Ok ég er í skóla og verð að sætta mig við að mig vantar pening. Þessvegna er bíllinn minn til sölu.
Þetta er ´88 módelið af E34 535i beinskiptum, eintak í rosalega góðu standi og
ekinn rétt yfir 130þús km.
Hann kom til landsins fyrir um 4 mánuðum síðan og er fluttur inn af sæma sem flestir á bmwkraft kannast við.
Fyrri eigendur eru ekki margir, og undan mér og sæma er það gamall kall sem notaði hann til að komast í og úr vinnu í austur þýskalandi,
þar á undan var það krimmi sem sat voða mikið inni og gat þessvegna ekki keirt bílinn neitt
Þegar hann kom til landsins var nýr vatnskassi í honum, bíllinn er samt tjónlaus ef einhver var að velta því fyrir sér
(vatnskassinn hefur trúlega farið útaf ventli sem átti það til að virka ekki í fyrstu modelunum af þessum bíl.. búið að gera við það allavega) og í honum eru líka nýir demparar að framan.
Helsti búnaður er
Leður sæti
Rafmagn í sætum
Minni í sætum
Hiti í sætum
ABS bremsur
ASC Spólvörn
LSD (Læst drif)
10 diska cd magasín
Gott sony útvarp með kassettu og stórum magnara
Stóra aksturstölvan
Check control
Cruise control
Hreinsi búnaður á aðal og þokuljós
Þokuljós í svuntu
17”felgur á góðum sumardekkjum
15”felgur á svo til nýjum vetrardekkjum
Höfuðpúðar að aftan
Sólgardína í afturglugga
Rafdrifnar rúður
Rafdrifnir speiglar
Samlæsingar
Leður sportstýri
Upphitaðir speiglar
Afþíðing á læsingum
Upphitaðir rúðupissstútar
Svo getur auðvita vel verið að ég sé að gleima einhverju sniðugu
Bíllinn fer af númerum og í geimslu trúlega í þessum mánuði þannig að gott væri ef áhugasamir hefðu samband í fyrra lagi
uppá að geta prufað bílinn því ekki vil ég selja bíl sem kaupandi getur ekki mátað sig almenilega í áður.
Hann er alger draumur í akstri og þrusu virkar. 211 Hestöfl og 305 Newton koma þessum 1500 kg bíl rosalega úr sporinu,
svínliggur í beygjum og sportstólarnir halda vel við mann. Vél, drif og gírkassi í topplagi og vottar ekki fyrir oliusmiti eða neinu þessháttar neinstaðar.
Ég set svo með nokkrar myndir sem bæði eru að utan og svo síðan ég eignaðist hann.. kem svo með fleiri myndir ef men vilja.
Verðið er 800.000 með öllum felgum og dekkjum.
Verður að fara:( ...
700.000 með öllu.
Ég skoða skipti á ódýrari bílum og þá allra helst BMW
En auðvita er ég opinn fyrir öllum gáfulegum tilboðum og endilega hafið samband ef þið hafið einhverjar spurningar
Einar Ingi
8204803
einar@toppfilm.is
Hérna eru svo myndir af 15" felgunum
klikkið á þumalneglurnar til að fá stærri myndir.
