bebecar wrote:1.5 sekúndur finnst mér ekki mikið fyrir bíl sem er með í raun talsvert minni vél.
Hlutfallslega finnst mér þessi 1.5 sekúnda vera ansi mikið í þessu tilfelli. Munur á eldgömlum Land Rover sem væri kannski 30 sek í 100 og eldgamalli Bjöllu sem væri 31.5 sek í 100, er til dæmis mjög lítill, þó svo að talið í sekúndum er munurinn sá sami og í okkar tilfelli, en hlutsfallslega er munurinn á þessum LandRover og Bjöllu mjög lítill.
Þegar einhver bíll er 6.9 sek í 100 þá er mikill munur á því og 5.4 sek, finnst mér að minnsta kosti. Þótt 540 sé með talsvert stærri vél, þá er hann líka miklu þyngri og með annan gírkassa, reyndar 6 gíra.
