bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 14. Jun 2025 17:43

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 45 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next
Author Message
PostPosted: Thu 15. Dec 2005 02:21 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40
Posts: 3976
Núna vil ég fá lýsingar á bílunum ykkar.

Hinsvegar eru reglur sem hljóða svo:

Bannað er að pósta öðru en BMW

Bannað er að pósta án þess að vera með lýsingu á bílnum (Ekkert off topic, einungis lýsingar á bílum)

Helst með myndum


Eftirfarandi spurningar er mælt með að svara:

Byrja á því að kynna bílinn t.d "E30 325 beinskiptur)

Hvernig höndlar bíllinn

Eyðsla

Rekstur

Skemmtanagildi

Þægindi

Hversu lengi þið hafið átt bílinn

Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW

Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl

og endilega koma með fleiri tillögur að spurningum


Vona að sjá sem flest svör, alltaf gaman að fræðast meira um BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Dec 2005 08:55 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
Bíllinn minn : 4 dyra E30 320i beinskiptur breyttur í 325i beinskiptann. Alpina hvítur, með mjög góðu lakki miðað við aldur.

Hvernig höndlar bíllinn : bíllinn var með ömurlega fjöðrun þegar ég fékk hann, byrjaði á að láta lækka hann 40/40 með KW gormum... við það var fjöðrunin svolítið dodgy... setti á endanum bilstein m tech dempara að aftan og KW framdempara, strutbrace framan og aftan.... með þetta modd þá er bílinn að höndla rosalega vel... skarpur og öruggur í beygjum... planið er þá að setja KW dempara að aftan þegar fjárhagurinn leyfir.

Eyðsla : sirka 15/L 100km

Rekstur : Þurfti að skipta um bremsurör ... eina sem ég hef þurft að gera ... sem er ekki betrumbætingar.

Skemmtanagildi : Elska að keyra bílinn finnst alltaf gaman að fara út að keyra.... meira segja orðið gaman að keyra í vinnuna... verður stuð að kíkja á autoX í sumar.

Þægindi : rafmagn í speglum... thats it :)

Hversu lengi þið hafið átt bílinn : 5 mánuði

Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW : flott body .. langaði í leiktæki sem er ekki of stórt.. mikið til af pörtum í bílana og ekki of dýrt.

Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl : Þeir sem hafa sest inní bílinn hafa allir komið með jákvæð viðbrögð og sumir eiga eftir að prufa sitja í eftir allar fjöðrunar breytingarnar

Plön sem eru að fara ske : Setja flækjurnar í, Opinn endakút, shadow line-a, samlita hluta af stuðurunum ( ekki listann á þeim ), laga pínkulítið ryð, felgum mál fyrir sumarið og KW aftur dempara.

Loka modd : Breyton Bodykit, Standalone+turbo :) það er e-ð svo heillandi við þetta og ekki skemmir fyrir að heyra "pissshhT" þegar blow off valve-ið er að prumpa ;)

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 15. Dec 2005 09:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Byrja á því að kynna bílinn t.d "E30 325 beinskiptur)
07.90 E30 325i mit Mtech II mit Spoiler.

Hvernig höndlar bíllinn
Súper.. á coilover kerfinu þá var hann meiriháttar, undirstýrði samt með 2.0 vélinni því að hún var máttlaus og drifið mjög þungt

Eyðsla
9.5-14 eftir atvikum

Rekstur
Perur, öryggi, handbremsuborðar af aftann og nýjir diskar, einnig klossar allann hringinn, KW demparar að aftann í stað eitthvað temp dóts, nýjir subframe púðar að aftann,

Skemmtanagildi
Mesta skemmtandagildi sem ég hef haft í nokkrum af þeim bílum sem ég hef keyrt og setið í, villtasta throttle response og dýpt í 6cyl hljóði sem ég hef heyrt.

Þægindi
"Real men drive stiff cars"

Hversu lengi þið hafið átt bílinn
Ég keypti minn í maí 2004 í DE.

Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW
Þetta er top of the range E30 325i facelift án auka rafmagns dótsins

Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl
BMW fans fíla hann, aðrir sjá bara gamlann BMW.

og endilega koma með fleiri tillögur að spurningum

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Dec 2005 09:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Byrja á því að kynna bílinn t.d "E30 325 beinskiptur)
´88 318i M40 auto með núna annari M40 og BSK

Hvernig höndlar bíllinn
Plain í besta lagi, er með coilovers og KW að aftann núna ;)


Eyðsla
kringum 10L/100km

Rekstur
Skipta um vél og gírkassa og breyta bílnum í BSK

Skemmtanagildi
A-B bíll með 4hurðar

Þægindi
Enginn

Hversu lengi þið hafið átt bílinn
1-2Mánuði

Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW
E30 með E30 qualities

Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl
Plain BMW

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Dec 2005 09:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Byrja á því að kynna bílinn t.d "E30 325 beinskiptur)
´88 318i Facelift með Mtech I front

Hvernig höndlar bíllinn
Hættulegasti bíll sem ég hef keyrt, allt suspið ónýtt

Eyðsla
10.

Rekstur
Skipta um eina spyrnu

Skemmtanagildi
Verður kannski gott ef í hann fer M10

Þægindi
nei

Hversu lengi þið hafið átt bílinn
Keypti hann í haust.

Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW
vantaði bíl

Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl
gamall BMW og hlægilegt lakk

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Dec 2005 09:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Posts: 7764
Location: Kópavogur
E36 316i 95 árg.
Image

Hvernig höndlar bíllinn ?

Mér finnst hann höndla fínt nema ef að maður dúndrar í einhverja beygju þá á framendinn til að renna frá.
Eyðsla
Ég keyri frekar greitt og hef verið að mæla frá svona 11-14 innanbæjar.
Rekstur
Þegar ék keypti bílinn þá var ýmislegt orðið lélegt í honum, ég þurfti að skipta um alla dempara og gorma, bremsuklossa og borða, viftureim, og fullt af drasli sem þurfti að endurnýja. Meira svona viðhald bara.
Skemmtanagildi
100hö... :lol:
Samt getur hann verið ótrúlega skemmtilegur, þó sérstaklega í hálku.
Þægindi
Þessi bíll fer mjög vel með mann, lítið veghljóð og maður er ekki mjög stirður eftir að hafa keyrt lengi.
Hversu lengi þið hafið átt bílinn
Ég er búinn að eiga bílinn frá því í Júní, tæpa 6 mánuði.
Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW
Hmmm... það var nú bara þannig að pabbi var að hjálpa mér að velja bíl, og honum fannst þessi bíll henta vel sem fyrsti bíll, sem hann svo gerði.
Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl
Fólki þykir hann flottur, mjög margir sjá bara BMW merki og halda að hann sé rándýr og hneikslast á því hvað ég á dýrann bíl án þess að vita nokkuð um verðið. Ég æfi skíði, og fólkið í skíðunum segir að ég muni aldrei komast upp í fjall í vetur af því að bílar með afturhjóladrif komast ekkert í hálku, ég afsannaði það um daginn þegar ég óð í gegnum skafl eins og ekkert væri sjálfsagðara.
En svo er bara þetta týbíska, "BMW, er það ekki bara alltaf bilandi?"

_________________
BMW E46 318i Touring


Last edited by Aron Andrew on Fri 16. Dec 2005 18:57, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 15. Dec 2005 09:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Image



Bíllinn
E30 325i cabrio beinskiptur

Hvernig höndlar bíllinn
Hann er ákaflega stífur og liggur eins og skata í öllum beygjum, þó er hann frekar dodgy þegar ég bremsa niður úr miklum hraða, þá vantar allt "give" í fjöðrunina.

Eyðsla
10.5 í langkeyrslu með 2 farþega og fullt af farangri.
13-15 innanbæjar, fer eftir hraða og umferð.

Rekstur
Ég er búinn að vera að dunda mér við að skipta um þá slithluti sem hefur þurft að skipta um og varahlutaverðið er bara mjög skynsamlegt IMO.

Skemmtanagildi
Ákaflega mikið, þessi bíll gefur mér svo mikið að mig langar engan veginn að selja hann, þó maður sitji bara í honum kyrrum þá finnst manni gaman. Blæjan niður og að hlusta á hljóðið í bílnum í gegnum flækjurnar er þó það besta.

Þægindi
Sætin í bílnum eru mjög fín, akstursstaðan er líka til fyrirmyndar í þessum bílum. En bíllinn hefur ekki mikið "ride comfort" útaf ákaflega stífri fjöðrun.

Hversu lengi hef ég átt bílinn
Síðan í lok Júní.

Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW
Langaði að prófa E30 og fílaði blæjubílinn lang mest.

Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl
Öllum vinum mínum finnst þessi bíll æðislegur og kærastan kemst alltaf í gott skap þegar hún keyrir hann, en foreldrum mínum finnst þetta ekki skynsamlegt ökutæki.

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Dec 2005 09:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Bíll: E32 750iA '90
Image

Hvernig höndlar bíllinn: Bíllinn höndlar bara frekar illa enda 2tonna fleki sem er ekki ætlaður í slide&burn. Fer samt vel með mann

Eyðsla: Hann er að fara með svona 16-20 innanbæjar og svona 10-12 utanbæjar

Rekstur: Stöðuljósaperur voru farnar þegar ég fékk bílinn og rafgeymirinn slappur. Búinn að skipta um bæði

Skemmtanagildi: Well það er svosem alveg gaman að kickdown'a tólfuna og láta flekann æða áfram á ferðinni :) Roadtrip eru bara snilld

Þægindi: Verður ekki mikið þægilegra en þetta, allaveganna ekki miðað við aldur!

Hversu lengi þið hafið átt bílinn: Ég er búinn að eiga bílinn í tæpan mánuð

Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW:
Ég valdi þennan bíl afþví að mig hafði lengi langað í 750 og langaði líka í þægilegt teppi til að keyra í vetur.

Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl: Það eru allir sammála um að þessi bíll sé snilld í alla staði en það spyrja samt nánast allir hvort hann eyði ekki 30+ :lol:


Bíll: E36/7S M-Roadster '98
Image

Hvernig höndlar bíllinn: Liggur eins og mofo þakinn í harpix, pínulítið roll en það hverfur vonandi með breytingunum sem ég er að gera núna

Eyðsla: 10-15l/100km, þar sem 10l/100km er Ak-Rvk reis og 15l/km er getaway in Reykjavík

Rekstur: Ekkert bilað en verið að breyta ýmsu

Skemmtanagildi: Top of the line í því, no doubt!

Þægindi: Well hann er með rafmagni í sætum og leðraður uppúr og niðurúr...

Hversu lengi þið hafið átt bílinn: Hálft ár

Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW: Draumbíllinn minn síðan 1997.

Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl: Það blotna allir, karlar jafnt sem konur þegar tekið er á ze roadster 8) :lol:

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Dec 2005 11:51 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Posts: 598
Location: Reykjavík
Byrja á því að kynna bílinn
E36 - 1991 - Sjálfskiptur

Hvernig höndlar bíllinn
Þegar ég keypti hann var brotinn gormur að aftan, ónýtir demparar og nánast slétt 17" undir honum. Ég byrjaði á því að lækka hann um 1" að aftan og 1,5" að framan, setja stífari dempara og ný dekk. Eftir þessa aðgerð er hann ótrúlega skemmtilegur, hvort sem er í innanbæjar snatti eða á siglingu á þjóðvegum. Maður fær aldrei "óöryggistilfinningu" við stýrið.

Eyðsla
8 utanbæjar, 11,5 innanbæjar

Rekstur
Þetta týpíska. Bremsuklossar, demparar og eitthvað smotterí sem er komið til ára sinna. Aldrei lent í neinum stórviðgerðum eða bilunum.

Skemmtanagildi
Mætti hafa fleiri hoho, en lúkkið og aksturseiginleikarnir bæta það upp.

Þægindi
Rafmagn í rúðum, 4ra þrepa sjálfskipting með þremur stillingum. Og svo þetta týpíska e36 dót, hiti í læsingum, sjálfvirkur letingi á rúðuþurrkum, ljós fyrir ofan sólskyggni og BMW merki á stýrinu 8)

Hversu lengi þið hafið átt bílinn
Samtals 4 ár. Átti bílinn fyrst frá janúar 1996 til febrúar 1997. Var svo að leita mér að samskonar bíl í janúar 2003 og viti menn. Fann sama bílinn á sölu og vissi að hann var góður, svo ég keypti hann bara aftur.

Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW
Finnst þetta boddý bara alveg ótrúlega fallegt. Tímalaust og klassískt. Ég sé ekki fyrir mér að maður geti fundið japanskan bíl eins "nýlegan" í útliti á þessum aldri. For crying out loud.. 2004 módelið af japönskum bílum er orðið úreldara en e36 boddíið.

Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl
Flestum finnst hann flottur. Einn spurði mig um daginn hvað ég fengi fyrir hann, ég bað hann að giska og hann skaut á 1,5 milljón. Hélt að hann væri mikið yngri.
Aðrir halda að rekstrar kostnaður á svona bíl sé hár. En flestir eru sammála um að það sé gott að sitja í honum og hann fari vel með ökumann og farþega. "Þetta eru sterkir bílar" hefur verið sagt við mig oftar en einu sinni.

