jonthor wrote:
Jói wrote:
Ásinn mun ekki höfða til yngri kaupenda per se. Þótt ásinn sé ódýrari en þristurinn þá er hann samt helvíti dýr, en hann höfðar vissulega meira til yngri fólks með lítið af peningum heldur en þristurinn. En það sem Ásinn mun gera er að gefa kaupendum tækifæri til að kaupa BMW í "Golf" flokkinum. BMW reyndi það með BMW compact en mistókst, compactinn þótti ekki nógu vandaður og ekki í þessum venjulega BMW standard. Ég hef ekki prófað ásinn en það sem ég hef lesið um hann þá eru menn hrifnir af honum, þótt nýji Golfinn sé þó að fá betri dóma.
Ég vissi ekki að golf væri að fá betri dóma? Ég hef einmitt heyrt öfugt! Golf eigi ekki séns í þennan bíl t.d. hvað aksturseiginleika varði! Eina sem ég hef heyrt menn setja út á þennan bíl er of lítið pláss í aftursætunum (þó ekki mikið minna en í golf), svo er verðið auðvitað hærra, samt sama verð og audi A3!
Já, ég hef reyndar ekki marga samanburða dóma en t.d. WhatCar setti Golfinn framyfir Ásinn, eitt annað vefsíða sem ég man ekki hvað heitir, en Parkers er með Ásinn framyfir Golfinn. Getur vel verið að fleiri hafa gefið Ásnum betri dóma, ég þekki það kannski ekki alveg nógu vel. En Golfinn er óumdeilanlega talsvert ódýrari og praktískari. En svo virðist sem Golfinn muni líða fyrir bilanatíðni Golf IV og ólíklegt að Golf V verði áreiðanlegri. Einnig þykir Ásinn betri og þægilegri í akstri þó það muni litlu.
En ég held varla að það sé hægt að ganga svo langt að segja að Golfinn eigi ekki sjéns í Ásinn. Við skulum ekki gleyma að þessi "Golf" flokkur er ekki nefndur eftir Golf að ástæðulausu, því Golfinn hefur hreinlega átt þennan flokk. Ég er þó ekki að segja að Golfinn sé framúrskarandi bíll, en hann er ekki svona vinsæll að ástæðulausu.