Ég nota original BMW þurkur, því að ég fann ekkert annað sem passaði. (Hér á Íslandi). Ástæðan fyrir því að ég spyr um hvort fólk noti RainX er að ég notaði efni um daginn sem heitir "Strip It", sem er eins og gróft tannkrem, það "djúphreinsar" rúðuna og srtipar allri drullu, siliconi, trjákvoðu og svoleiðis ógeði af rúðunni, og líka RainX'ið sem hefur verið á hjá mér, og núna renna þurkurnar létt og hljótt eftir henni en ekki eins og áður, hoppandi og marrandi. Mig langaði bara að fá álit ykkar áður en ég fer að halla RainX út um allt.
