Olíubrennsla.

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Olíubrennsla.

Postby Eggert » Mon 30. Aug 2004 20:01

Jæja, þá er kallinn að spá í einni E34 fimmu...

Hversu ó/eðlilegt er að bíllinn brenni um hálfum líter(kannski rúmlega það) af olíu við hvern bensíntank ?

Þetta er 520i '89 með m20 vélinni. Beinskiptur...

Einnig, þá er farið að heyrast í ventlum á vélinni, tjah.. eða undirlyftum. Ég er barasta ekki viss. Allavega eitthvað þvíumlíkt hljóð. Er ekki bara eðlilegt að þessir BMWar láti aðeins heyra í sér ?

Ef það er eitthvað sem þið getið bent mér á að skoða sérstaklega vel áður en ég kaupi, þá eru allar slíkar ábendingar vel þegnar.

:D
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby moog » Mon 30. Aug 2004 21:07

Þessi olíubrennsla er nú bara nokkuð svipuð þeirri og Galantinn minn er að brenna... sá bíll er ekinn 286 þús. og var hann keyptur til bráðabirgða á 20 þús. (hissa á því að hann sé ekki dauður ennþá) :? ... þannig ég tel að þetta sé nokkuð mikil brennsla... einhver fróðari en ég um þessi mál hlýtur að svara þér.
BMW 318i E46 1998 (Til sölu)
User avatar
moog
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1272
Joined: Mon 18. Aug 2003 13:57
Location: Reykjavík

Postby Eggert » Mon 30. Aug 2004 21:11

Þessi bíll er ekinn 278 þúsund, Mjög heill að virðist. En ég hef séð mun verri 520i E34 bíla ekna um 150 þúsund.
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby jonthor » Tue 31. Aug 2004 05:58

Væntanlega ekkert svo óeðlilegt m.v. þetta mikið ekinn bíl, þekkirðu ekki einhvern sem getur skipt um heddpakkningu fyrir þig? :D
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby sindrib » Tue 31. Aug 2004 09:04

bara senda heddið upp í kistufell þú sleppur örugglega undir 30 þús kr með því að láta skipta um ventlaþéttingar og allann pakkann, ekki nema olíu hringinir séu slappir, þjöppumældu bílinn ef þú ert eh alvarlega að spá í honum.
Merkur(sierra) xr4ti
User avatar
sindrib
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1099
Joined: Tue 13. Jul 2004 13:39
Location: Sønderborg, Danmark

Postby gstuning » Tue 31. Aug 2004 11:52

sindrib wrote:bara senda heddið upp í kistufell þú sleppur örugglega undir 30 þús kr með því að láta skipta um ventlaþéttingar og allann pakkann, ekki nema olíu hringinir séu slappir, þjöppumældu bílinn ef þú ert eh alvarlega að spá í honum.


Það kostar 30kall að hringja í þá gauka
ég myndi ekki leggja svoleiðis peninga í 2.0 vél, frekar að fá sér aðra stærri vél eða annan bíl bara , fer samt eftir hvað maður fær bílinn á
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby Eggert » Tue 31. Aug 2004 17:49

Ég heyrði í eigandanum af þessari fimmu áðan, hann hafði lesið þennan póst of viljað leiðrétta. Hann sagði að bíllinn væri ekki að brenna hálfum líter per tank(sem er nú þónkkuð stór fyrir), heldur um hálfum líter sirka eftir mánaðarakstur. Það þykir mér ekkert tiltökumál, þetta var bara misskilningur.

En með hljóðið í ventlum, ég held ég láti það bara eiga sig. Þetta er gamall bíll, og að sögn núverandi eiganda þá hefur hann hljóðað svona þessi tvö ár sem hann er búinn að eiga hann. Ég nenni ekki að fara að hafa miklar áhyggjur af því, og er illa við að fara að opna þessa vél.
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby Schnitzerinn » Tue 31. Aug 2004 17:57

Kauptu bara almennilegan 525i með M50 mótor (bíllinn minn) og þá erum við að tala saman ;) :P
Dóri
Image BMW 525i e34 '91 [SELDUR]
Image Opel Vectra CD 2.0 '97[Í notkun]
User avatar
Schnitzerinn
Getawaybílstjóri
 
Posts: 901
Joined: Sun 25. Jul 2004 19:09

Postby Alpina » Tue 31. Aug 2004 19:21

Schnitzerinn wrote:Kauptu bara almennilegan 525i með M50 mótor (bíllinn minn) og þá erum við að tala saman ;) :P


Akkúrat
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby Haffi » Tue 31. Aug 2004 19:33

Eggert wrote:Ég heyrði í eigandanum af þessari fimmu áðan, hann hafði lesið þennan póst of viljað leiðrétta. Hann sagði að bíllinn væri ekki að brenna hálfum líter per tank(sem er nú þónkkuð stór fyrir), heldur um hálfum líter sirka eftir mánaðarakstur. Það þykir mér ekkert tiltökumál, þetta var bara misskilningur.

En með hljóðið í ventlum, ég held ég láti það bara eiga sig. Þetta er gamall bíll, og að sögn núverandi eiganda þá hefur hann hljóðað svona þessi tvö ár sem hann er búinn að eiga hann. Ég nenni ekki að fara að hafa miklar áhyggjur af því, og er illa við að fara að opna þessa vél.


blessaður vertu það er engin brennsla af olíu :)
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby arnib » Tue 31. Aug 2004 20:58

Og hvað varðar þetta glamur þá gæti vel verið að það þurfi bara að ventlastilla vélina, enda mælir BMW með að það sé gert á hvað, 15 þúsund km. fresti ?

Ventlastilling er mjög lítið mál, og er útskýrð í flestum viðgerðabókum (Haynes, etc..), og tekur óvanan mann kannski um 2 klst.

B&L hefur líka tekið þetta að sér, og minnir mig að þeir hafi rukkað 2 klst í vinnu fyrir það.
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby Eggert » Tue 31. Aug 2004 21:02

Ég skil, og hvað kostar tíminn hjá B&L, veit það einhver?
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby Eggert » Tue 31. Aug 2004 21:08

Alpina wrote:
Schnitzerinn wrote:Kauptu bara almennilegan 525i með M50 mótor (bíllinn minn) og þá erum við að tala saman ;) :P


Akkúrat


Verst að hann er um 600 kalli dýrari.
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby sindrib » Tue 31. Aug 2004 23:12

Eggert wrote:Ég skil, og hvað kostar tíminn hjá B&L, veit það einhver?


án þess að ég þori að fullyrða það þá minnir mig að hann sé á milli 5-6þús
Merkur(sierra) xr4ti
User avatar
sindrib
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1099
Joined: Tue 13. Jul 2004 13:39
Location: Sønderborg, Danmark

Postby arnib » Tue 31. Aug 2004 23:16

Eggert wrote:Ég skil, og hvað kostar tíminn hjá B&L, veit það einhver?


Það skiptir engu máli, því að viðgerðabókin kostar um 3500 krónur, réttu verkfærin eitthvað smotterí (ef þú átt þau ekki fyrir) og ráð hér á bmwkrafti eru ókeypis.

:)
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests