by grettir » Wed 23. Mar 2005 13:37
Það er svo sem ekkert vesen á reiminni, bara leiðinlegt að skipta.
Ef bíllinn er vel með farinn, þá er þessi akstur svo sem ekkert til að hafa áhyggjur af.
Eins með skiptinguna, ef það er skipt um síu og olíu reglulega, þá endist hún alveg bílinn.
Sumir eru ægilega stressaðir þegar bílar eru komnir yfir 200 þúsund, en 250 þúsund eru ekki nema 17 þúsund á ári, mjög eðlilegur akstur.
Segi fyrir mitt leyti að ég myndi frekar kaupa bíl með eðlilega tölu, en að kaupa einhvern sem væri lítið sem ekkert keyrður.
Það þýðir þá að hann er búinn að standa lengi eða ekki verið með mælinn í sambandi hálfa ævina. Og þá gleymist að smyrja.
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn