328i

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Postby Jói » Sun 30. Mar 2003 18:42

bebecar wrote:1.5 sekúndur finnst mér ekki mikið fyrir bíl sem er með í raun talsvert minni vél.


Hlutfallslega finnst mér þessi 1.5 sekúnda vera ansi mikið í þessu tilfelli. Munur á eldgömlum Land Rover sem væri kannski 30 sek í 100 og eldgamalli Bjöllu sem væri 31.5 sek í 100, er til dæmis mjög lítill, þó svo að talið í sekúndum er munurinn sá sami og í okkar tilfelli, en hlutsfallslega er munurinn á þessum LandRover og Bjöllu mjög lítill.

Þegar einhver bíll er 6.9 sek í 100 þá er mikill munur á því og 5.4 sek, finnst mér að minnsta kosti. Þótt 540 sé með talsvert stærri vél, þá er hann líka miklu þyngri og með annan gírkassa, reyndar 6 gíra.
Jói
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 342
Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Location: Reykjavík

Postby Jói » Sun 30. Mar 2003 21:38

WhatCar testa MARGA bíla og úr þeirra testum hafa BMW fengið vægast sagt frábæra útkomu. WhatCar hafa einnig gefið BMW alveg stórkostlega góða dóma. Hvernig mæla þeir eyðsluna? Eins og þeir orða það: "65 miles of light driving."

Dæmi úr WhatCar, blaði frá 1999, en sum testin eru allt frá '97, eins og allir e39:

BMW e46 318 (118 hö). Eyðsla 7 l á 100 km. 10.4 sek í 60 mph.

BMW e46 323. Eyðsla 7.7 l á 100 km! 0-60 mph á 7.5 sek.

BMW e46 328. Eyðsla 8 l á 100 km. 6.7 sek í 60 mph.

BMW e46 M3 Evolution Coupé. Eyðsla 8.5 l á 100 km. :!: :?: 5.3 sek í 60 mph.

BMW e39 520. Eyðsla 8.5 l á 100 km. 9.9 sek í 60 mph.

BMW e39 523. Eyðsla 8.2 l á 100 km. 7.7 sek í 60 mph.

BMW e39 528. Eyðsla 8 l á 100 km. 6.8 sek í 60 mph.

BMW e38 740. Eyðsla 11.5 l á 100 km. 7.6 sek í 60 mph. En frábær millihröðun frá 30-70, sú sama og í sneggri e39 528.

Hinn þokkalegasti árangur! :wink:
Jói
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 342
Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Location: Reykjavík

Postby Svezel » Sun 30. Mar 2003 21:51

Ég er nú ekki alveg að kaupa þessar tölur ef ég á að segja eins og er. Minn 520 chippaður með síu (reyndar ssk) var örugglega svona rúmar 11 sek í 100kmh án þess að ég hafi mælt það almennilega. Einnig hef ég keyrt E46 328iA og hann hefur verið svona 8 sek í 100kmh og ég trúi því ekki að það muni hátt í 1.5sek milli ssk. og bsk.

Það hefur kannski verið einhver brjálaður 40kg race dvergur að keyra þessa bíla :lol:
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Jói » Mon 31. Mar 2003 00:42

Svezel wrote:Ég er nú ekki alveg að kaupa þessar tölur ef ég á að segja eins og er. Minn 520 chippaður með síu (reyndar ssk) var örugglega svona rúmar 11 sek í 100kmh án þess að ég hafi mælt það almennilega. Einnig hef ég keyrt E46 328iA og hann hefur verið svona 8 sek í 100kmh og ég trúi því ekki að það muni hátt í 1.5sek milli ssk. og bsk.

Það hefur kannski verið einhver brjálaður 40kg race dvergur að keyra þessa bíla :lol:


Ég held nú einmitt að það muni svona 1-2 sek á milli ssk. og bsk, misjafn eftir vélum.
Jói
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 342
Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Location: Reykjavík

Postby hlynurst » Mon 31. Mar 2003 22:41

Er ekki bara málið að finna einhvern bíl sem er undir 7 sek í hundrað og ég skal prufa að spyrna við hann? :roll:

Sjá þetta svona svart á hvítu.
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Previous

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests