!"#$%!"#$&# löggur

Hér skal spjalla um BMW.

Postby Haffi » Sun 09. Mar 2003 21:04

Eins ljósaóður og ég er (með Super Plasma Xenon White perur í öllu) þá hef ég lært að hafa slökkt á þessu eftir 4 sektir fyrir að vera með kveikt á kösturum á kvöldin en á daginn er ég alltaf bara með kastarana í gangi og ef ég þarf að flýta mér eitthvað í "neyð" þá er ég með kastarana á +ljósin og blikka háu inn á milli til að fólk sem keyrir á 70 sem hugsa bara um sig í umferðinni og víkja ekki fyrir neinum og eru vinstramegin á miklubrautinni á 60-70 en annars þar á milli er slökkt á þeim þegar dimma fer.

Annars er ég sammála því... það er nú helvíti töff að vera með kastarana kveikta :) en svona erum við ungu BMWstrákarnir hérna alveg kolruglaðir.
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Gunni » Sun 09. Mar 2003 21:55

Haffi wrote:Eins ljósaóður og ég er (með Super Plasma Xenon White perur í öllu)


hvernig perur eru þetta, og hvar fást þær ?? eru til svona xenon white perur fyrir parkljósin líka ?? ég er bara með cool blue og mér finnst þær ekki vera alveg nógu flottar, og svo er ég bara með venjulega gulleita í parkinu.
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Haffi » Sun 09. Mar 2003 22:00

í 12volt, allavega lookar minn helvíti vel að framan með allt svona skært og flott :) ekkert gulleitt neinstaðar.
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Raggi M5 » Mon 10. Mar 2003 01:34

Og hvað kostaði pakkainn, ég var að pannta Xenon perur í minn á geggjuðum díl.
E39 525d Touring ´03
Toy Yaris T-Sport ´02
Yamaha R1 ´05


Alpina wrote:M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......
User avatar
Raggi M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3236
Joined: Wed 04. Sep 2002 22:02
Location: Njarðvíkingur!

Postby Dr. E31 » Mon 10. Mar 2003 01:38

Ljósin í framsvuntuni heita "ljóskastarar" ekki þokuljós, þokuljós eru eins og aðalljós nema það er beinn skurður lárétt yfir mitt ljósið ekki 9:10 eins og í aðalljósum. Kastarar kasta ljósklessu sem dreifist nokkrum metrum fyrir framan bílinn. Bara svona að greiða úr þessari flækju.

Takk
User avatar
Dr. E31
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1898
Joined: Wed 11. Sep 2002 01:19
Location: Reykjavík

Postby saemi » Mon 10. Mar 2003 08:15

Ég er nú ekki sammála þessu.

Þegar maður flettir upp í "owners manual" þá stendur að þetta séu "Front fog lights". Það er það sem stendur þegar maður er að kíkja á hvað ljósið í mælaborðinu þýðir, þegar það er kveikt á fram "kösturununum".

Sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Haffi » Mon 10. Mar 2003 08:21

einhvern 5000kall komið í aðalljós og háuljós svo kostuðu litlu stunguperurnar í parkljósin 1200kall og h1 perurnar í kastarana 2500kall.
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Djofullinn » Mon 10. Mar 2003 09:38

Ég er búinn að sjá þessar perur hjá Haffa og þetta kemur bara djöfulli vel út! Fyrsta sem ég spurði hann þegar ég sá þetta var hvort bíllinn hans væri með Xenon ljósum :D Ég ætla einmitt að fá mér svona perur í minn þegar hann kemur á götuna
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Propane » Mon 10. Mar 2003 09:41

Ég er að reyna að stefna að því að skrifa bréf í Moggann, sem beint er að lögreglunni í Reykjavík, sem að varðar BMW. Ég ætla í því að spyrja þá hvort að málið sé að BMWar séu stöðvaðir frekar en aðrir bílar í umferðinni. Ef ég ek í röð bíla, og löggan er að mæla, er ég frekar stöðvaður fyrir ofhraðan akstur heldur en þeir sem að eru fyrir framan mig eða aftan mig. Hvort að ég lít út fyrir að eiga pening fyrir sektinni eða hvort að þetta sé hreinlega öfund lögreglunnar út í bílinn minn, veit ég ekki. Lögreglan er ekki á háu kaupi. Þetta ætla ég að skrifa í moggann. Og hvort að ég þurfi endilega að vera eiturlyfjasali, því ég ek á bmw. Bréfið á eflaust eftir að vekja mikla athygli.
Don't Follow me, you won't make it.
Stebbi. BMW 523iA E39 (áður 318iA og 518i ss)
User avatar
Propane
Kassabílstjóri
 
