bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 23. May 2025 09:52

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 26 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: heimskuleg mod
PostPosted: Fri 26. Nov 2004 22:01 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45
Posts: 1376
ég á kannski metið,
audi 200 turbo. 84,
ég keypti spacera, 5mm og hélt að
orginal boltarnir mundu duga......
gerðu það ekki, og missti undan bílnum
framhjól....
litlar skemmdir og engin meiddist, en frekar
vandræðalegt.

pæliði samt íðí, hver tekur eftir svona smáatriðum?

annað , 87 bmw 528 E28
fannst hann alltof hár að framann,
fékk mér gormaklemmur og setti í.
fer svo með bílinn í inspection.
þá kemur í ljós að bíllinn er með
upphækkunarklossa!!!

þeir hjá bogl sögðu að þettta
væri eins og 2 ættu bílinn , annar vildi
lækka hann, hinn hækka,
djöfuls rugl :lol:
aftur vandæðalegt....

_________________
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: heimskuleg mod
PostPosted: Fri 26. Nov 2004 22:06 
ta wrote:
annað , 87 bmw 528 E28
fannst hann alltof hár að framann,
fékk mér gormaklemmur og setti í.

keyrðiru bílinn með gormaklemmur á gormunum ? :hmm: :-s

Top
  
Reply with quote  
 Post subject: Re: heimskuleg mod
PostPosted: Fri 26. Nov 2004 22:18 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45
Posts: 1376
oskard wrote:
ta wrote:
annað , 87 bmw 528 E28
fannst hann alltof hár að framann,
fékk mér gormaklemmur og setti í.

keyrðiru bílinn með gormaklemmur á gormunum ? :hmm: :-s

jebb, það er/var til svoleiðis í bílanaust,
, líklega frekar hugsað fyrir
jeppa en bmw , sett á þannig að 2 hringir lögðust saman.

_________________
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. Nov 2004 22:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
hehehhe nutcase :twisted:

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. Nov 2004 22:43 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45
Posts: 1376
gunnar wrote:
hehehhe nutcase :twisted:

takk takk,
en fleiri mod átti ég til, sem komu ekki svona í bakið
á mér :D . á gti 82 golf.
keypti þessar fínu ATS 15 álfelgur.
djúpar og flottar, ég lét skera 15" plexigler , sem ég
skrúfaði á þær sem koppa, kom geðveikt vel út á ferð...
og hélt felgunum þokkalega hreinum.
boraði stutt göt í þær til að geta skrúfað diskana fasta,
var með þetta lengi,, bara svalur.

_________________
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. Nov 2004 22:50 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
BWAHAHAHAHAHHA!!!!!

Þú ert óborganlegur...... En já frumlegur í leiðinni.. Það er alltaf kostur.

Held ég hafi ekki gert svona kjánalega hluti hingað til alla vega. Eða ....

Jú!!, Ok fyrst þegar ég fékk bílpróf, keypti ég mér Toyotu Rollu G6 98, með 6 gíra úber kassa og 1300 cc vél, ágætis bíll og allt það, en á þeim tíma þá var maður sko ekki maður með mönnum nema að hafa loftsíu cone í bílnum hjá sér,,, jæja ég fór í Bílabúð benna, keypti mér cone sem gaurinn mælti með í þessa bíla, hann meira segja mældi fyrir þessu og ákvarðaði stærðina á honum og lét mig hafa ss frekar lítinn cone útaf hann sagði að þetta væri svo lítill mótor,, jæja, ég var ekki búinn að keyra bílinn mikið þegar ég keypti þetta þannig ég hafði litla reynslu af þessum bíl. Ég henti síunni í, tengdi loftflæðiskynjarann og rock og roll, heyrðist svona smá prump í þessu og kallinn sáttur í alla vega viku með nýja moddið...

Svo gerist það þegar ég sel bílinn, að maðurinn sem keypti bílinn vildi ekki fá síuna, þannig ég setti orginal síuboxið í, og viti menn, bíllinn var MIKIÐ aflmeiri og hentist alveg af stað miðað við með síuna í..

Djöfull langaði mig að bitchslappa sjálfan mig á þessum tíma :oops:

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. Nov 2004 23:03 

hehehehheh, alveg endalaust skemmtilegt ,
gaman að vita að það eru fleiri sem hafa verið að rembast ....

svo setti ég líka 16V loftnet á alla bíla sem ég átti.
16v loftnet er loftnetið sem vw setti á firsta 16v golfinn.
ég setti þetta líka á bmw-inn minn, bara límt,
D&W selur þetta með bara lími, reyndar tengdi ég
þetta á kadett gsi sem ég átti, en á bmw var þetta
all show, svona eins og mér finnst sharktail loftnet/
navi -netið á nýju bmw flott, það má kaupa það
með bara lími ......hmmmmz

_________________
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. Nov 2004 23:26 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45
Posts: 1376
fleiri tilganglaus mod voru að taka burt öll merki,
gti , 325, 320, og þega ég átti vw golf, þá varð maður
að taka líka út vw merkið úr grillinu, til að fá svona breiðara
hreinna look, þá varð maður að fá annað grill.
nota rimla úr því
saga burtu merkið, og líma inn beina rimla,
mikið hreinlegra, og burtu með kastarana í
grillinu , bara aðalljós og rimla á milli, clean,
og virkaði bara vel. líka burtu með rauðu röndina,
sem gti grillin voru með....
og leggja niður afturrúðu þurkuna, þannig
að hennar "homeposition" var niðri en ekki
uppi á miðri rúðu.....
kannast einhver við svona?

