BMW 100CS 1977

Sástu flottan BMW og vilt leyfa okkur hinum að njóta líka? Póstaðu því þá hér.

BMW mótorhjól

Postby Þórður Helgason » Sat 17. Jul 2004 23:12

BMW hjólin með boxervélinni voru frumhönnuð um 1927.

Þá var þetta vélarform ekki "óalgengt". Þetta reyndist svona vel að í seinni heimsstyrjöldinni náðu rússar nokkrum hjólum herfangi og tóku að kópíera þau, útkoman Dnjepr hjólin sem eru nokkur til hér á landi.
Strax 1927 var ákveðið að hafa EKKI KEÐJU á hjólunum, (nokkuð sem Japanirnir voru nær sextíu ár að skilja). BMW hefur aldrei framleitt hjól með keðju, eingöngu drifskapti. Enda viðhaldsfrítt, ef skipt er um oliu er á 30 þús km fresti.

Um 1990 fannst einhverjum frammámönnum BMW hjóladeildarinnar að það þyrfti af hressa uppá lookið og afnema boxerinn. Aðrir vildu það ekki. Það var lent á þeirri ólukku lausn, málamiðlun, að gera "boxer" með alla cyl. sömu megin. Sem er auðvitað ekki boxer, en hugsunin var sú að hafa vélina áfram LANGSUM í hjólinu. Úr varð 3ja cyl hjól með langsum vél. Og svo 4ra cyl. ( K serían, boxerhjólin eru R serían) Þau voru ágæt, held ég, en ca tíu árum seinna var farið að dusta rykið af gamla boxernum, einhverra hluta vegna. Og var settur á markaðinn, endurnýjaður, og minnir mig, hvorum cyl. lyft um 5 gráður til að fá meiri fríhæð í beygjum.

En þessi "gömlu" hjól, eins og á myndinni í upphafi er algjör toppur til ferðalaga, og ég fullyrði að ekkert mótorhjól hefur minni bilanatíðni.

Auðvitað frekar einfalt, og svakalega gott. Ég kann margar sögur af okkur félögunum akandi á hjólum okkar, og þegar maður greip í aðrar tegundir, hvað var gott að komast aftur uppá Bimman, og þurfa ekki að vera í fullu starfi við gírskiptingar og stýrisvinnu til þess að komast þokkalega áfram og líða vel.
2002 árg 1969 rip
2002 árg 1971 rallýbíll (læknabíllinn) rip?
2000CA árg 1968 í langtímahvíld.
735i árg 1980 seldur.
318i árg 1989 seldur.
540i árg 1996. Frábær vagn. Seldur.
Þórður Helgason
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 476
Joined: Wed 20. Nov 2002 23:38
Location: Akureyri

Postby Þórir » Sun 18. Jul 2004 00:17

Já, þetta hefur maður nefnilega heyrt um BMW hjólin, enda segir það ansi mikið um þau að til sé stór klúbbur manna sem eiga hjól sem ekið hefur verið meira en milljón km.

Annars ætlaði ég nú alls ekki að fara að særa Ducatti crowdið en það er svo skrítið að þetta er bara í fyrsta skipti sem ég hef heyrt það nefnt að Ducati ( er þetta ekki rétt núna? ) séu áreiðanleg hjól, hvað bilanatíðni varðar. Ég hef nú lesið mér sitthvað til og þekki nú nokkra sem eru á kafi í þessu.

Annars er nú bara mín sýn á Ítalska bíla og mótorhjól sú að þetta sé ein fallegasta hönnum sem fyrirfinnist, 996 er tildæmis eitt það hjól sem mig langar hvað mest í, enda hönnunin svo ótrúlega flott, það bara bogar af því þokkinn. En áreiðanleiki virðist ekki vera til staðar og held ég að það sé erfitt fyrir menn að neita því, jafnvel þó þeir séu forfallnir aðdáendur. Ölfurnar eru nær óseljanleg vara, ekki bara vegna þess að umboðið var lélegt.

En svo er hins vegar annað mál að ég er sífellt að læra að meta BMW hjólahönnunina meir og meir. Það er ekki langt síðan mér fannst þetta ljótara en allt ljótt en nú er ég byrjaður að sjá fegurðina, ekki bara fegurð í notagildi heldur einnig ákveðinn sérviska sem fylgir hönnuninni. En svona er þetta, maður eldist og þroskast. Það eru nú bara ekkert langt síðan mér fannst old school racer-arnir, CB hondurnar, Triump o.s.frv. alveg hræðilega ljót hjól en núna finnst mér þetta alveg hrikalega svalt.

