skipta krónunni út og það líklega á næsta kjörtímabili - hvaða lausn verður fyrir valinu hef ég ekki hugmynd um en það er rétt hjá Jóni Þóri að ójafnvægið heima er ekki að öllu leiti krónunni að kenna - þetta er lítið hagkerfi með örar sveiflur.


IMO þá er CRAZY fyrir venjulega íslenska launamenn að spekúlera svona með sinn fjárhag. Fólk sem er ekki með neinar eigur í erlendu, eða tekjur í erlendu á ekki að taka svona sénsa. Held að margir vanmetti stórlega áhættuna við gjaldmiðlatryggð lán.

En jú sammála, íslenska hagkerfið er míkrókerfi, minna en mörg meðalstór alþjóðleg fyrirtæki. Einn slæmur fjórðungur þarf ekkert að þýða dauða. Íslandi hefur oft verið líkt við sportbát í höfn stórra skemtiferðaskipa. Við getum tekið marga hringi á meðan aðrir eru bara hálfnaðir í hagsveiflubegjunni.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby bebecar » Thu 11. Jan 2007 19:15

fart wrote:
IMO þá er CRAZY fyrir venjulega íslenska launamenn að spekúlera svona með sinn fjárhag. Fólk sem er ekki með neinar eigur í erlendu, eða tekjur í erlendu á ekki að taka svona sénsa. Held að margir vanmetti stórlega áhættuna við gjaldmiðlatryggð lán.


Útskýrðu nánar, annað hvort er ég að misskilja þig eða þú mig :D
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby fart » Thu 11. Jan 2007 19:25

Ef þú ert með ójafnvægi í innstreymi og útstreymi á ákveðnum gjaldmiðlum þá ertu að taka gjaldeyrisveðmál.

Mér finnst persónulega út úr korti fyrir fólk sem er ekki on top of things hour by hour að taka gjaldeyrisbet.

Fólk sem á hús á spáni má alveg skulda Evrur, þ.e. ef það er að leigja húsið relgulega út á evrur (eins og er algengt).

Maður sem er með laun í íslenskum krónum á ekki að skulda í evrum (yenum, CHF eða öðru). Tekjurnar eru að sveiflast á allt öðrum forsendum en gjöldin. Pure gjaldeyrisspekúlation. Hvað gerist ef verðbólga fer upp... í flestum tilvikum fara launin upp. Hvað gerist ef krónan fellur? Lánið hækkar en ekki launin.

Ég hef það á tilfinningunni að allmargir sem eru að taka "erlend" lán á bílana eða húsin geri sér enga grein fyrir gjaldmiðlaáhættunni, og líti bara á hver greiðslan er "núna", ekki hver hún gæti orðið. í dag er vaxtamunurinn 8%.. hvað veiktist krónan mikið á einum mánuði í vor?

Mín skoðun er .. ef þú hefur ekki efni á local vöxtum, þá hefur þú ekki efni á hlutnum. Ef þú þarft að taka erlenda vexti til að eiga fyrir afborguninni þá hefur þú ekki efni á áföllunum sem geta orðið.

Ég veit að þetta á ekki við í öllum tilvikum, en samt ansi mörgum.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby bebecar » Thu 11. Jan 2007 19:30

fart wrote:Ef þú ert með ójafnvægi í innstreymi og útstreymi á ákveðnum gjaldmiðlum þá ertu að taka gjaldeyrisveðmál.

Mér finnst persónulega út úr korti fyrir fólk sem er ekki on top of things hour by hour að taka gjaldeyrisbet.

Fólk sem á hús á spáni má alveg skulda Evrur, þ.e. ef það er að leigja húsið relgulega út á evrur (eins og er algengt).

Maður sem er með laun í íslenskum krónum á ekki að skulda í evrum (yenum, CHF eða öðru). Tekjurnar eru að sveiflast á allt öðrum forsendum en gjöldin. Pure gjaldeyrisspekúlation. Hvað gerist ef verðbólga fer upp... í flestum tilvikum fara launin upp. Hvað gerist ef krónan fellur? Lánið hækkar en ekki launin.

Ég hef það á tilfinningunni að allmargir sem eru að taka "erlend" lán á bílana eða húsin geri sér enga grein fyrir gjaldmiðlaáhættunni, og líti bara á hver greiðslan er "núna", ekki hver hún gæti orðið. í dag er vaxtamunurinn 8%.. hvað veiktist krónan mikið á einum mánuði í vor?

Mín skoðun er .. ef þú hefur ekki efni á local vöxtum, þá hefur þú ekki efni á hlutnum. Ef þú þarft að taka erlenda vexti til að eiga fyrir afborguninni þá hefur þú ekki efni á áföllunum sem geta orðið.

Ég veit að þetta á ekki við í öllum tilvikum, en samt ansi mörgum.


Ahhhh þú meinar, ég var bara að tala um húsnæðislán og neyslulán (ekki myntkörfulán) - gerði bara ráð fyrir að fólk væri að taka þau í krónum, en það er semsagt ekki tískan í dag eða hvað?

En vissulega - það er ansi áhættusamt ef engar eru eignirnar erlendis (eða tekjurnar). Mjög Íslenskt samt :lol:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby fart » Thu 11. Jan 2007 19:37

Gengishrap hefur hverfandi áhrif á þá sem skulda í krónum, ef þeir eru með tekjur í krónum.

Þeir sem skulda í krónum og eru með tekjur í erlendu gætu upplifað "verðbólgugjöf" líkt og foreldra þeirra gerðu in the 80's
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby jonthor » Thu 11. Jan 2007 20:09

Þrátt fyrir að vera ósammála þér um að krónan sé ónýt er ég sammála að það er hætta á mikilli veikingu á næstunni. Við vitum ekkert hver þolinmæði erlendra fjárfesta er fyrir áframhaldandi ójafnvægi í efnahagsmálum og downgrade á ríkinu. Krónan getur vel veikst hressilega á næstu misserum.
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby Giz » Thu 11. Jan 2007 20:39

fart wrote:Gengishrap hefur hverfandi áhrif á þá sem skulda í krónum, ef þeir eru með tekjur í krónum.

Þeir sem skulda í krónum og eru með tekjur í erlendu gætu upplifað "verðbólgugjöf" líkt og foreldra þeirra gerðu in the 80's


Þá verð ég bara að vona að gerist þó svo ég skuldi ekkert á Íslandi, þarf maður að taka lán þar í hvelli sum sé, enda búinn að vera með tekjur lengi bæði í dollurum og evrum, einkar hvimleitt stundum. Alltaf gaman að hafa bankaviðskipti í mörgum löndum 8)

Hitt er að ég er hvorki viðskipta- né hagfræðingur og læt spámennina um að hafa vit á því. Hinsvegar þekki ég þessi Evrópumál mjög vel gegnum nám, skrif og vinnu og Ísland er ekkert á leið í EU á næstunni, þaðan af síður í EMU. Þannig er það bara, forsendur þess eru ekki til staðar, punkur. Auk þess þarf hvert aðildarríki að samþykkja aðild okkar, það þarf nýjann treaty, aðildarríkjum er í sjálfsvald sett hvort þau setja inngöngu Íslands í þjóðaratkvæðagreiðslu osfr. Einnig er röðin orðin ansi löng og pólitískur vilji er ekki til staðar næstu árin að henda Íslandi inn, það eru ansi mörg austur Evrópulönd sem dæmi á undan í röðinni. Og svo framvegis.

G
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 72 guests