bebecar wrote:
Eftir því sem ég best veit þá er ekki hægt að taka upp Evru nema ganga í Evrópusambandið.
Hinsvegar er hægt að tengja gjaldmiðilinn við Evruna án þess að ganga í EU...
það eru nú örugglega einhverjir fjármálasnillingar hérna sem geta útskýrt þetta betur ef þetta er ekki rétt eða eitthvað loðið hjá mér.
EN miðað við þetta, þá er tómt mál að tala um upptöku evru. Í það minnsta hugnast mér ekki það batterí sem Evrópusambandið er...
Þessi mynd setur hlutina í samhengi og gefur ágætis hugmynd um regluverkið sem um er að ræða.
Hér eru stjórnarskrár EU, USA og Íslands...

Sko, í fyrsta lagi hefur EU ekki stjórnarskrá. EU er og hefur alltaf verið byggt af nokkrum samþykktum, þeirri fyrstu frá 1951, sem stofnaði það sem á þeim tíma hét ESCS, European Coal and Steel Community fylgt af Treaty of Rome, Amsterdam og Nice, 1957, 1997 og 2003 minnir mig. Hver viðauki bætir fullt af stöffi við auk þess sem það eru fleiri samþykktir svo sem SEA, Single European Act sem stofnaði Single European Market og Treaty of the European Union sem stofnaði EU eins og við þekkjum það í dag. Í millitíðinni hét það svo EEC, eða European Economic Community, eftir Treaty of Rome, 1957 minnir mig, nenni ekki að fletta því upp.
Stjórnarskrá EU sem sum ríki felldu jú var og er til þess fallin að einfalda allt þetta samþykktafargan og hafa allt á einum stað.
Varðandi Evruna þá er allt hægt. Það er hægt að tengja krónu við Evru eins og bent hefur verið en það er líka hægt að taka upp Evru einhliða. Sem dæmi þá er Evra í Kosovo og Montenegro hefur einnig Evru, man ekki fleiri í bili. Hinsvegar ertu þá bara með evru án þess að hafa nokkuð að segja og ákvarðanir ECB svo sem varðandi vexti og annað hafa ekki áhrif og þar af leiðandi er sú leið ekki fær, nema ef vera skyldi að hinn kosturinn sé Serbneskur Dínar sem þú vilt ekki sjá sökum sjálfstæðisbaráttu eða álíka.
Þannig að í raun er tómt mál að tala um upptöku Evru án aðild að EU. Ég er mikill Evrópusinni en engu að síður ansi gagnrýninn á þeirra starfsemi að mörgu leyti sem ég nenni ekki að fara út í hér enda orðið allt og langt nú þegar.
Miðað við efnahafsástand á Íslandi er langt í land að Evru eða aðild að EU verði aktúel þar sem Ísland er langt frá því að uppfylla skilyðri varðandi t.d. vexti og viðskiptahalla. Þó má nefna að Grikkirnir sem dæmi svindluðu sér inn í Evrudæmið með því að ljúga til og stunda léttar sögufalsanir.
Hinsvegar er ég fylgjandi Evru upptöku þar sem núverandi ástand getur ekki gengið til lengdar. Ég er sannfærður að það skili sér til neytenda því þó eitthvað, eða allt annað en laun hækki kannski eins og hefur reynst raunin sumsstaðar þá er annað sem "á" að koma í staðinn svo sem þak á vexti ákvarðað af ECB osfr.
Smá innlegg í umræðuna
G
PS. Eitt varðandi stjórnarskrámyndina frá Ingvari. Stjórnarskrár landa eru verkfæri viðkomandi landa og lönd eiga að fara eftir sinni eigin stjórnarskrá að sjálfsögðu. EU er ekki og verður ekki Supranational Institution, þ.e. líkt og USA þar sem hausinn segir og limirnir fylgja. EU er Intergovernmental Instutution með að sumu leyti Quasi Supranational tendensum. Svo lengi sem Euro skeptísk lönd líkt og UK, DK og Svíþjóð sem dæmi eru með í EU verður það aldrei Supranational og því er tómt mál og ekki hægt per se að líkja stjórnarskrá lands saman við EU´s.