Annars ætlaði ég nú aðallega bara bjóða Bebecar að skanna inn kafla um þessi "slash 7" hjól eins og þeir kalla þau í buyers guide sem ég á og e-maila honum.

Annars, hafið það bara gott.

Kveðja.
User avatar
Þórir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 597
Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Location: R.vík

Re: BMW mótorhjól

Postby bebecar » Sun 18. Jul 2004 07:40

Þórður Helgason wrote:BMW hjólin með boxervélinni voru frumhönnuð um 1927.

Þá var þetta vélarform ekki "óalgengt". Þetta reyndist svona vel að í seinni heimsstyrjöldinni náðu rússar nokkrum hjólum herfangi og tóku að kópíera þau, útkoman Dnjepr hjólin sem eru nokkur til hér á landi.
Strax 1927 var ákveðið að hafa EKKI KEÐJU á hjólunum, (nokkuð sem Japanirnir voru nær sextíu ár að skilja). BMW hefur aldrei framleitt hjól með keðju, eingöngu drifskapti. Enda viðhaldsfrítt, ef skipt er um oliu er á 30 þús km fresti.

Um 1990 fannst einhverjum frammámönnum BMW hjóladeildarinnar að það þyrfti af hressa uppá lookið og afnema boxerinn. Aðrir vildu það ekki. Það var lent á þeirri ólukku lausn, málamiðlun, að gera "boxer" með alla cyl. sömu megin. Sem er auðvitað ekki boxer, en hugsunin var sú að hafa vélina áfram LANGSUM í hjólinu. Úr varð 3ja cyl hjól með langsum vél. Og svo 4ra cyl. ( K serían, boxerhjólin eru R serían) Þau voru ágæt, held ég, en ca tíu árum seinna var farið að dusta rykið af gamla boxernum, einhverra hluta vegna. Og var settur á markaðinn, endurnýjaður, og minnir mig, hvorum cyl. lyft um 5 gráður til að fá meiri fríhæð í beygjum.

En þessi "gömlu" hjól, eins og á myndinni í upphafi er algjör toppur til ferðalaga, og ég fullyrði að ekkert mótorhjól hefur minni bilanatíðni.

Auðvitað frekar einfalt, og svakalega gott. Ég kann margar sögur af okkur félögunum akandi á hjólum okkar, og þegar maður greip í aðrar tegundir, hvað var gott að komast aftur uppá Bimman, og þurfa ekki að vera í fullu starfi við gírskiptingar og stýrisvinnu til þess að komast þokkalega áfram og líða vel.


Já, ég hef því miður aldrei ekið svona hjóli, bara hehyrt í því og ég held að þetta sé akkúrat minni bolli af tei ef svo má segja, togmikið, hásetið, viðhaldsfrítt og "rugged" hjól til daglegra nota, langkeyrslu og í smá sport... svo er ekki verra að töskurnar fylgja með :wink:

Hvaða japani fannst þér annars bestur?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby bebecar » Sun 18. Jul 2004 07:51

þórir wrote:Já, þetta hefur maður nefnilega heyrt um BMW hjólin, enda segir það ansi mikið um þau að til sé stór klúbbur manna sem eiga hjól sem ekið hefur verið meira en milljón km.

Annars ætlaði ég nú alls ekki að fara að særa Ducatti crowdið en það er svo skrítið að þetta er bara í fyrsta skipti sem ég hef heyrt það nefnt að Ducati ( er þetta ekki rétt núna? ) séu áreiðanleg hjól, hvað bilanatíðni varðar. Ég hef nú lesið mér sitthvað til og þekki nú nokkra sem eru á kafi í þessu.

Annars er nú bara mín sýn á Ítalska bíla og mótorhjól sú að þetta sé ein fallegasta hönnum sem fyrirfinnist, 996 er tildæmis eitt það hjól sem mig langar hvað mest í, enda hönnunin svo ótrúlega flott, það bara bogar af því þokkinn. En áreiðanleiki virðist ekki vera til staðar og held ég að það sé erfitt fyrir menn að neita því, jafnvel þó þeir séu forfallnir aðdáendur. Ölfurnar eru nær óseljanleg vara, ekki bara vegna þess að umboðið var lélegt.

En svo er hins vegar annað mál að ég er sífellt að læra að meta BMW hjólahönnunina meir og meir. Það er ekki langt síðan mér fannst þetta ljótara en allt ljótt en nú er ég byrjaður að sjá fegurðina, ekki bara fegurð í notagildi heldur einnig ákveðinn sérviska sem fylgir hönnuninni. En svona er þetta, maður eldist og þroskast. Það eru nú bara ekkert langt síðan mér fannst old school racer-arnir, CB hondurnar, Triump o.s.frv. alveg hræðilega ljót hjól en núna finnst mér þetta alveg hrikalega svalt.

