bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 19. Jun 2025 05:47

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 41 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next

Íslenska Krónan eða Evran
Íslenska Krónan 48%  48%  [ 30 ]
Evran 52%  52%  [ 33 ]
Total votes : 63
Author Message
PostPosted: Mon 08. Jan 2007 11:09 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Wed 13. Apr 2005 18:27
Posts: 1452
Smá umræða líðandi stundar :)
Rökstyðjið thank jú


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Jan 2007 11:50 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Hvernig væri að skilgreina möguleikana... :wink:

Hvað meinarðu með Evran (þú getur ekki tekið upp evru, nema ganga í EU)? Taka upp sama gengi, ganga í Evrópusambandið eða hafa myntlaust hagkerfi með evrugengi... eða hvað?

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Jan 2007 12:12 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 13. Sep 2004 18:02
Posts: 469
m.v reynslu spánverja af evrunni þá er ég alfarið á móti evrunni :S persónulega.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Jan 2007 12:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Posts: 5953
Location: Akranes
Ég sem neytandi er mjög efins um að Evran komi til með að gera okkur gott. Það virðist vera algilt að við að breyta um gjaldmiðill þá hækkar
allt um leið, þekki bæði til í Hollandi og Spáni þar sem almenningur
er á einu máli um að verðlag hafi stór hækkað.
Svo er annað að krónan hefur verið notur sem stýritæki í Íslensku
efnahagskerfi og hvort við megum við því að missa það er spurning. En á móti þá myndi þetta áræðanlega þjóna útfluttningsfyrirtækjum vel.
.

_________________
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Jan 2007 15:22 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Posts: 1721
Location: 1 2 Selfoss
Það er enginn vafi á því að evran kæmi íslensku viðskiptalífi vel. En sem neytandi verð ég að vera á móti henni því reynslan sýnir að þeir sem hafa farið verst út úr evrunni eru neytendur. Jens nefnir holland og spán og ég nefni ítalíu. Þar hækkaði allt þegar evran kom; allt nema launin.

_________________
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Jan 2007 15:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Posts: 5953
Location: Akranes
Það er gott að þú komst inn á þetta með launin.

_________________
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Jan 2007 16:33 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Wed 13. Apr 2005 18:27
Posts: 1452
bebecar wrote:
Hvernig væri að skilgreina möguleikana... :wink:

Hvað meinarðu með Evran (þú getur ekki tekið upp evru, nema ganga í EU)? Taka upp sama gengi, ganga í Evrópusambandið eða hafa myntlaust hagkerfi með evrugengi... eða hvað?


Já sorry, hefði átt að orða spurninguna mun betur.
Vildi sjá skoðun ykkar á hvort að Ísland ætti að taka upp evruna með
viðeigandi breytingum á efnahagskerfinu, eða ætti að halda gömlu góðu
Íslensku krónunni.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Jan 2007 17:16 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Eftir því sem ég best veit þá er ekki hægt að taka upp Evru nema ganga í Evrópusambandið.

Hinsvegar er hægt að tengja gjaldmiðilinn við Evruna án þess að ganga í EU...

það eru nú örugglega einhverjir fjármálasnillingar hérna sem geta útskýrt þetta betur ef þetta er ekki rétt eða eitthvað loðið hjá mér.

EN miðað við þetta, þá er tómt mál að tala um upptöku evru. Í það minnsta hugnast mér ekki það batterí sem Evrópusambandið er...

Þessi mynd setur hlutina í samhengi og gefur ágætis hugmynd um regluverkið sem um er að ræða.

Hér eru stjórnarskrár EU, USA og Íslands...

Image

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Jan 2007 19:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Posts: 4108
Location: 101
bebecar wrote:
Eftir því sem ég best veit þá er ekki hægt að taka upp Evru nema ganga í Evrópusambandið.

Hinsvegar er hægt að tengja gjaldmiðilinn við Evruna án þess að ganga í EU...

það eru nú örugglega einhverjir fjármálasnillingar hérna sem geta útskýrt þetta betur ef þetta er ekki rétt eða eitthvað loðið hjá mér.

EN miðað við þetta, þá er tómt mál að tala um upptöku evru. Í það minnsta hugnast mér ekki það batterí sem Evrópusambandið er...

Þessi mynd setur hlutina í samhengi og gefur ágætis hugmynd um regluverkið sem um er að ræða.

Hér eru stjórnarskrár EU, USA og Íslands...

Image


Mitt atkvæði fór í evruna þó svo að ég hafi ekki kynnt mér þessi sambönd
og hvaða skyldur fylgja þeim. En erum við ekki alltaf að reyna að vernda
fiskveiðarnar okkar? Núna er hinsvegar komin svo staða að hátækni-
iðnaðurinn er kominn fram úr fiskveiðunum!

