getur einhver sagt mér um þennan 325

Hér skal spjalla um BMW.

getur einhver sagt mér um þennan 325

Postby SUBARUWRX » Thu 14. Oct 2004 17:25

þekkir einhver til þessa bmw? endilega póstið þ´vi sem þið vitið um hann

og hver er munurinn á i og ix ??

http://www.bilasolur.is/bisImageServer.aspx?img=25830058&size=fullsize&watermark=bilasolur.is
Last edited by SUBARUWRX on Thu 14. Oct 2004 17:26, edited 1 time in total.
Bmw 325i e36 '94
SUBARUWRX
Getawaybílstjóri
 
Posts: 930
Joined: Wed 01. Oct 2003 18:47
Location: Vestmannaeyjar

Postby arnib » Thu 14. Oct 2004 17:26

iX er fjórhjóladrifinn.
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby SUBARUWRX » Thu 14. Oct 2004 17:28

vá fljótur að svara, en eru þessir 325 fjórhjóladrifnu að virka eikkað ?

er 300 þús enn alltof mikið fyrir þennan hann er ekinn 190 þús með leðri og er bsk,
Bmw 325i e36 '94
SUBARUWRX
Getawaybílstjóri
 
Posts: 930
Joined: Wed 01. Oct 2003 18:47
Location: Vestmannaeyjar

Postby hlynurst » Thu 14. Oct 2004 17:32

Hann er ekki bara með leðri heldur geðveikum M stólum. :)

En fjórhjóladrifið er svo sem fínt á veturna en þyngir bílinn og hann ætti að vera hægari upp heldur en afturhjóladrifnir.

IX bílarnir eru líka með læstu drifi. :)
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby SUBARUWRX » Thu 14. Oct 2004 19:03

veit einhver hvað þetta er að eyða þegar þetta er fjórhjóladrifið (veit að það á ekki að spá í því) og þekkir einhver meðferðina á þessu og hvort það sé vit í að versla þetta...
Bmw 325i e36 '94
SUBARUWRX
Getawaybílstjóri
 
Posts: 930
Joined: Wed 01. Oct 2003 18:47
Location: Vestmannaeyjar

Postby O.Johnson » Thu 14. Oct 2004 19:51

Ef hann er lítið eða ekkert riðgaður þá er þetta fínnt verð á svona bíl.
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Postby hlynurst » Thu 14. Oct 2004 20:03

Hann er aðeins ryðgaður, aðallega á afturbrettunum... skoðaði þennan bíl fyrir ekki svo löngu. Virtist vera þokkalega búinn miða við hvað hann er gamall..
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby Alpina » Thu 14. Oct 2004 20:06

Er þet6ta ekki 87 bíll ,,,,,ef þetta er sá bíll sem að mig grunar ... þá var þetta fanta eintak fyrir 4 árum
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby hlynurst » Thu 14. Oct 2004 20:11

Þetta var víst '85 módel... fann hann á bilasolur.is
:)
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby Friðrik » Thu 14. Oct 2004 22:47

já hmm.. sko ég var að spá í þessum bíl fyrir um hálfu ári og þá var sá eigandi búinn að eiga hann í tæpt ár en árið þar á undan höfðu eitthvað hátt í 10 átt bílinn :shock: og það er eitthvað meira en lítið að ég myndi alllavega grandskoða hann... ég ætla ekkert að vera hallmæla bílnum bara svona segja þér frá þessu... þessi bíll er náttúrulega með geðveikt kúl innréttingu og lítur nokkuð vel út þannig að...
Friðrik
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 82
Joined: Mon 05. Apr 2004 22:19

Postby O.Johnson » Thu 14. Oct 2004 23:06

hlynurst wrote:Þetta var víst '85 módel... fann hann á bilasolur.is
:)

iX kom '86 þannig að hann getur ekki verið '85
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Postby oskard » Thu 14. Oct 2004 23:07

O.Johnson wrote:
hlynurst wrote:Þetta var víst '85 módel... fann hann á bilasolur.is
:)

iX kom '86 þannig að hann getur ekki verið '85


ETK segir að fyrstu hafi komið 85
oskard
 

Re: getur einhver sagt mér um þennan 325

Postby olithor » Fri 15. Oct 2004 22:56

Djöfull sá ég flottan 325ix í kringlunni í dag, voru á honum eldri hjón. hvítur 4.dyra með sílsakitti. Var á gömlu H númeri. rosalega smekklegur
Toyota Corolla 1600 GTi 88'
olithor
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 91
Joined: Sun 21. Sep 2003 23:07

Postby Schulii » Sat 16. Oct 2004 01:01

Ég er búinn að eiga tvo 325ix E30.

Sá fyrri var virkilega skemmtilegur. Með körfustólum og bara mjög snyrtilegri innréttingu. Og talandi um vinnslu að þá hef ég svosem ekki samanburð á venjulegum 325i með sömu M20 vélinni en allavega virkaði þessi MJÖG vel. Ég fór allavega 1/4 míluna á 15.3 sem er þokkalegur tími.

Það sem er auðvitað mikill + varðandi hröðun er að bíllinn er með svo frábært upptak. Þú missir þennan bíl ekkert í neitt spól eða neitt slíkt. Hann einfaldlega flýgur af stað!

Ég var að kaupa mér annan 4ra dyra E30 325ix. Hann lítur ekki eins vel út og gamli ix-inn minn en hann virkar alveg svakalega vel. Sérstaklega eftir að ég fór með hann til manns sem ég þekki og er mjög fær í að meðhöndla BMW.

Og eitt að lokum. Ég get alveg sagt þér það að það er sko ekki leiðinlegt að vera á 168 hestafla fjórhjóladrifnum BMW að leika sér í snjó þegar hann kemur 8) Þessir bílar eru þrælskemmtilegir akstursbílar á sumrin og sjúklega skemmtilegir á veturna.

Eyðslan er frá 11 uppí svona 14 l/100km. Fer auðvitað eftir akstri.

Eitt sem er gott að vita líka en það er að ix bílarnir eru töluvert frábrugðnir hinum 6cyl E30 bílunum varðandi mjög margt. T.d. er olíupannan á vélinni öðruvísi og það er ekki sjálfgefið að varahlutir úr E30 sem varða drif og vél og slíkt passi á milli. En það eru aðrir hérna sem vita meira um það heldur en ég.

Ef þetta er gott eintak og þú kaupir hann er ég viss um að þú munir ekki sjá eftir því. Mín reynsla er BARA góð af þessum bílum.
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby arnib » Sat 16. Oct 2004 01:13

Rétt er það Skúli að vél og hlutir tengdir drifi og slíku eru öðruvísi að mörgu leyti í iX bílnum.
Þó er hægt að nota afturdrif á milli bílanna, en þau eru þó samt ekki með samskonar læsingu.

iX bíllinn er líka frábrugðinn hvað varðar fjöðrun, en það þarf að skoða það sérstaklega ef að það á að kaupa nýja (sport-) fjöðrun í bílinn.
Sama gildir þá um strut-brace og slíkt, þar sem að munurinn liggur í hvernig strut-turnarnir eru í bílunum.

Að öðru leyti eru bílarnir að mestu leyti eins, body partar og allt slíkt passar á milli.
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 23 guests