Nökkvi wrote:
Í þessu verði er ekki búnaður s.s. sóllúga (950 EUR), þokuljós (200 EUR) eða Xenon ljós (790 EUR). Ef maður pantar allt sem í boði er er auðvelt að komast yfir 50.000 EUR og það fyrir smábíl.
Þetta er rosalegt, að það skuli vera hægt að bæta við 30k evrum við grunnverðið til að fá vel búinn ás!
Ég ætlaði mér að færa rök fyrir því að í öðrum línum BMW væri hægt að sjá svipaðar hlutfallslegar breytingar, t.d. 316i vs. fullbúinn 330i (3m -> ca 6m+) - en þau rök ganga hreinlega ekki upp. Í öllum öðrum línum er bilið milli neðstu útgáfu og dýrustu
mikið meiri en sem nemur muni á 116i og 120d.
Er málið ekki bara það að aukahlutirnir í 1-línunni kosta jafnmikið og aukahlutir í stærri línunum - ekki
hlutfallslega jafn mikið?
En talandi um verð á aukahlutum - m.v. vörugjaldsflokkana hef ég aldrei skilið hvernig verð á aukabúnaði er réttlætt (m.t.t. vörugjalds ). Leðursæti, Xenon ljós eða hvað sem er kosta jafn mikið í 1999cc bíl og í 3000cc lítra bíl.
Þar sem vörugjaldið er 15% hærra á "stærri" bílnum eru allir aukahlutir hans dýrari sem því nemur - vörugjald sem lagt er á þá í "stærri" bílnum er hærra en í "minni".
Eru aukahlutir á "minni" bílum þá að greiða niður aukahlutina á "stærri" bílunum - eða eru aukahlutirnir á minni bílunum ofrukkaðir (alltaf er rukkað f.aukahluti m.v. dýrari flokkinn)?