En hvað varðar dagsdaglegt líf á ársgrundvelli þá eru þessar blessuðu
sveiflur ansi þreytandi, fyrirtæki og einstaklingar geta hreinlega ekki
unnið á móti þessu nema með að taka upp evruna.

_________________
Carrera4 964 '91


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Jan 2007 20:50 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Posts: 827
Location: Erlendis
bebecar wrote:
Eftir því sem ég best veit þá er ekki hægt að taka upp Evru nema ganga í Evrópusambandið.

Hinsvegar er hægt að tengja gjaldmiðilinn við Evruna án þess að ganga í EU...

það eru nú örugglega einhverjir fjármálasnillingar hérna sem geta útskýrt þetta betur ef þetta er ekki rétt eða eitthvað loðið hjá mér.

EN miðað við þetta, þá er tómt mál að tala um upptöku evru. Í það minnsta hugnast mér ekki það batterí sem Evrópusambandið er...

Þessi mynd setur hlutina í samhengi og gefur ágætis hugmynd um regluverkið sem um er að ræða.

Hér eru stjórnarskrár EU, USA og Íslands...

Image


Sko, í fyrsta lagi hefur EU ekki stjórnarskrá. EU er og hefur alltaf verið byggt af nokkrum samþykktum, þeirri fyrstu frá 1951, sem stofnaði það sem á þeim tíma hét ESCS, European Coal and Steel Community fylgt af Treaty of Rome, Amsterdam og Nice, 1957, 1997 og 2003 minnir mig. Hver viðauki bætir fullt af stöffi við auk þess sem það eru fleiri samþykktir svo sem SEA, Single European Act sem stofnaði Single European Market og Treaty of the European Union sem stofnaði EU eins og við þekkjum það í dag. Í millitíðinni hét það svo EEC, eða European Economic Community, eftir Treaty of Rome, 1957 minnir mig, nenni ekki að fletta því upp.

Stjórnarskrá EU sem sum ríki felldu jú var og er til þess fallin að einfalda allt þetta samþykktafargan og hafa allt á einum stað.

Varðandi Evruna þá er allt hægt. Það er hægt að tengja krónu við Evru eins og bent hefur verið en það er líka hægt að taka upp Evru einhliða. Sem dæmi þá er Evra í Kosovo og Montenegro hefur einnig Evru, man ekki fleiri í bili. Hinsvegar ertu þá bara með evru án þess að hafa nokkuð að segja og ákvarðanir ECB svo sem varðandi vexti og annað hafa ekki áhrif og þar af leiðandi er sú leið ekki fær, nema ef vera skyldi að hinn kosturinn sé Serbneskur Dínar sem þú vilt ekki sjá sökum sjálfstæðisbaráttu eða álíka.

Þannig að í raun er tómt mál að tala um upptöku Evru án aðild að EU. Ég er mikill Evrópusinni en engu að síður ansi gagnrýninn á þeirra starfsemi að mörgu leyti sem ég nenni ekki að fara út í hér enda orðið allt og langt nú þegar.

Miðað við efnahafsástand á Íslandi er langt í land að Evru eða aðild að EU verði aktúel þar sem Ísland er langt frá því að uppfylla skilyðri varðandi t.d. vexti og viðskiptahalla. Þó má nefna að Grikkirnir sem dæmi svindluðu sér inn í Evrudæmið með því að ljúga til og stunda léttar sögufalsanir.

Hinsvegar er ég fylgjandi Evru upptöku þar sem núverandi ástand getur ekki gengið til lengdar. Ég er sannfærður að það skili sér til neytenda því þó eitthvað, eða allt annað en laun hækki kannski eins og hefur reynst raunin sumsstaðar þá er annað sem "á" að koma í staðinn svo sem þak á vexti ákvarðað af ECB osfr.

Smá innlegg í umræðuna :lol:

G

PS. Eitt varðandi stjórnarskrámyndina frá Ingvari. Stjórnarskrár landa eru verkfæri viðkomandi landa og lönd eiga að fara eftir sinni eigin stjórnarskrá að sjálfsögðu. EU er ekki og verður ekki Supranational Institution, þ.e. líkt og USA þar sem hausinn segir og limirnir fylgja. EU er Intergovernmental Instutution með að sumu leyti Quasi Supranational tendensum. Svo lengi sem Euro skeptísk lönd líkt og UK, DK og Svíþjóð sem dæmi eru með í EU verður það aldrei Supranational og því er tómt mál og ekki hægt per se að líkja stjórnarskrá lands saman við EU´s.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 08. Jan 2007 21:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Mér finnst samt voða skrítið að halda að evran geti gengið þegar um svona mörg ólík lönd er að ræða. Hagkerfinn eru langt frá því að vera eins o.s.frv. Enda eru víst komnir einhverjir brestir í þetta. Þjóðverjarnir eru t.d. ekkert allt of ánægðir þessa daganna. Það eru nokkur lönd sem eru þáttakendur í evrunni sem eru ekki að standa við sínar skuldbindingar, ég myndi ekki vilja vera aðilli að gjaldmiðli sem getur veikst útaf lélegu efnahags ástandi í öðrum löndum.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 09. Jan 2007 10:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
Mér er farin að leiðast þessi umræða ansi mikið, þá sérstaklega í fjölmiðlum. Stjórnmálamenn með mismikið vit á málinu láta eins og það sé einhver lausn á vandamálum lítils hagkerfis að taka upp evru. Staðreyndin er sú að þær sveiflur sem koma fram í gjaldmiðlinum í dag, vegna ójafnvægis í hagkerfinu, myndu einfaldlega koma fram annarsstaðar (t.d. verðbólgu) ef við tækjum upp evru eða festum gengi krónunnar við Evru. Upptaka evru er ekki á nokkurn hátt lausn á því vandamáli sem veldur sveiflunum í krónunni í dag.

Svo er það á hreinu að við tökum ekki upp evru sem gjaldmiðil án þess að ganga í evrópusambandið og guð forði okkur frá því. Við höfum allt það besta sem EU hefur upp á að bjóða í gegnum EES án þess að hafa gallana og það eru engir smá bögglar sem fylgja þessu batteríi. Þetta væri stórt skref afturábak fyrir Ísland.

Svo eru fjármálafyrirtæki að taka upp evruna þessa dagana. Ætli Kaupþing geri það ekki á endanum. Þá nýta stjórnmálamenn aftur tækifærið og tala um tvöfalt hagkerfi. Hvaða tvöfalda hagkerfi er þetta? Kaupþing sem dæmi fær 70% af tekjunum sínum í erlendri mynt! Hvað er eðlilegra en að þeir fari því að gera upp í annari mynt? Þessi umræða tengist einfaldlega ekki málinu. Ef norskt fyrirtæki sem fær bróðurpartinn af sínum tekjum frá USA byrjar að gera upp í USD er þá eitthvað að norsku krónunni?

Allavega er niðurstaðan í málinu að upptaka evru leysir nákvæmlega engin vandamál. Það færir bara vandamálið á annað form og bætir við nýjum efnahagslegum bögglum á íslenska skattgreiðendur.

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 09. Jan 2007 11:35 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Posts: 827
Location: Erlendis
Quote:
Svo er það á hreinu að við tökum ekki upp evru sem gjaldmiðil án þess að ganga í evrópusambandið og guð forði okkur frá því. Við höfum allt það besta sem EU hefur upp á að bjóða í gegnum EES án þess að hafa gallana og það eru engir smá bögglar sem fylgja þessu batteríi. Þetta væri stórt skref afturábak fyrir Ísland.


Vissulega hárrét þó svo að það sé spurning hvort guð geti eitthvað forðað okkur frá því eður ei.

Hitt er annað að EES samstarf mun að einhverjju leyti lognast útaf á næstu árum. Við tökum að upp minnir mig um 80% af reglum EU í gegnum EES og höfum í mörg ár fengið súper díl hvað það varðar en það er líka að fjara út. Ég man ekki hvaða EU plagg ég var að lesa um daginn og nenni ekki að leita að því, en EU er að verða fjandsamlegra EES og EFTA, allt það samstarf er að verða mun, mun dýrara, Sviss er að draga sig út úr EFTA að ýmsu leyti og minnka allt sitt umstang og umfram allt að minnka sín fjárframlög.

Það þýðir heldur ekki að bera Ísland saman við Sviss þar sem Sviss hefur allt aðra samninga við EU en Ísland eða Noregur, enda sniðugir andskotar og vel staðsettir í Evrópu.

Þó svo EU sé mikið bákn má ekki gleyma hvað það hefur áunnið á rúmum 50 árum. Fyrst og fremst jú megintilgang þess í upphafi, að halda friði í Evrópu, í þessari meiningu í byrjun vestur Evrópu og síðar sköpun sameiginlegs markaðar sem Ísland nýtur aðildar að í gegnum EES og síðast en ekki síst stækkun EU. Það má því segja að EU sé enn að framfylgja upphaflegum markmiðum sínum, þ.e. að framfylgja og stuðla að friði í Evrópu, núna bara í austur Evrópu.

Ég gæti svo sem haldið áfram lengi enda skrifað mjög mikið um þetta en sleppi ykkur við það. Hitt er að ef Ísland færi einhverntímann í EU gæti það gert það á ágætis forsendum.

Hitt er að Ísland mun eflaust fylgja Noregi í þessum efnum og vica versa en það verður fróðlegt að fylgjast með þessu.

Það er samt magnað að eins og Jón Þór segir að menn séu að tala um að taka upp evru þegar engar forendur eru fyrir því aðrar en innganga í EU, ekki beint ábyrg umræða, væri ekki frekar að byrja á byrjuninni??

G


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 09. Jan 2007 13:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
Jú hárrétt, umræðan er ekki byggð á réttum forsendum. Það er líka rétt að EU er að verða fjandsamlegra í garð EES samningsins einmitt á þeim forsendum að þar fáum við svo mikið af "góðu hliðum" EU án þess að þurfa að bera þær skuldbindingar sem EU hefur komið sér í.

Í framtíðinni getur vel farið svo að EES samningurinn muni ekki ganga upp. Fyrst og fremst hefur Ísland hagnast á frjálsri verslun og frjálsu flæði peningamagns í gegnum þann samning. Það er stór forsenda fyrir opna hagkerfinu okkar á Íslandi. Ísland þarf á slíkum samningi að halda og ég vona að það þurfi ekki að vera í formi aðildar að EU í framtíðinni.

Stóru ástæðurnar fyrir óánægju minni með EU eru í fyrsta lagi að stofnendur framfylgja ekki eigin lögum/skorðum. Sérstaklega má þar nefna Þýskaland og Frakkland í samhengi við evruna þegar um er að ræða þær skorður sem settar eru á halla á ríkissjóð og verðbólgu. Þessar skorður eru líka stór ástæða þess að ég hef ekki trú á evrunni sem gjaldmiðli til lengri tíma. Það er einfaldlega ekki hægt að framfylgja þessum skorðum með svona mismumandi lönd innanborðs.

Önnur ástæða eru þær skuldbindingar sem EU hefur lagt í. Hátt í 50% af tekjum EU fer í styrki s.s. landbúnaðarstyrki. Slíkt kerfi er mjög slæmt og kemur sér allra verst fyrir fátækar þjóðir í útflutningi til EU. Bandaríkin eru reyndar sek um svipað rugl.

Svo má bæta við lífeyrisskuldbindingum Þýskalands og Frakklands. EU mun með einum eða öðrum hætti lenda í vandræðum vegna þessara skuldbindinga. Þýskaland og Frakkland leggja ekki fyrir peninga í einkarekin sérhæfð fyrirtæki sem fjárfesta fyrir einstaklingana, heldur tryggir ríkið lífeyrir í formi framtíðarskatta á næstkomandi kynslóðir. Þetta kerfi er hræðilegt til lengri tíma, sérstaklega þar sem hlutfall ellilífeyrisþega á móti vinnandi fólki fer sífellt hækkandi. Ísland er með eitt allra besta lífeyriskerfi í heimi og vonandi getum við verið laus við að bera ábyrgð á ábyrgðarleysi þessara ríkja.

Það eru hins vegar margar góðar hliðar á EU eins og bent hefur verið á. Mín skoðun er þó sú að ókostirnir yfirvegi sterkt kostina, a.m.k. á meðan EES samningurinn er í gildi. Svo er spurning hvernig það fer til lengri tíma. En það er hægt að halda áfram endalaust í þessari umræðu og eiginlega besta mál að taka hana frekar yfir bjór með nægan tíma :)

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 09. Jan 2007 14:22 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Posts: 827
Location: Erlendis
Alltaf gaman að rofla á netinu og ég er svo sannarlega til í bjórinn hvenær sem er :D

Quote:
Önnur ástæða eru þær skuldbindingar sem EU hefur lagt í. Hátt í 50% af tekjum EU fer í styrki s.s. landbúnaðarstyrki. Slíkt kerfi er mjög slæmt og kemur sér allra verst fyrir fátækar þjóðir í útflutningi til EU. Bandaríkin eru reyndar sek um svipað rugl.


Hárrétt, og það magnaða er að þetta er mun hærri tala en 50% Fyrir ekki svo mörgum árum síðan var talan um eða yfir 80% allra útgjalda EU! Nokkur lönd standa í vegi fyrir að afnema CAP eða Common Agricultural Policy, þ.á.m. Bretland, enda fær jú Harry prins manna mest frá EU í landbúnaðarstyrki því hann er jú svo mikill bóndi. Reyndar er þetta frá stofnun ECSC enda ætlað upprunalega til að styrkja landbúnað eftir stríð. Ruglið getur verið óendanlegt og vissulega eru ammríkanarnir í því sama, álíka bull og Fair Trade.

Enda er EU í identity krísu. Það veit ekki hvað það vill vera og er í allar áttir. Nær gæti verið að nota það sem mjög vel hefur gefist og skera niður í hinu, enda verður aldrei til eitt Evrópskt ríki.


G


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 41 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 30 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group