Annars ætlaði ég nú aðallega bara bjóða Bebecar að skanna inn kafla um þessi "slash 7" hjól eins og þeir kalla þau í buyers guide sem ég á og e-maila honum.

Annars, hafið það bara gott.

Kveðja.


Það væri ekki slæmt að fá buying guide yfir þessi hjól, ég er reyndar líka hrifinn af gömlu CB (sérstaklega CBX þó ég myndi ekki vilja halda því við), en aðal vandamálið hjá mér er kannski það að ég er líka mjög hrifinn af K hjólunum þá aðallega K100 og verðmunurinn á því og 100CS er mjög lítill. Mér finnst R hjólin bara klassískari (sem þau eru) og kannski öruggara að veðja á þau ef maður vill klassískt karakter hjól.

K hjólin eru víst geysilega góð en þykja dálítið "dull" í samanburði við R hjól.

Ég er líka byrjandi í þessu þó ég hafi lesið mér mjög mikið til síðustu ár þannig að öll góð ráð eru þegin.

En samt sem áður þá hafa þessi þrjú ítölsku hjól öll orð á sér í dag (síðan sirka 1996) fyrir að vera mjög traust og örugg, Moto Guzzi byggir t.d. á mjög traustri vél sem þeir eru búnir að nota í áratugi og þau eru með drifskafti líka :wink:

Alfan mín var bilanafríasti bíll sem ég hef átt, það fór ekki einu sinni pera í honum þessa 40 þús km sem ég keyrði hann... en hann bilaði sem aldrei fyrr hjá næsta eiganda hef ég heyrt - ég myndi ekki þora í Ölfu í dag nema ákveðnar típur, en ég þori t.d. heldur ekki að kaupa VW vegna slæmrar reynslu flestra þeirra sem ég þekki sem hafa átt Polo, Golf eða Passat :roll:

Ég held að málið sé bara það að þetta spyrjist minna út þegar þjónustan er góð, t.d. veit ég um ansi margar gallaðar Avensis bifreiðar og IS200 en þetta veit engin um vegna þess að umboðið sér um að halda fólki ánægðu.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Giz » Sun 18. Jul 2004 09:34

Jæja, ekkert betra en góðar umræður á sunnudagsmorgni :D

Þar sem ég er væntanlega einn í Ducati crewinu svokallaða og ekki hörundsár þá skal ég fúslega viðurkenna að í svona gripum er meiri hætta á allskonar dyntum og litlum fýluköstum en fegurð og aksturseiginleikar meira en bæta upp fyrir það, 7, 9, 13.

Ég vildi bara vekja athygli á þessu mæla með atriði.

Hins vegar er Bebecar nú þekktur fyrir að ráðast á garðinn hæstann enda kaupa menn ekki ´77 árg. af óþekktum 911 með Tonka Toy looki án þess að hafa hjartað á réttum stað.

Þar sem hér er hins vegar um 30 gráðu hiti held ég að ég skelli mér á bak mínu svarta dyntótta hjóli í svarta gallanum mínum og með svarta hjálminn minn, ææ, ekki góð uppskrift :?

Kveðja

G
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

Postby bebecar » Sun 18. Jul 2004 10:05

Giz wrote:Jæja, ekkert betra en góðar umræður á sunnudagsmorgni :D

Þar sem ég er væntanlega einn í Ducati crewinu svokallaða og ekki hörundsár þá skal ég fúslega viðurkenna að í svona gripum er meiri hætta á allskonar dyntum og litlum fýluköstum en fegurð og aksturseiginleikar meira en bæta upp fyrir það, 7, 9, 13.

Ég vildi bara vekja athygli á þessu mæla með atriði.

Hins vegar er Bebecar nú þekktur fyrir að ráðast á garðinn hæstann enda kaupa menn ekki ´77 árg. af óþekktum 911 með Tonka Toy looki án þess að hafa hjartað á réttum stað.

Þar sem hér er hins vegar um 30 gráðu hiti held ég að ég skelli mér á bak mínu svarta dyntótta hjóli í svarta gallanum mínum og með svarta hjálminn minn, ææ, ekki góð uppskrift :?

Kveðja

G

NO GUTS NO GLORY :wink:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Previous

Return to Áhugaverðir bimmar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 42 guests