_________________
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. Nov 2004 23:37 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Ég sett rosa flott carbon fiber cold air intake í clioinn sem ég átti og líkaði vel. Svo ætlaði ég nú að leggja þetta flott alveg niður í stuðara og það gerði ég svo með barka sem ég fékk í byko. Tók loftventil, sem loftið inn í orginal síuna fór í gegn um og var stjórnað af loftrakaskynjara, úr bílnum til að koma barkanum á réttan stað. Töluvert bras en bara gaman.

Helvíti flottur á því og alveg viss um aukið afl skelli ég mér upp á kvartmílubraut eftir ísetninguna til að taka flott run en tímarnir voru svo bara ekkert betri (svona 0.3sek verri en áður) en þegar ég var bara með barka sem vísaði rétt svo í áttina að köldu lofti. Svo fóru þeir fljótlega að hraka ennþá meira og vélin var bara alveg freðin eftir svona 6000rpm. Þetta var mikil breyting þar sem vanalega virkaði vélin best frá 5500 til 7000rpm.

Mér var nú hætt að lítast á þetta og var farinn að halda að helv.. ventillinn væri að bögga mig svo ég dríf mig heim til að henda helvítinu í aftur en hef þó Byko-barkann góða ennþá á endanum. Engu munaði þó um það og bíllinn ennþá alveg freðinn á botngjöf.

Jæja ég fér upp í B&L á mánudeginum og þeir skoða bílinn hægri vinstri en finna ekkert. Þeir þjöppumæla vélina og ég veit ekki hvað en ekkert gerist. Svo reif einhver þeirra blessaðan barkann af fyrir eitthvað testið og búmm nú virkar dýrið alveg eins og andskoti.

Þá hafði helvítið barkinn lagst saman á gjöf þannig að vélin bara kafnaði og ekkert gerðist.

Mér hefur sjaldan liðið eins heimskulega eins og þegar ég sótti bílinn í B&L og fékk að heyra það frá þeim á verkstæðinu...

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 26. Nov 2004 23:52 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
:lol2:

þetta er hrikalega fyndið allt saman... en ég hef nú bara aldrei moddað neitt sjálfur :oops:

man reyndar einu sinni eftir að hafa farið með bíl í umfelgun, þeir snéru dekkjunum í ranga átt... og á leiðinni heim í hálkunni snéri ég bílnum 4 sinnum í 180 gráður á leiðinni :lol: , áður en ég fattaði hvað þeir höfðu gert!

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Nov 2004 00:08 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45
Posts: 1376
hvað með tvískiptar rúllugardínur í afturglugga?
svört afturljós?
eldingavara?
pinstripes?
það er 80s

_________________
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Nov 2004 02:19 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Posts: 1420
Location: Omnom nom nom
sheess, ekki vill maður sleppa því að vera með eldingarvara í bílnum sínum hérna á Ísland! :)

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Nov 2004 08:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Þegar ég flutti inn E36 Coupe bílinn þá var hann alveg slammaður og ókeyrandi. Komst að því að hann var með eibach lækkunarsett og Koni dempara.

En til að geta keyrt bílinn þá fór ég í málmsteypuna hellu og keypti upphækkunarklossa og setti í. Hækkaði hann smá en hann varð hörku skemmtilegur í akstri.

Heimskulegasta moddið var samt held ég þegar ég setti svaðalega hátalara í framhurðarnar á einum bíl, og gat svo ekki opnað rúðurnar alla leiðina niður. :oops:

_________________
Image
E36 M3GTtt

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Nov 2004 12:26 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
fart wrote:
Þegar ég flutti inn E36 Coupe bílinn þá var hann alveg slammaður og ókeyrandi. Komst að því að hann var með eibach lækkunarsett og Koni dempara.

En til að geta keyrt bílinn þá fór ég í málmsteypuna hellu og keypti upphækkunarklossa og setti í. Hækkaði hann smá en hann varð hörku skemmtilegur í akstri.

Heimskulegasta moddið var samt held ég þegar ég setti svaðalega hátalara í framhurðarnar á einum bíl, og gat svo ekki opnað rúðurnar alla leiðina niður. :oops:

Þetta hafa verið ROSALEGIR hátalarar... það er nú ansi fyndið að lesa þetta... maður hefur greinilega ekki verið nógu duglegur að prófa sig áfram... :roll:

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 27. Nov 2004 12:42 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Posts: 2674
Location: Reykjavík
bebecar wrote:
Þetta hafa verið ROSALEGIR hátalarar... það er nú ansi fyndið að lesa þetta... maður hefur greinilega ekki verið nógu duglegur að prófa sig áfram... :roll:

Kallast heilbrigð skynsemi Ingvar.

_________________
1990 Benz 250D W124

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 26 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
cron
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group