Að rice-a eða ekki að rice-a, það er málið?

Hér skal spjalla um BMW.

Að rice-a eða ekki að rice-a, það er málið?

Postby Þórður Helgason » Wed 12. Mar 2003 00:38

Getiði á mannamáli skýrt fyrir mér, hvernig þið skilgreinið
rice-ingu á bíl?
Ég hef auðvitað hugmyndir um þetta, en mér finnst þær kannski ekki alveg alltaf í samræmi við það sem ég sé hér á (vef)svæðinu.

Má ég t.d. setja lítinn gúmmíspoiler á skottið hjá mér, án þess að vera kallaður rice-isti?

Eða framaná bílinn?

Ég veit að 30 sm vængur, hnoðaður á skottlokið er rice-ing og alveg hrikalega ljótt, en smá skirt og létt spoilering hlýtur að vera í lagi.

Kannski þetta séu Xenon ljósin sem menn eru að deila um annarsstaðar...

Límmiðar eru náttúrulega alveg útí hött, a.m.k flestir....

Er ég á villigötum, ég þarf að fá þetta á hreint fyrir vorið (E23)?
2002 árg 1969 rip
2002 árg 1971 rallýbíll (læknabíllinn) rip?
2000CA árg 1968 í langtímahvíld.
735i árg 1980 seldur.
318i árg 1989 seldur.
540i árg 1996. Frábær vagn. Seldur.
Þórður Helgason
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 476
Joined: Wed 20. Nov 2002 23:38
Location: Akureyri

Postby iar » Wed 12. Mar 2003 01:37

Nettir spoilerar teljast varla grjónun á bíl. Til dæmis var mjög nettur spoiler á mínum gamla:

Image

Þetta er nú ekki svo agalegt er það? ;-)

Málið er að mínu mati að gæta hófs, annars er stutt í grjónavitleysuna. Er líka algerlega sammála þér með límmiðana. "Límmiðahestöfl" eru af hinu illa.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby morgvin » Wed 12. Mar 2003 04:08

Grjónun það er að mínu mati allt fyrir utan litla netta spoilera og litlar svuntur (alpina svunturnar eru nettar) en hamann og hartge eiga það til að sleppa sér alveg.

sem sagt ég er mjög mikið fyrir original útlitið og vill það helst óbreitt shodow line er alveg á mörkunum fyrir mér en jú það sleppur stundum.
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.
User avatar
morgvin
Getawaybílstjóri
 
Posts: 521
Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Location: Reykjavík(Selás)

Postby arnib » Wed 12. Mar 2003 04:36

Fyndið hvernig menn líta mismunandi á hlutina en mér finnst shadow line ekki vera á neinum mörkum á því að sleppa eða ekki.
Mér finnst krómið eiginlega frekar vera á þeim mörkum!

Shadowline er mjög stílhreint og myndi aldrei fara nálægt neinum flokki sem tengist hrísgrjónum að neinu leyti!

:)
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby arnib » Wed 12. Mar 2003 04:40

Og rice já almennt. Samkvæmt mínum skilningi er skilgreiningin á rice mjög mismunandi eftir bílum.
Það sem væri rice á einum bíl væri ekkert endilega rice á öðrum!

BMW 325i með ///M3 merki á skottinu.
Það er rice, og öll slík merkjakrísa er rice!

Honda civic með stóran spoiler:
Rice, en what the hell, bíllinn kemur í raun rice frá verksmiðju :)

:P
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby bebecar » Wed 12. Mar 2003 08:52

Ég er auðvitað fullkomlega ósammála að shadowline sé rice! En ætlað til þess að gera bílinn látlausann en ekki öfugt.

Arnib segir þetta vel með t.d. M3 merkingar á "ekki" M3 bíl.

Annars mætti segja að rice sé bara þegar verið er að láta bílinn líta út fyrir að vera annað og meira en hann í rauninni er!

Það er rice þegar menn mála gular porsche bremsur á bílinn sinn, setja límmiða á bensínlokið svo það líti út fyrir að vera "race" bensínlok, setja of stóra púststúta! Og svona mætti lengi telja....

Það er mjög hefðbundið að menn bæti bílana sína aðeins, t.d. með því að setja betra pústkerfi eða lækkun - en ef menn fara of langt þá er það rice!

