Sælir snillingar. Kann einhver ráð við þessu?
Það er leiðindaböggur í bílnum mínum sem lýsir sér þannig að tölvan segir að perur séu sprungnar sem eru það samt ekki.
Þetta lýsir sér þannig að þegar ég set bílinn í gang, stend á bremsunni og kveiki á ljósunum þá kemur melding um að aðalljós, ljós að aftan, númeraplötuljós og bremsuljós séu farin. Ef ég hins vegar kveiki ekki á ljósunum þá kemur tölvan ekki með meldingu um að bremsuljósin séu farin.
Þetta á aðallega við þegar bíllinn er kaldur. Ef hann er orðinn heitur þá gerist þetta yfirleitt ekki.
Bíllinn er E34 540i.