Hér er svo gripurinn góði:
Image

_________________
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Dec 2005 12:45 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51
Posts: 2026
E30 - 325i - Hartge - Bsk

Handling:
Bíllinn hjá mér handlar ágætlega svosem, en mætti vera mun betra eftir að ég keyrði t.d. bíl vinar míns sem er 60/40 og mjög stífur. En annars er ég með orginal mtech fjöðrun og hún er alltílagi á 16" sumarblinginu.

Eyðsla:
Jahá, mér er svo skít sama um hana að ég hef ekki einusinni hugmynd :P

Rekstur:
Aðalljós, þokuljós, númersplötuljós, ljós í mælaborði (fullt af ljósum ;)). Stýrismaskína, fór hjá mér þreifari í bremsunum að aftan, lét ryðverja þegar ég keypti hann, lét skitpa um tímareim og ventlastilla um leið og ég fékk hann, lét skipta um alla vökva líka.

Skemmtanagildi:
Skemmtilegasti bíll sem ég hef keyrt. Hef reyndar ekki keyrt marga. Þetta er bara annar billinn sem ég á og ég hef vægast sagt mjög gaman af honum! :)

Þægindi:
Rafmagn í speglum.... hver þarf þægindi, þetta þyngir bara bílinn!!!!!!! :lol:

Hversu lengi hef ég átt bílinn:
Keypti hann í apríl 2005 innfluttur frá þýskalandinu.

Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW:
Hmm, það voru 2 vinir mínir sem fengu sér svona. Fyrsta hataði ég þetta boddý og fannst þetta bara ljótur gamall BMW. En svo fór ég að fíla þetta meira eftir að ég byrjaði að skoða þennan vef. Féll eiginlega fyrir þessum 2 bílum sem Alpina flutti inn, svo einnig bílnum hans Stefáns í keflavík. Svo bara endaði ég að kaupa svona og sé ekki eftir.

Álit fólks:
Fyrst þegar ég fékk hann voru allir voða spenntir, núna er þetta bara bíllinn minn og ekkert lengur eitthvað voða spes. En það er alltaf gaman að taka mömmu og pabba í smá drift ferð, þeim finnst það gaman. :)

Plön:
Næsta sumar er planað að fá sér 40/40 lækkunarkitt, mjög stíft. Hartge flækjur og púst alla leið. DTM aftasta kút á púst. Læst drif og líka mögulega tölvukubb, ef peningar leyfa! :)

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Dec 2005 12:59 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Sun 08. Jun 2003 03:11
Posts: 1494
Location: Reykjavík
Byrja á því að kynna bílinn t.d "E30 325 beinskiptur)
E30 325i ´90 M-TechII 4dyra Bsk.

Hvernig höndlar bíllinn:
Hann höndlar æðislega, er lækkaður 60/40 og með vel stífa fjöðrun og svo strut brace að framan og hann er límdur við veginn

Eyðsla:
Hann er að eyða ca.12-13L/100Km

Rekstur:
Flutti þennan bíl inn í sumar, engin bilun eða þess háttar hefur komið upp en ýmsar betrumbætingar hafa verið gerðar eins og complett M-TechII bodykitt og heilsprautun. Mikið meira á leiðinni fyrir sumarið.

Skemmtanagildi:
Að mínu mati er skemmtanagildi þessa bíls mjög mikið og mun það skána MJÖG mikið þegar læsta drifið fer í sem ég á

Þægindi:
hmmm ekki myndi ég segja að það væru mikil þægindi ég þessum bíl vegna stífleika fjöðrunar en það er rafmagn í speglum, og svo myndi ég telja sportsæti sem þægindi þar sem þau eru miklu þægilegri en hin sætin

Hversu lengi þið hafið átt bílinn:
Síðan í sumar, nánar tiltekið 5. júlí 2005

Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW:
Á 320i bíl líka og er mjög hrifin af þessum bílum bæði boddý og aksturseiginleikum, en fannst 320i bíllinn ekki vera nægilega kraftmikill og flutti þennan því inn

Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl:
Öllum sem ég þekki finnst hann mjög flottur og hef ég heyrt að margra mati að þetta sé fallegasti e30 landsins

E30 325i ´90 M-TechII:

Image

_________________
Jónki
325i ´90 e30 M-techII
320i ´84 e30 Seldur
Vantar þig viðgerð á bílnum S:697-9021
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Dec 2005 13:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
Image

Byrja á því að kynna bílinn
E39 - 1997 - 523i

Hvernig höndlar bíllinn
Hef ekki ennþá fengið að kynnast því, en miðað við að það er m-tech sportfjöðrunarpakki í honum, þá held ég að hann eigi að höndla mjög vel!

Eyðsla
Skrifaður á 13l innanbæjar og 9-10 í langkeyrslu!

Rekstur
Rífa vélina úr, sameina tvær, eða kaupa aðra vél.

Skemmtanagildi
Lítið einsog er, þó er gaman að glitcha út um gluggann og horfa á fallegan fleka í stæðinu, hann er ekkert annað en skraut í augnablikinu!

Þægindi
Ótrúlega þæginlegur bíll að sitja í, allavega svona þegar það er verið að draga mann! Tölvustýrð miðstöð, rafmagn í öllu, allt nema það sem að ég þrái heitast, topplúga og leður.. en það verður unnin bót á því fljótlega Image

Hversu lengi þið hafið átt bílinn
Keypti bílinn í lok nóvember, og er búinn að dútla eitthvað smá við hann, en það fyrsta sem að var gert var auðvitað að bóna og gera hann fínan :)

Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW
Ég hef alltaf ætlað mér að eignast E39, hvort sem að það yrði á þessu ári eða þegar að ég væri orðinn 80ára gamall maður, sagði meirasegja einusinni við einhvern vin minn; "Ég heiti því að eignast svona bíl einn daginn!" og ég held að það hafi verið AKKÚRAT 4 dögum seinna sem að ég dró þennan hlunk í stæðið :)

Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl
Vinir mínir elska hann, þó hann sé bara skraut ennþá. Fólk spyr mig bara vó, 100%lán og ég svara hlæjandi "Hvað helduru að svona kosti?" og allir skjóta á 2-2.5 :) og þegar ég segi að ég hafi fengið hann á 500þús þá setja allir upp undrunarsvip :o. Fyrsti bílinn minn sem að Mamma "fílar" að hafa í stæðinu sínu :)

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Dec 2005 14:42 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sat 06. Nov 2004 18:20
Posts: 580
Image

Bíllinn minn: BMW 540IA fer á götuna 26.12.99

Hvernig höndlar bíllinn: Hef ekki látið reyna á það af neinu viti, hann er með M fjöðrun og ætti því að liggja vel, vonast til að geta prufað hann á braut sem fyrst.

Eyðsla: ca 15l/100km

Rekstur: Ég hef þurft að skipta um nokkrar perur.

Skemmtanagildi: 286ho og 44nm nóg kraftur og fullt af togi, maður verður hreinlega að passa sig á hraða og hann á alltaf nóg eftir. Ótrúlega skemmtilegur akstursbíll.

Þægindi: Bíllinn er mjög vel búin, það er þó ekki leður á sætum heldur alcantara/stoff sem er mjög þægilegt og flott.

Hversu lengi þið hafið átt bílinn: Ég fékk bílinn frá DE í júní 2005

Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW: Hef alltaf haldið mikið uppá e39, ætlaði að fá mér M5 en ákvað svo að byrja á þessum og taka hann ssk.

Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl: Fólk fílar hann almennt mjög vel, sérstaklega þegar það hefur fengið að sitja í einn hring.

Það sem verður gert eftir áramót: Ætla að láta samlita og sprauta framstuðara vegna smá grjótbarnings, facelift ljós og 19" felgur þá ætti hann að vera nokkuð góður í sumar.

_________________
Magnús


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Dec 2005 15:43 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
Image


Bíllinn
E36 323i bsk

Hvernig höndlar bíllinn
Bílinn höndlar mjög vel, hann kom orginal með M fjöðrun en ég skipti yfir í KW 60/40 lækkun og eftir það er hann mjög skemmtilegur. Finnst samt of mikið body roll en x-brace og strutar ættu að laga það

Eyðsla
Hann er að eyða 11-12l/100 hjá mér og hann var í kringum 8 á leið til akureyrar

Rekstur
Þegar ég var tiltölulega nýbúinn að fá bílinn þá fór vatnslásinn og eithvað í kælikerfinnu, eins og kemur fyrir mjög marga e36. Síðan er ég búinna ð skipta um gorma/dempara (1 dempari ónýtur) kúplingin fór eftir 186.000km og svo er ég að skipta um bremsur af því klossarnir kláruðust og 1 diskur er orpinnn.
Síðann var bílinn líka heilsprautaður í sumar vegna skemmdarverka.

Skemmtanagildi
Mjög mikið, sérstaklega eftir breytingarnar. Léttara flywheel, short shifter og fjöðrunin gerir bílinn mjög skemmtilegan í akstri.

Þægindi
Er með hálfleðruð sportsæti og já orginal cd spilara og þetta klassíska rafmagn í rúðum/topplúgu/speglun.

Hversu lengi hef ég átt bílinn
Keypti hann 16 janúar 2003 sem þýðir að ég er að verða búinn að eiga hann í 3 ár

Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW
Mér hefur bara alltaf fundist E36 mega flottur, en bmwkraftur hjálpaði alveg mjög mikið til að magna BMW ruglið:lol:

Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl
Vinir mínir fíla hann í botn og já, fjölskyldunni líka. Þótt þeim öllum finnst ég vera að eyða of miklum peningum í hann :lol: Td þá var toyotan hennar mömmu seld eftir að hún sat fyrst í honum út á land :wink:

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 15. Dec 2005 19:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Image

Bíllinn
E39 M5 árgerð 1999, Avus Blau Metallic. Ekinn 65.500 km.
Annar tveggja bíla sem BogL flutti inn af E39 M5.


Hvernig höndlar bíllinn
MJÖG vel og verður enn betri í vor þegar verður búið að setja undir hann ýmislegt stuff. Helsta vandamálið er að koma öllu aflinu niður en það ætti að batna í vor með hækkandi hitastigi og 285 dekkjum að aftan.


Eyðsla
Einhversstaðar á bilinu 20-22 lítra á hundraðið. Hins vegar segir eyðsla á hundraðið ekki allt þar sem svona bíll fær mann til að keyra mun meira en ella. Double trouble.


Rekstur
Skipti um loftflæðiskynjarana tvo (Mass Airflow Sensor) sem þarf að skipta reglulega út. Kosta morð fjár hér heima en fást úti á bilinu 60-115 dollara stykkið.

Það er eiginlega ekkert annað nema eitt relay fyrir þurrkurnar sem er að fara og ég þarf að skipta um. Síðan er það olía á mótorinn - er búinn að setja á hann 3 lítra á þessum 7.000 km sem ég er búinn að keyra. Vélarnar í þessum bílum eru hannaðar til að fara með slatta af olíu.

Annars hefur ekkert bilað (knock on wood).


Skemmtanagildi
Endalaust!!! Ruglaður kraftur sem er enn ruglaðari eftir breytingarnar sem ég var að klára (CAI, software, flækjur, race cats og TUBI catback púst). Einnig er tilfinningin gagnvart bílnum betri núna þar sem maður heyrir betur snúninginn - betra upp á skiptingar etc.

Maður freistast mikið til að spyrna milli ljósa en snilldin við þennan bíl er hversu vel hann sameinar eiginleika sportbíls við eiginleika fjölskyldubíls/cruiser.


Þægindi
Bíllinn er vel búinn - leðursæti, aðgerðastýri, rafmagn í rúðum, sætishitarar, innbyggðir barnastólar í aftursæti, cruise control, innbyggður sími, 80gb mp3 spilari sem hægt er að stýra í gegnum stýri/græjur, PDC (bakkskynjari), rafdrifin gardína í afturrúðu.
Er örugglega að gleyma einhverju.


Hversu lengi þið hafið átt bílinn
Fékk bílinn á föstudeginum fyrir síðustu verslunarmannahelgi og fór til Akureyrar tvær helgar í röð :lol:


Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW
Er búinn að eiga tvær fimmur áður og ákvað það um aldamótin að ég myndi eignast E39 M5. Var þá í Þýskalandi og sá þá nokkur splunkuný eintök.
Þessi bíll hentar mér vel, nóg pláss, mjög praktískur en er svo líka rosalega öflugur sportbíll þegar maður vill.


Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl
Hef ekki fengið neitt nema hrós fyrir bílinn - það virðast allir fíla hann vel.
Þeir sem fá rúnt eru flestir með frekar skrýtinn svip eftirá því þeir eru ekki alveg að skilja hvernig þessi "fjölskyldubíll" getur gert það sem hann gerir.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 45 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 5 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group