Það sama finnst mér eiga við í of stórum felgum, of miklum lækkunum, of stórum púststútum og öllu slíku, mér finnst það vera á mörkunum að vera rice.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Djofullinn » Wed 12. Mar 2003 09:48

Í minni orðabók skilgreyni ég Rice sem svona Fast and the Furious dæmi, risastórir álvængir, límmiðar og svoleiðis krapp, aftur á móti finnst mér ekkert að því að hafa stór spoilerkit ef bíllinn samsvarar sér vel, t.d finnst mér bíllinn hannst Stebba langt frá því að vera Rice legur.....

Tökum sem dæmi mikið breytti 2002 bíllinn sem flestum hérna finnst hræðilegur, ef maður mundi taka Rice spoilerinn af honum þá fyndist mér hann mjög vel uppgerður og flottur bíll

En þetta er bara mín skoðun á þessu :roll:
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby gstuning » Wed 12. Mar 2003 09:51

Sko þetta er ekki mismunandi eftir bílum, eða hvað það er,

Að rice-a bíl er að merkja hann þannig að hann eigi að sýnast það sem að hann er ekki, Þetta er ekki flóknari en það,

spoiler kit, vængir, stórar felgur, of lækkaðir, ljótir, kraflausir er ekki rice,

Upprunalega er það að merkja bílinn sinn sem annað en hann er,

Það er bara búið að afbaka rice-un svo mikið að menn mega ekki gera neitt þá er STOCK POLICE mætt á svæðið til að öskra rice rice,

Gerðu það sem að þér finnst flott, það getur hvort eð er enginn sagt neitt,
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby bebecar » Wed 12. Mar 2003 10:02

Það er reyndar nokkuð til í þessu hjá þér.

Upprunalega er rice að sýnast eitthvað annað en hann er. Ætli það sé ekki best að halda sig við þá skýringu..... :D

Stock police er líka oft fljót á svæðið! :oops:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby bjahja » Wed 12. Mar 2003 13:39

Það eru búnar að vera miklar umræður um þetta útum allt t.d á hugi.is/bilar. Og menn eru mjög óssammála.
En svona skilgreini ég rice:

Það fyrsta á mínum lista er að þykjast vera eithvað sem þú ert ekki.
Límmiðar fara mjög í mig "race" bensínloka límmiðar eru þar verstir, líka mugen límmiðar á Yaris og fleirra í þeim dúr.
Tattoo, úfffff
Universial ál-spoilerar og aðrir flugvéla vængir, eru að mínu mati rice lexus ljós, nema á lexus
Of skærir litir, smbr F&F
Neon ljós, allavegana mikið af þeim.

En ég stefni á það að setja m-kitt á minn og ég ætla rétt að vona að það bendli enginn því við rice, því bmw hannaði það og það er látlaust kitt. Ég ætla hinsvegar ekki að setja m3 merkingar, því ég er ekki fífl.

p.s Shadowline er að mínu mati hvergi nærri því að vera rice, þetta gerir hann skuggalegan og það er öfugt við rice, sem er það að sækjast eftir athygli.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby hlynurst » Wed 12. Mar 2003 14:22

Ég vona að M-kitt sé ekki rice... :roll:
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby Gunni » Wed 12. Mar 2003 15:01

hlynurst wrote:Ég vona að M-kitt sé ekki rice... :roll:


ef að M-kit teldist ræs þá held ég að það væri bara hægt að hætta þessu .... :oops:
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby morgvin » Wed 12. Mar 2003 15:20

Það var kannski fullgróft að bendla Shadowline við rice en það er verið að taka í burtu hluta af bílnum.
Ég er svona maður sem vill hafa krómið á sínum stað (sérstaklega í grillinu) þetta sleppur á bílnum hans Babecar en það er fullgróft t.d. á gömlu sexunum.
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.
User avatar
morgvin
Getawaybílstjóri
 
Posts: 521
Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Location: Reykjavík(Selás)

Postby arnib » Wed 12. Mar 2003 18:03

Ég skal vel samþykkja þessa skilgreiningu.

Rice: Að láta bílinn sinn líta út fyrir að vera eitthvað sem hann er ekki

:-)
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby Gunni » Wed 12. Mar 2003 19:52

arnib wrote:Ég skal vel samþykkja þessa skilgreiningu.

Rice: Að láta bílinn sinn líta út fyrir að vera eitthvað sem hann er ekki

:-)


s.s. ef ég set m-tech kittið á 325 bílinn minn er hann þá rice, því hann lítur út eins og M-bíll en er ekki m bíll ??
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 19 guests