Getiði á mannamáli skýrt fyrir mér, hvernig þið skilgreinið
rice-ingu á bíl?
Ég hef auðvitað hugmyndir um þetta, en mér finnst þær kannski ekki alveg alltaf í samræmi við það sem ég sé hér á (vef)svæðinu.
Má ég t.d. setja lítinn gúmmíspoiler á skottið hjá mér, án þess að vera kallaður rice-isti?
Eða framaná bílinn?
Ég veit að 30 sm vængur, hnoðaður á skottlokið er rice-ing og alveg hrikalega ljótt, en smá skirt og létt spoilering hlýtur að vera í lagi.
Kannski þetta séu Xenon ljósin sem menn eru að deila um annarsstaðar...
Límmiðar eru náttúrulega alveg útí hött, a.m.k flestir....
Er ég á villigötum, ég þarf að fá þetta á hreint fyrir vorið (E23)?



