fart wrote:Um leið og bankarnir yfirgefa krónuna sem eigiðfé og hætta að gera upp í henni þá hætta þeir að mestu viðskiptum með hana. Það fælir aðra fjárfesta frá og þá deyr krónan.
bebecar wrote:Það er nú varla bönkunum í hag að fólk heima tapi stórfé á gengishrapi - það myndi í öllu falli gera fólki erfiðara að standa við sínar skuldbindingar, húsnæðislán og neyslulán.
Ég held að menn muni reyna að finna mýkstu leiðina til að skipta krónunni út og það líklega á næsta kjörtímabili - hvaða lausn verður fyrir valinu hef ég ekki hugmynd um en það er rétt hjá Jóni Þóri að ójafnvægið heima er ekki að öllu leiti krónunni að kenna - þetta er lítið hagkerfi með örar sveiflur.
fart wrote:
IMO þá er CRAZY fyrir venjulega íslenska launamenn að spekúlera svona með sinn fjárhag. Fólk sem er ekki með neinar eigur í erlendu, eða tekjur í erlendu á ekki að taka svona sénsa. Held að margir vanmetti stórlega áhættuna við gjaldmiðlatryggð lán.
fart wrote:Ef þú ert með ójafnvægi í innstreymi og útstreymi á ákveðnum gjaldmiðlum þá ertu að taka gjaldeyrisveðmál.
Mér finnst persónulega út úr korti fyrir fólk sem er ekki on top of things hour by hour að taka gjaldeyrisbet.
Fólk sem á hús á spáni má alveg skulda Evrur, þ.e. ef það er að leigja húsið relgulega út á evrur (eins og er algengt).
Maður sem er með laun í íslenskum krónum á ekki að skulda í evrum (yenum, CHF eða öðru). Tekjurnar eru að sveiflast á allt öðrum forsendum en gjöldin. Pure gjaldeyrisspekúlation. Hvað gerist ef verðbólga fer upp... í flestum tilvikum fara launin upp. Hvað gerist ef krónan fellur? Lánið hækkar en ekki launin.
Ég hef það á tilfinningunni að allmargir sem eru að taka "erlend" lán á bílana eða húsin geri sér enga grein fyrir gjaldmiðlaáhættunni, og líti bara á hver greiðslan er "núna", ekki hver hún gæti orðið. í dag er vaxtamunurinn 8%.. hvað veiktist krónan mikið á einum mánuði í vor?
Mín skoðun er .. ef þú hefur ekki efni á local vöxtum, þá hefur þú ekki efni á hlutnum. Ef þú þarft að taka erlenda vexti til að eiga fyrir afborguninni þá hefur þú ekki efni á áföllunum sem geta orðið.
Ég veit að þetta á ekki við í öllum tilvikum, en samt ansi mörgum.
fart wrote:Gengishrap hefur hverfandi áhrif á þá sem skulda í krónum, ef þeir eru með tekjur í krónum.
Þeir sem skulda í krónum og eru með tekjur í erlendu gætu upplifað "verðbólgugjöf" líkt og foreldra þeirra gerðu in the 80's
Users browsing this forum: Google [Bot] and 40 guests