BWAHAHAHAHAHHA!!!!!
Þú ert óborganlegur...... En já frumlegur í leiðinni.. Það er alltaf kostur.
Held ég hafi ekki gert svona kjánalega hluti hingað til alla vega. Eða ....
Jú!!, Ok fyrst þegar ég fékk bílpróf, keypti ég mér Toyotu Rollu G6 98, með 6 gíra úber kassa og 1300 cc vél, ágætis bíll og allt það, en á þeim tíma þá var maður sko ekki maður með mönnum nema að hafa loftsíu cone í bílnum hjá sér,,, jæja ég fór í Bílabúð benna, keypti mér cone sem gaurinn mælti með í þessa bíla, hann meira segja mældi fyrir þessu og ákvarðaði stærðina á honum og lét mig hafa ss frekar lítinn cone útaf hann sagði að þetta væri svo lítill mótor,, jæja, ég var ekki búinn að keyra bílinn mikið þegar ég keypti þetta þannig ég hafði litla reynslu af þessum bíl. Ég henti síunni í, tengdi loftflæðiskynjarann og rock og roll, heyrðist svona smá prump í þessu og kallinn sáttur í alla vega viku með nýja moddið...
Svo gerist það þegar ég sel bílinn, að maðurinn sem keypti bílinn vildi ekki fá síuna, þannig ég setti orginal síuboxið í, og viti menn, bíllinn var MIKIÐ aflmeiri og hentist alveg af stað miðað við með síuna í..
Djöfull langaði mig að bitchslappa sjálfan mig á þessum tíma
