Perur sem ekki eru sprungnar

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Perur sem ekki eru sprungnar

Postby gummio » Mon 13. Dec 2004 17:32

Sælir snillingar. Kann einhver ráð við þessu?

Það er leiðindaböggur í bílnum mínum sem lýsir sér þannig að tölvan segir að perur séu sprungnar sem eru það samt ekki.

Þetta lýsir sér þannig að þegar ég set bílinn í gang, stend á bremsunni og kveiki á ljósunum þá kemur melding um að aðalljós, ljós að aftan, númeraplötuljós og bremsuljós séu farin. Ef ég hins vegar kveiki ekki á ljósunum þá kemur tölvan ekki með meldingu um að bremsuljósin séu farin.

Þetta á aðallega við þegar bíllinn er kaldur. Ef hann er orðinn heitur þá gerist þetta yfirleitt ekki.

Bíllinn er E34 540i.
BMW E34 540i
BMW E30 325i, seldur
gummio
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 26
Joined: Wed 10. Mar 2004 14:44
Location: Reykjavík

Postby Bjarki » Mon 13. Dec 2004 17:46

Hef lent í þessu með aftermarket afturljós í e36. Veit ekki hvað veldur né hvað það er sem check control module'inn skynjar þegar pera springur. Það hlýtur að vera til lausn á þessu vandamáli eins og öllu öðru. Ertu með upprunaleg afturljós eða aftermarket?
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby gummio » Mon 13. Dec 2004 17:57

Afturljósin eru upprunaleg.
BMW E34 540i
BMW E30 325i, seldur
gummio
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 26
Joined: Wed 10. Mar 2004 14:44
Location: Reykjavík

Postby Jss » Mon 13. Dec 2004 19:42

Ég myndi telja það nokkuð ef ekki mjög líklegt að Light control module-ið (LKM) sé bilað/ónýtt hjá þér, þetta á það svolítið til að gerast í E34. :?

(LKM = Licht Kontrol Modul á þýskunni ef mig misminnir ekki)
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby Steinieini » Mon 13. Dec 2004 19:55

Minn er með sömu veiki, segir Abbendligt og fleirra þótt ekkert sé að, E34, hvað er þetta dýrt stykki og hvað er mikið mál að repleisa :?:
User avatar
Steinieini
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1905
Joined: Mon 22. Nov 2004 13:31
Location: RVK

Postby gummio » Mon 13. Dec 2004 19:56

Úfff.. Licht Kontrol Modul, þetta hljómar eins og hlutur sem er ekki nokkur leið að vita hvort er bilaður eða ekki?

Jss, veistu hvar þetta er staðsett?
BMW E34 540i
BMW E30 325i, seldur
gummio
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 26
Joined: Wed 10. Mar 2004 14:44
Location: Reykjavík

Postby iar » Mon 13. Dec 2004 23:29

Er þetta ekki leiðbeiningar um LCM í E34?

http://www.totalbmwmag.co.uk/HandsOn/TechJan04.pdf
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby Dr. E31 » Tue 14. Dec 2004 00:16

Bíllinn minn gerði þetta fyrst þegar eg fékk hann, ég tók mig bara til og skypti um ALLAR perur í bílnum, þá hætti þetta.
Spurning?!? :-k
User avatar
Dr. E31
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1898
Joined: Wed 11. Sep 2002 01:19
Location: Reykjavík

Postby Einsii » Tue 14. Dec 2004 08:31

check tölvan hlítur að vera að lesa eitthvað viðnám sem breitist við að peran fari.. þannig að það getur vel verið að lélegar eða bara eitthvað asnalegar perur séu að rugla þetta.. bara prufa einsog doktorinn seigir að skipta um allar perur og sjá hvað gerist
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Postby gummio » Tue 14. Dec 2004 09:34

Takk fyrir ábendingarnar félagar. Eftir að hafa lesið leiðbeiningarnar um LKM-ið þá held ég að ég byrji bara á því að prófa að skipta um allar perur :)
BMW E34 540i
BMW E30 325i, seldur
gummio
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 26
Joined: Wed 10. Mar 2004 14:44
Location: Reykjavík

Postby Nökkvi » Tue 14. Dec 2004 10:40

Ef þú ferð út í að skipta um allar perur í bílnum væri ekki vitlaust að hreinsa kontaktana í leiðinni. Skýtugir kontaktar geta orsakað að tölvan skynjar þetta sem sprungna peru.
Nökkvi
BMW E36 Alpina B3 3,0 cabrio
Seldir: BMW E46 328i '99, BMW E39 540i '96, Audi Cabrio 2,0 '93, BMW E36 325i Coupé '93
Image
User avatar
Nökkvi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 316
Joined: Sun 18. Apr 2004 22:26
Location: Ísland

Postby Bjarki » Tue 14. Dec 2004 11:15

endilega að pósta hvað kemur út úr þessu.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Bjarki » Thu 16. Dec 2004 01:18

Aðeins út fyrir efnið en samt tengt. Var að tengja check control í bíl sem var upphaflega ekki með tékkcontrol. Til þess að light control module viti þegar pera springur þá þarf að vera einn vír frá þessu boxi og að perunni.
Einn í stöðuljós að aftan hægra megin annar vinstramegin
sama með bremusljósin og númeraplötuljósin. Tók smá tíma að fatta þetta allt og fá allt til að virka en tókst á endanum :lol:
Nauðsynlegt að vera með check-control!
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby gummio » Thu 16. Dec 2004 15:52

Ég tók frá kvöldstund og skipti um allar perur en villumeldingin er enn til staðar. Ég reyndi að hreinsa alla tengla og spreyjaði í þá WD-40 og einnig í öll tengi sem ég fann.

Skrýtið samt með bremsuljósin. Eins og ég tók fram áður, þá kemur aldrei melding um þau séu farin nema þegar ljósarofin er annaðhvort á park eða aðalljósum.
BMW E34 540i
BMW E30 325i, seldur
gummio
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 26
Joined: Wed 10. Mar 2004 14:44
Location: Reykjavík

Postby Bjarki » Thu 16. Dec 2004 15:57

gummio wrote:spreyjaði í þá WD-40 og einnig í öll tengi sem ég fann.


WD-40 er gott efni en það einangrar og er ekki gott á svona tengi. Verður að nota einhvern góðan contact treatment, líka selt í spray-brúsum.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests