bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 07. Jun 2025 17:47

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 30 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: Nýi Ásinn prófaður
PostPosted: Fri 08. Oct 2004 09:07 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Sun 22. Sep 2002 16:11
Posts: 129
Location: Garðabær
Ég var svo heppin að fá að reynsluaka nýjum 120i í gærkvöldi til Nesjavalla, í stuttu máli funky og skemmtilegur lítill bíll með flottu rallýsándi og vel sprækur, (prófaði sjálfskiptan) hlakka til að prófa 6 gíra beinskiptann. Fór svo yfir á nýjan 318i eftir ásinn...... ekkert líkir bílar og fyrir minn smekk, þá vel ég þristinn, enda held ég að ásinn komi til með að höfða til yngsta kaupendahópsins, sem ég tilheyri ekki lengur :?

Last edited by zx on Mon 11. Oct 2004 23:03, edited 2 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Oct 2004 09:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Eru kominn ás upp í B&L?

Ef svo er þá held ég að maður verði að kíkja eftir skóla :)

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Oct 2004 09:50 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Posts: 342
Location: Reykjavík
Ásinn mun ekki höfða til yngri kaupenda per se. Þótt ásinn sé ódýrari en þristurinn þá er hann samt helvíti dýr, en hann höfðar vissulega meira til yngri fólks með lítið af peningum heldur en þristurinn. En það sem Ásinn mun gera er að gefa kaupendum tækifæri til að kaupa BMW í "Golf" flokkinum. BMW reyndi það með BMW compact en mistókst, compactinn þótti ekki nógu vandaður og ekki í þessum venjulega BMW standard. Ég hef ekki prófað ásinn en það sem ég hef lesið um hann þá eru menn hrifnir af honum, þótt nýji Golfinn sé þó að fá betri dóma.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Oct 2004 11:09 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. Jul 2004 19:09
Posts: 901
Jói wrote:
Ásinn mun ekki höfða til yngri kaupenda per se. Þótt ásinn sé ódýrari en þristurinn þá er hann samt helvíti dýr, en hann höfðar vissulega meira til yngri fólks með lítið af peningum heldur en þristurinn. En það sem Ásinn mun gera er að gefa kaupendum tækifæri til að kaupa BMW í "Golf" flokkinum. BMW reyndi það með BMW compact en mistókst, compactinn þótti ekki nógu vandaður og ekki í þessum venjulega BMW standard. Ég hef ekki prófað ásinn en það sem ég hef lesið um hann þá eru menn hrifnir af honum, þótt nýji Golfinn sé þó að fá betri dóma.

Og svo að ég segji fyrir mína hönd, þá finnst mér Compact bílarnir vera frekar lummó og skil ekki enn hvers vegna þeir þurftu að fara útí þá sálma :?

_________________
Dóri
Image BMW 525i e34 '91 [SELDUR]
Image Opel Vectra CD 2.0 '97[Í notkun]

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Oct 2004 11:28 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Posts: 342
Location: Reykjavík
Compactinn var framleiddur út af sömu ástæðu og þeir byrjuðu að framleiða Ásinn, til að reyna að ná til fleira fólks og græða meiri peninga.

Golf flokkurinn er reyndar rosalega sterkur flokkur, þar eru mjög mikið af góðum rótgrónum bílum og kaupendurnir sækjast ekki eftir neinu "thrill" sem einkennir BMW. Hardcore Golf eða Corolla kaupendur munu ekki allt í einu kaupa sér BMW 1, sérstaklega þar sem þessir sömu kaupendur eru ekki að sækjast eftir BMW merkinu, kraftinum, eiginleikunum eða öllu því sem einkennir BMW. Ef þeir mundu sækjast eftir því, þá mundu þeir kaupa eldri BMW bíla hvort sem er. Þess vegna hef ég litla trú á því að BMW 1 muni verða eitthvað "success", þó svo að þetta virkar ágætis bíll og ágætis hugmynd.

BMW reyndu líka við "Hot hatch" markaðinn á sínum tíma með því að framleiða 318is bílanna (e30 og e36). Það mistókst í líka.

