Ég flutti inn eitt stykki e34 535 bsk með hjálp frá Bjarka snilling í sumar. Er mjög sáttur með bílinn þrátt fyrir örlitla samskiptaörðugleika í fyrstu

. En allavega lenti í smá brasi með vélina, brotnaði rokkerarmur en það var mjög ódýrt að gera við það sökum þess að þetta eru mjög einfaldir mótorar og ódýrt í þá. Bjarki aðstoðaði mig við þetta og Einar frá kistufelli þannig að kostnaðurinn var í algjöru lágmarki, hefði eflaust orðið mun meira mál með flóknari mótor, spurning reyndar hvort þetta hefði gerst yfir höfuð á þeim en það koma líklega önnur vandamál í staðinn.
Ég valdi þessa vél fram yfir 525 m50 eða v8 sökum rekstraröryggis, verðs og hann er svona milliveginn í afli, mjög skemmtilegur. Var Hræddur um eyðsluna en hún kom samt vel á óvart, 15l frá því ég byrjaði að keyra bílinn hér í rvk. Samt er vatnslásinn fastur opinn (gengur kaldar, en því verður vonandi bjargað á morgun) og það mætti fara að hressa uppá kveikjukerfið þannig að hann á að geta farið neðar m.a.s.
Held að ég geti vel mælt með svona bíl, þægilegur krúser en samt mjög skemtilegur, til í að spretta þegar mann langar. Finnst þessi mótor henta bílnum mjög vel, mjög svona mekanískur og einfaldur sem er áhveðinn kostur en ekki allt útí e-u tölvu- og skynjaraveseni sem hefur reyndar alveg líka sína kosti.
Hljóðið í vélinni er mjög fallegt ef vélin er rétt stillt og í lagi, á það til að skrúfa niður rúðuna og hlusta bara á vélina þegar ég nenni ekki að hlusta á mússík. Þarf bara að passa að stilla ventlabilið reglulega en knastásarnir áttu það líka til að slitna vegna stíflu í systeminu sem smyr ásinn (mjög lítið mál að skipta um til að fyrirbyggja). Mín er allavega ný stillt og yfirfarin enda malar hún mjög fallega en ég hef samt heyrt ljótt hljóð frá þessum vélum.