Auðvitað er fínt að stoppa, reglulega. Það gera allir, fyrir mína parta finnst mér samt fúlt þegar maður er farinn að stoppa of oft bara til að taka bensín. Ég næ svona 450 km á Golfinum í langkeyrslu og finnst það alltof lítið milli stoppa.
Þetta skiptir líka orðið talsverðu máli á löngum ferðum, ef maður er á annað borð að flýta sér.
Aðallega virkar þetta eins og hugsunarleysi að setja ekki stærri tanka í bíla sem að eru að eyða miklu meira en standard bíllinn. það er þá væntanlega sama stærð af tank í 530d og miðað við eyðslu þar þá ætti hann að komast ansi langt á 70 lítra tank.
En ég meina - auðvitað er þetta ekkert stór mál, ef þið væruð að leita ykkur að mile muncher þá hefðuð þið líklega farið í 530d eða 535d...
En, óneitanlega takmarkar þetta hve effektívur M5 er sem átóban krúser, í lengri vegalengdum, og það eru einu staðirnir þar sem maður getur notað hraðann löglega (fyrir utan brautarkeyrslu, þar sem eyðsla skiptir nákvæmlega engu máli).
Aðalsmerki M5 hefur þó alltaf verið það að vera massívt effektívur á öllum sviðum - það er ekki við neinu öðru að búast en að menn verði að fórna langdrægni á bíl sem að er á pari við Lamborghini Gallardo (eða hraðari)...
Í E34 var hægt að fá aukatank sem kom á milli aftursætanna við demparaturnana, sá bætti við 20 lítrum og spillir auðvitað farangurs rýminu. Ég yrði ekki hissa að sjá slíkann aukabúnað skjóta upp kollinum ef langdrægnin er á annað borð að fara í taugarnar á mönnum - en ef það er ekki fáanlegt í E39, þá veit maður ekki...