Mér datt í hug að stofna annan þráð í svipuðum dúr og
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... ht=beygjur þar sem rætt var um vinsælar beygjur til að keyra greitt í.
Nú hefur maður svona verið að fíflast hér og þar í leit að hinni fullkomnu beygju til að taka flott slide í og þar standa þessar uppúr.
Afreinin af Hringbraut inn á Bústaðaveg. Ef það er t.d. grænt á umferð á Hringbraut og enginn að beygja inn á Bústaðaveg þá læt ég undantekningarlaust allt flakka og reyni að taka feitt slide. Gott pláss til að taka við afturendan og virkilega gaman að vera til
Afreinin af Miklubraut inn á Kringlumýrabraut. Sama scenario og í fyrri beygju og fínt pláss til að taka vel á því. Einnig er mjög gaman að koma hinum megin frá og taka vel á því í beygjunni inn á Miklubrautina.
Beygjan við Smáralind inn á Sæbrautina er líka mjög vinsæl hjá mér. Löng, aflíðandi og sæmilega breið = mikið gaman.
Svo eru nokkrar úti á Granda sem ég er mjög hrifinn af. Afreinin framhjá hringtorginu við Ellingsen er skemmtilega og beygjurnar við frystihús Granda rokka feitt.
Endirinn á Nesjavallaveginu og Grafningurinn eru fullir af skemmtilegum beygjum en þær eru að vísu rosalega blindar sumar þ.a. það er betra að fara með gát. Einnig er slitlagið ansi gróft og slide þar fer ekki vel með dekk.
Einnig er Hvalfjörðurinn uppfullur af góðum beygjum en síðast þegar ég keyrði þar var svo blint af rigningu að það stóð engin uppúr. Ég var hvort eð er sideways í þeim öllum
Svo eru nú einhverjar beygjur sem ég leik mér oft í en ætla ekkert að nefna því þær eru ansi þröngar og vinsældir byggjast aðalega á vana
Jæja hvað segið þið