Bíllinn
E39 M5 árgerð 1999, Avus Blau Metallic. Ekinn 65.500 km.
Annar tveggja bíla sem BogL flutti inn af E39 M5.
Hvernig höndlar bíllinn
MJÖG vel og verður enn betri í vor þegar verður búið að setja undir hann ýmislegt stuff. Helsta vandamálið er að koma öllu aflinu niður en það ætti að batna í vor með hækkandi hitastigi og 285 dekkjum að aftan.
Eyðsla
Einhversstaðar á bilinu 20-22 lítra á hundraðið. Hins vegar segir eyðsla á hundraðið ekki allt þar sem svona bíll fær mann til að keyra mun meira en ella. Double trouble.
Rekstur
Skipti um loftflæðiskynjarana tvo (Mass Airflow Sensor) sem þarf að skipta reglulega út. Kosta morð fjár hér heima en fást úti á bilinu 60-115 dollara stykkið.
Það er eiginlega ekkert annað nema eitt relay fyrir þurrkurnar sem er að fara og ég þarf að skipta um. Síðan er það olía á mótorinn - er búinn að setja á hann 3 lítra á þessum 7.000 km sem ég er búinn að keyra. Vélarnar í þessum bílum eru hannaðar til að fara með slatta af olíu.
Annars hefur ekkert bilað (knock on wood).
Skemmtanagildi
Endalaust!!! Ruglaður kraftur sem er enn ruglaðari eftir breytingarnar sem ég var að klára (CAI, software, flækjur, race cats og TUBI catback púst). Einnig er tilfinningin gagnvart bílnum betri núna þar sem maður heyrir betur snúninginn - betra upp á skiptingar etc.
Maður freistast mikið til að spyrna milli ljósa en snilldin við þennan bíl er hversu vel hann sameinar eiginleika sportbíls við eiginleika fjölskyldubíls/cruiser.
Þægindi
Bíllinn er vel búinn - leðursæti, aðgerðastýri, rafmagn í rúðum, sætishitarar, innbyggðir barnastólar í aftursæti, cruise control, innbyggður sími, 80gb mp3 spilari sem hægt er að stýra í gegnum stýri/græjur, PDC (bakkskynjari), rafdrifin gardína í afturrúðu.
Er örugglega að gleyma einhverju.
Hversu lengi þið hafið átt bílinn
Fékk bílinn á föstudeginum fyrir síðustu verslunarmannahelgi og fór til Akureyrar tvær helgar í röð
Hvað fékk ykkur til að velja þessa týpu af BMW
Er búinn að eiga tvær fimmur áður og ákvað það um aldamótin að ég myndi eignast E39 M5. Var þá í Þýskalandi og sá þá nokkur splunkuný eintök.
Þessi bíll hentar mér vel, nóg pláss, mjög praktískur en er svo líka rosalega öflugur sportbíll þegar maður vill.
Hvert er álit fólks sem þið umgangist mest á þessum bíl
Hef ekki fengið neitt nema hrós fyrir bílinn - það virðast allir fíla hann vel.
Þeir sem fá rúnt eru flestir með frekar skrýtinn svip eftirá því þeir eru ekki alveg að skilja hvernig þessi "fjölskyldubíll" getur gert það sem hann gerir.
_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...