Mercedes Benz reyndu við nýja markaði með A bílnum. Sá bíll var bara hörmung frá A til Ö. En þessi dæmi sýna það hversu erfitt það er fyrir sterk merki að gera breytingar, sérstaklega á bílamarkaðinum.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Oct 2004 11:33 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Ég hef verið að lesa mikið um þessa bíla og ég er alveg svakalega spenntur fyrir 120d. Svo spenntur að þetta er eiginlega eini nýi bílinn á mínu verðbili sem ég gæti hugsað mér að kaupa :roll:

Vona bara að maður fái að prófa 120d

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Oct 2004 11:47 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Posts: 342
Location: Reykjavík
BMW 120d kostar 3 milljónir nýr og það er miðað við grunnverð. :shock: Þótt 2 l díselvélin er svakalega spennandi þá er ég enn eftir að komast að því hvort hún sé meira en spennandi, hvað þá að hún réttlæti verðmiðann.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Oct 2004 12:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Posts: 1638
Location: Reykjavík
Jói wrote:
Ásinn mun ekki höfða til yngri kaupenda per se. Þótt ásinn sé ódýrari en þristurinn þá er hann samt helvíti dýr, en hann höfðar vissulega meira til yngri fólks með lítið af peningum heldur en þristurinn. En það sem Ásinn mun gera er að gefa kaupendum tækifæri til að kaupa BMW í "Golf" flokkinum. BMW reyndi það með BMW compact en mistókst, compactinn þótti ekki nógu vandaður og ekki í þessum venjulega BMW standard. Ég hef ekki prófað ásinn en það sem ég hef lesið um hann þá eru menn hrifnir af honum, þótt nýji Golfinn sé þó að fá betri dóma.

Ég vissi ekki að golf væri að fá betri dóma? Ég hef einmitt heyrt öfugt! Golf eigi ekki séns í þennan bíl t.d. hvað aksturseiginleika varði! Eina sem ég hef heyrt menn setja út á þennan bíl er of lítið pláss í aftursætunum (þó ekki mikið minna en í golf), svo er verðið auðvitað hærra, samt sama verð og audi A3!

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Oct 2004 13:21 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Posts: 342
Location: Reykjavík
jonthor wrote:

Já, ég hef reyndar ekki marga samanburða dóma en t.d. WhatCar setti Golfinn framyfir Ásinn, eitt annað vefsíða sem ég man ekki hvað heitir, en Parkers er með Ásinn framyfir Golfinn. Getur vel verið að fleiri hafa gefið Ásnum betri dóma, ég þekki það kannski ekki alveg nógu vel. En Golfinn er óumdeilanlega talsvert ódýrari og praktískari. En svo virðist sem Golfinn muni líða fyrir bilanatíðni Golf IV og ólíklegt að Golf V verði áreiðanlegri. Einnig þykir Ásinn betri og þægilegri í akstri þó það muni litlu.

En ég held varla að það sé hægt að ganga svo langt að segja að Golfinn eigi ekki sjéns í Ásinn. Við skulum ekki gleyma að þessi "Golf" flokkur er ekki nefndur eftir Golf að ástæðulausu, því Golfinn hefur hreinlega átt þennan flokk. Ég er þó ekki að segja að Golfinn sé framúrskarandi bíll, en hann er ekki svona vinsæll að ástæðulausu.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Oct 2004 13:27 

Hehe, nei ég ætti að þekkja það, ég átti golf III 97 módel frá 97-00 og Golf IV 00 módel frá 00-03. Var mjög sáttur við báða bílana, fyrir utan einmitt þetta með bilanatíðnina, hún var áberandi meiri í Golf VI, ég var alltaf með bílinn í viðgerð, ég lenti aldrei í veseni með III. Bróðir konunnar keypti golf III nýjan 1994 og er búinn að keyra hann 230k. Still going strong. Vona að Golf V verði áreiðanlegri en IV.

_________________
JÞS
- 323i coupe - '96

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Oct 2004 13:35 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Posts: 342
Location: Reykjavík
Svolítið sérstakt hvað Golf IV bilaði mikið. Það er ekki eins og að tækninýjungarnar hafi verið svona svakalegar frá Golf III.

