BMW hjólin með boxervélinni voru frumhönnuð um 1927.
Þá var þetta vélarform ekki "óalgengt". Þetta reyndist svona vel að í seinni heimsstyrjöldinni náðu rússar nokkrum hjólum herfangi og tóku að kópíera þau, útkoman Dnjepr hjólin sem eru nokkur til hér á landi.
Strax 1927 var ákveðið að hafa EKKI KEÐJU á hjólunum, (nokkuð sem Japanirnir voru nær sextíu ár að skilja). BMW hefur aldrei framleitt hjól með keðju, eingöngu drifskapti. Enda viðhaldsfrítt, ef skipt er um oliu er á 30 þús km fresti.
Um 1990 fannst einhverjum frammámönnum BMW hjóladeildarinnar að það þyrfti af hressa uppá lookið og afnema boxerinn. Aðrir vildu það ekki. Það var lent á þeirri ólukku lausn, málamiðlun, að gera "boxer" með alla cyl. sömu megin. Sem er auðvitað ekki boxer, en hugsunin var sú að hafa vélina áfram LANGSUM í hjólinu. Úr varð 3ja cyl hjól með langsum vél. Og svo 4ra cyl. ( K serían, boxerhjólin eru R serían) Þau voru ágæt, held ég, en ca tíu árum seinna var farið að dusta rykið af gamla boxernum, einhverra hluta vegna. Og var settur á markaðinn, endurnýjaður, og minnir mig, hvorum cyl. lyft um 5 gráður til að fá meiri fríhæð í beygjum.
En þessi "gömlu" hjól, eins og á myndinni í upphafi er algjör toppur til ferðalaga, og ég fullyrði að ekkert mótorhjól hefur minni bilanatíðni.
Auðvitað frekar einfalt, og svakalega gott. Ég kann margar sögur af okkur félögunum akandi á hjólum okkar, og þegar maður greip í aðrar tegundir, hvað var gott að komast aftur uppá Bimman, og þurfa ekki að vera í fullu starfi við gírskiptingar og stýrisvinnu til þess að komast þokkalega áfram og líða vel.
