bílablaðið wrote:BMW hefur annað árið í röð hlotið viðurkenningu ALG (Automotive Lease Guide) fyrir hæsta endursöluverðið í flokki lúxusbíla. Viðurkenningin er veitt samkvæmt niðurstöðum árlegrar verðkönnunar þessa alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækis á endursölumarkaði bíla. Auk þess sem könnunin tekur til hlutfallslegrar lækkunar bíla í endursölu frá upphaflegu verði, eru þættir eins og kaupaukar og verð nýrra bíla einnig skoðaðir. ALG starfar í Bandaríkjunum, Kanada og Evrópu. Samkvæmt upplýsingum frá B&L, umboðsaðila BMW á Íslandi, að í lúxusflokki bíla lækki BMW hlutfallslega minnst í verði við endursölu.
Nokkuð magnað að lesa þetta.