Golf IV skorar ekki hátt hjá mér, fyrir utan góðar vélar og vandaða hönnun (við fyrstu sýn). En aksturseiginleikar og áreiðanleiki var ekki í lagi í Golf IV sem gerir bílinn óspennandi fyrir mig. Annars þá vona ég að Golf V verði betri hvað varðar bilanatíðnina því mér finnst Golfinn lofa ansi góðu og ég hef alltaf verið pínu skotinn í Golfinum.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Oct 2004 13:39 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Ég sé nú ekki hvernig Golfinn er praktískari þar sem ásinn er nú í 1.lagi stærri og í 2.lagi betur búinn. Svo ætla ég að fullyrða að aksturseiginleikar ássins séu töluvert betri en á golfinum þótt ég hafi ekki ekið ásnum enn.

Mismunur á Golf 2.0 og 120i er líka undir 400þús svo mér finnst nú Golfinn ekkert vera mikið ódýrari. Hingað til hef ég ekki séð eftir auka 400k í BMW framyfir VW og fundist ég alltaf fengið vel mitt fyrir þann pening.

Golfinn hefur aftur á móti stóran kúnnahóp og góða afsögn í gegnum tíðina þótt síðustu módel hafi ekki alveg verið up to standards. Svo er bara spurningin hvernig fólk tekur ásnum en ég held að salan eigi eftir að ganga vel þegar fólk sér hvað það munar litlu á verði þessara bíla.

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Oct 2004 13:49 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Posts: 342
Location: Reykjavík
Svezel wrote:

Golfinn er með mun stærra skott, vegna þess að afturhjóladrifið í Ásinum tekur svo mikið pláss. Ennfremur er meiri pláss í aftursætunum og Ásinn satt að segja ekkert betur búinn. Flest tímarit skora þá jafnháa varðandi búnað.

Ég hef ekki ekið þessa bíla og ég geri ráð fyrir að aksturseiginleikar Ásins séu betri, en þeir sem hafa prófað þessa bíla og borið þá saman segja að munurinn sé ekki töluverður. En misjafn er manna smekkur og eðlilegt að menn á BMW spjallborði séu töluvert hrifnari af aksturseiginleikum Ásins, það liggur í augum uppi. En það er ekki allir á BMW spjallborðum og sennilega fleiri á VAG spjallborði. :wink:

Það er hægt að deila fram og til baka, hvað sé ódýr bíll. En a.m.k. kostar Golfinn minna. :wink:

Umfjöllum Parkers um BMW 1

Umfjöllum Parkers um Golf IV

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Oct 2004 14:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
He he ég ætti svosem ekki að vera tala mikið um praktík, akandi um á 2 sæta magasleða. :)

Ég tók náttúrlega ekki með inn í reikninginn plássið sem afturdrifið tekur, enda vill maður ekki sjá neitt annað en afturdrif í bíl héðan í frá :wink:

Golfinn er jú ódýrari og entry level golfinn er töluvert ódýrari en entry level ásinn svo þar er kannski ekki mikil samkeppni. En á top of the range vs top of the range (a.m.k. eins og staðan er í dag) er ekki svo mikið bil og ég held að þar hljóti bimminn nú að hafa vinninginn þótt aðeins dýrari sé.

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 08. Oct 2004 14:48 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Posts: 342
Location: Reykjavík
Meiri tíkin þessi praktík. Mér er svo sem skítsama um praktík, barnslaus og allslaus. Svo framarlega sem golfsettið kemst í skottið þá er ég sáttur. :wink:

Tja, top of the range verðmunurinn er auðvitað ekki eins mikill, enda er þá verðið á báðum bílunum búið að hækka talsvert og því minnkar verðmunurinn hlutfallslega. Ég veit ekki hvort verðbilið sem slíkt stækki eða minnki með hækkandi verði á þessum bílum. En grunngerðirnar eru álíka vel útbúnar, miðað við að þeir eru skoraðir jafnhátt varðandi búnað. Aukabúnaður á BMW hefur hingað til ekki talist ódýr, reyndar má það sama segja um Golf

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 30 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 46 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group