Þetta er að verða skemmtilegur "nöldur" þráður

Best að leggja sitt af mörkum.
Það sem fer í taugarnar á mér er Msn slangur, eins og "eikker", en fólk notar þá afsökun að þetta sé styttra. Það munar einum staf og ef menn vilja stytta þá er fínt að nota e-r sem er góð og gild íslensk stytting á einhver.
=
einhver = e-r
einhvern = e-n
einhverjum = e-m
einhvers = e-s
Varðandi þetta "þar af leiðir", þá er þetta svona af því að við erum með einhverja forsendu sem hefur einhverjar afleiðingar.
Þetta er svona og þar af leiðir.. eða
Þetta er svona og þetta eru afleiðingarnar..
Við eigum ekkert orð sem er aðleiðingar er það?
Ætli það sé ekki best að fara bara í háttinn núna