Posts: 175
Joined: Mon 23. Sep 2002 13:06
Location: Iceland

Postby GHR » Mon 10. Mar 2003 11:32

Propane wrote:Ég er að reyna að stefna að því að skrifa bréf í Moggann, sem beint er að lögreglunni í Reykjavík, sem að varðar BMW. Ég ætla í því að spyrja þá hvort að málið sé að BMWar séu stöðvaðir frekar en aðrir bílar í umferðinni. Ef ég ek í röð bíla, og löggan er að mæla, er ég frekar stöðvaður fyrir ofhraðan akstur heldur en þeir sem að eru fyrir framan mig eða aftan mig. Hvort að ég lít út fyrir að eiga pening fyrir sektinni eða hvort að þetta sé hreinlega öfund lögreglunnar út í bílinn minn, veit ég ekki. Lögreglan er ekki á háu kaupi. Þetta ætla ég að skrifa í moggann. Og hvort að ég þurfi endilega að vera eiturlyfjasali, því ég ek á bmw. Bréfið á eflaust eftir að vekja mikla athygli.


Ó,já það á sko eftir að vekja athygli.
Keep it up
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Postby Svezel » Mon 10. Mar 2003 12:15

Ég var stoppaður í byrjun febrúar á bimmanum niðri í bæ með kastarana á. Löggan fór eitthvað að tuða um að þetta væri ólöglegt og spurði mig svona í háði hvort ég hefði verið að keyra í þoku. Þá sagði ég honum bara að ég hefði verið að keyra niður við Sundahöfn(sem ég var) og þar hefði verið svo mikill skafrenningur(þar var reyndar skafrenningur) að ég hefði kveikt á kösturunum en gleymt þeim á. Það kom fát á lögguna og hún sagðist ekki geta annað en sleppt mér fyrir svona góða afsökun :D

Annars kveiki ég aldrei á kösturunum á Clio'inum, það þarf ekki þegar maður er með Xenon 8)
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby flamatron » Mon 10. Mar 2003 12:31

Mér finnst það vera rugl að fá ekki að vera með kveikt á kösturunum alltaf, þessir Bmw kastarar eru ekki blindandi, svo er hægt að stilla þá þannig að þeir blindi ekki,. :!:
Það ætti að stoppa suma nýja Benza, og Bmw'a fyrir að vera með svona ULTRA Xenon dæmi, sumir bílarnir eru með svo skærar perur að maður blindast við það að vera á undan þeim eða að mæta þeim.!! :x
Tómas
BMW 325ic '95
Isuzu Trooper '99
User avatar
flamatron
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1387
Joined: Sat 31. Aug 2002 17:41

Postby bebecar » Mon 10. Mar 2003 13:00

OK - við eigum ekki að bögga löggurnar fyrir að sinna vinnunni vel og vandlega! Við brjótum örugglega flest allir umferðarreglur daglega t.d. með því að aka á meiri hraða en hámarkshraða, gleyma stefnuljósum, taka frammúr á óbrotnum línum o.s.frv

Ef menn vilja hinsvegar hafa kveikt á hégómaljósunum :wink: þá mega þeir ekki verða fúlir og pirraðir fyrir að fá sektir fyrir það.

Þetta er ólöglegt og engin þörf á að hafa kveikt á þessu nema í slæmu skyggni, ég get alveg skilið þessu sé framfylgt alveg eins og með rúðuþurrkupissljós, filmur og slíkt. Mér finnst pínu halló að hafa kveikt á þessu en er samt nógu hégómlegur til að kveikja á þeim sjálfur þegar teknar eru myndir af bílnum....

Menn hafa svo líka bara gott af því að velta fyrir sér sínum eigin hegómleik - hégómi er ekki dyggð heldur ein af sjö höfuðsyndunum ef ég man rétt.

Svona til gamans má benda á að í "eigenda spánverjanum" er að finna "vanity light" sem að bar nafn með rentu, en það er ljósið í sólskyggnunum og er tilgangur þess t.d. að létta konum það verk að snyrta sig og bera á sig farða og varalit og slíkt. Mér finnst það mjög skondið að nú orðið ætti þetta betur við um þokuljósin, allavega hvað stráka varðar - þokuljósin eru nefnilega einskonar vanity light hjá mörgum strákum!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Raggi M5 » Mon 10. Mar 2003 13:48

Haffi wrote:einhvern 5000kall komið í aðalljós og háuljós svo kostuðu litlu stunguperurnar í parkljósin 1200kall og h1 perurnar í kastarana 2500kall.


Fyrst að þú nefnir þetta, það var spurt mig hvað ég væri með í mínum eikkað H dótarí, getur einhver gefið mér smá info hvað ég á að pannta í þessu H dóti??
E39 525d Touring ´03
Toy Yaris T-Sport ´02
Yamaha R1 ´05


Alpina wrote:M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......
User avatar
Raggi M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3236
Joined: Wed 04. Sep 2002 22:02
Location: Njarðvíkingur!

Postby saemi » Mon 10. Mar 2003 17:52

Frábært innlegg hjá þér Ingvar. Ég gæti ekki verið meira sammála.

Hégómaljósum... vanity light... ehehehheeheh alveg milljón.

Ég er alveg sammála með að það getur verið flott að hafa kveikt á þessu, sérstaklega þegar á að festa bílinn á filmu/kubb. Þessvegna setur maður nú líka háu ljósin á og stefnuljósin. En maður keyrir ekki um svoleiðis !

Við eigum ekki að vera að böggast út í það þó að löggan sé að stoppa okkur þegar við bjóðum upp á það!

Ég hef nú ekið um á kolsvörtum BMW með filmur í rúðum (að vísu það ljósasta sem hægt er) í 2 sumur og ég hef ekki verið stöðvaður í eitt einasta skipti.

Ég ætla ekki að segja að það hafi verið vegna þess að ég keyri eins og kelling, heldur vegna þess að ég keyri eins og maður. Ef maður hegðar sér eins og maður í umferðinni, þá fær maður ekki röfl !

Ég vona svo að þessi grein sem á að senda í Moggann fari ekki að bendla okkur BMW menn við eitthvað "anti-authority" dæmi, því ég er alls ekki sammála því að löggan sé eitthvað sérstaklega á móti okkur BMW mönnum. Það er hins vegar staðreynd að þessi bílategund laðar að sér misjafna karaktera og þessvegna verðum við að sætta okkur við að í einstaka tilfellum séum við settir undir sama hatt, þegar okkur er ruglað saman við þá.

Svo myndi ég fara varlega út í fullyrðingar með að BMW séu stoppaðir oftar en aðrar bíltegundir. Hvernig ætlarðu að sanna það? Er það hægt yfir höfuð? Þú verður þá ábyggilega að hafa aðgang að skýrslum lögreglunnar til að styðja þá kenningu ef hún á við rök að styðjast.

Hvaða réttlæti er það að löggan megi bara stoppa jafn marga BMW 5-línu og Toyota Carina! Það er hundalógík í mínum eyrum. Ef löggan er á eftir einhverjum asna og/eða eiturlyfjasala sem er á eins bíl og mínum, þá má hún alveg stoppa mig þangað til hún finnur asnann.

Þessi grein sem á að fara í mbl á kannski eftir að vekja athygli, en ef innihaldið verður á sömu nótum og það sem var skrifað hérna, þá er ég á þeirri skoðun að hún valdi nú bara brosi á vörum bílaáhugamanna, sérstaklega þeim er finnst gaman að hía á BMW. Og aðrir nenni svo ekki að lesa hana!

Svo eitt með að stilla þokuljósin til að þau blindi ekki. Hvað ætlarðu þá að gera þegar þú lendir í þoku? Fara og stilla þau þá aftur þannig að þau blindi í blindaþoku :roll:

Sæmi sípælandi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 11 guests