Hægt er að velja um S, E og * stillingar á sjálfskiptingunni. Ég veit muninn á S og E en hver er munurinn á *?
Ps. Ég gæti svo sem reynt að finna þetta í leiðbeiningunum en þar er allt á þýsku...
Eggert wrote:Svo ég troði mér inní þennan þráð, hvað í fjandanum er þá M stillingin á sjálfskiptingunni?
Ég er með S efst, miðjan er E, og svo neðst er M. Gæti verið 'manual', en ég sé ekki hvaða tilgangi það ætti að þjóna.


saemi wrote:Án þess að vera 100% viss varðandi * þá er ég nokkuð viss um að það er það sama og M, sem þýðir Manuell.
Þetta virkar á þann hátt að skiptingin fer í þann gír sem þú velur með skiptinum. Þannig að ef þú setur hann í 3, þá fer bíllinn af stað í 3ja gír og heldur sér í honum.
Þetta virkar EKKI þannig að bíllinn taki sjálfur af stað í hærri gír ef þú ert með M valið (*), heldur verður þú líka að velja gírinn með skiptinum.
En eins og fram hefur komið, þá er þetta einkum notað við að fara af stað í hálku, og því er * sett til að tákna hálku.
Bjarki wrote:M er hugsað þegar þú ert að draga t.d. með sjálfskiptum bíl þá skiptir sjálfskipting aldrei niður bara upp. Einnig hægt að nota í snjó.
Nú kemur það sem ég held, sjálfskiptingar með M eru ekki með * fyrst kom M svo * bara e-r þróun.

Ef þú ert með bílinn í M þá skiptir hann ekki um gír PUNKTUR. Þetta er algengur misskilningur, en ef þú ert með bílinn í D og setur í M, þá er hann fastur í 4 gír.
Users browsing this forum: Google [Bot] and 12 guests