Gunni benti mér á að stilla AFM hjá mér útaf lausaganginum.
Búinn að færa svörtu skífuna fram og til baka, og er þetta í dag þannig að þegar hann er kaldur er hann stöðugur í 1500-1800 snúningum, sem er alltof mikið BTW! en þegar vélin hitnar þá byrjar hann að hoppa upp og niður í snúningum í lausagangi, MJÖG PIRRANDI.
En tók eftir því um daginn að sú hurð sem er loftsíumegin í AFM-inu er skökk, hún hallar um einhverjar gráður. Er þetta eðlilegt eða er hægt að skrúfa þessa hurð eitthvað þannig hún halli rétt?


